- What: New contractor hired for construction project in Reykjavik
- Impact: Project continues after previous contractor resigned
Innlent | mbl | 27.2.2026 | 21:00 „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Nýr verktaki hefur þegar hafið störf við verkið. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Verktakafyrirtækið HH Hús ehf. hyggst reyna að leita sátta við Reykjavíkurborg eftir að nýr verkefnastjóri yfir múrverksverkefni fyrirtækisins í Ölduselsskóla í Seljahverfi í Reykjavík sagði verktakanum upp fyrirvaralaust á miðvikudag. Fyrirtækið hefur fengið lögmann sinn til að hlutast til í málinu en það hefur nú þegar þurft að segja upp 25 starfsmönnum eftir að borgin sleit samstarfinu. Nýr verktaki hefur þegar hafið störf við verkið. Frétt af mbl.is Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Hljómar eins og geðþóttaákvörðun Júlía Rós Atladóttir, annar eigandi HH Hús, segir í samtali við mbl.is að tjón félagsins hlaupi á verulegum fjárhæðum. Verkið sjálft hlaupi á hundruðum milljóna, fyrirtækið þurfi að greiða starfsmönnum sinn uppsagnarfrest, allt að þrjá mánuði. Þá hafi verið búið að kaupa verkfæri, öryggisbúnað, vinnuföt og önnur tæki og tól fyrir starfsmennina 25. „Svo eru álitshnekkir. Þetta verktakafyrirtæki er stofnað árið 2003 og við erum að vinna fyrir fullt af öðrum viðskiptavinum sem eru náttúrulega búnir að vera að hringja í okkur í dag og spyrja hvað sé eiginlega í gangi. Guðni er búinn að segja að það sé búið að margítreka við okkur að bæta úr einhverjum gæðamálum [Guðni Guðmundsson er skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg]. Þetta er bara meiðyrðamál og við munum sækja skaðabætur vegna riftunarinnar. Svo fer þetta að mér skilst fyrir kærunefnd útboðsmála,“ segir Júlía Rós. Hún segir eigendur og lögmann hafa lesið yfir allar fundargerðir sem hafa verið skrifaðar síðan félagið hóf vinnu við verkið í júlí á síðasta ári. „Það er ekkert sem kemur fram þar sem getur gefið ástæðu til þess að rifta þessum samningi. Auðvitað kemur alltaf eitthvað upp sem við höfum bara bætt úr. Þeir vildu að við værum með hjálma, sem er ekki skylda, en já, við getum verið með hjálma. Þeir báðu líka um að starfsmennirnir væru með starfsmannaskírteini, sem okkur þótti furðulegt, en starfsmenn voru komnir með starfsmannaskírteini. Það er af og frá það sem var haft eftir Guðna að við höfum ítrekað verið beðin um að laga einhver mál. Það er bara ósatt og þetta hljómar eins og einhver geðþóttaákvörðun, sem kom okkur bara algjörlega í opna skjöldu.“ Frétt af mbl.is Myndir: „Jaðrar við ofbeldi gagnvart nemendunum“ „Það hefur ekkert með verktakann að gera“ Verktakanum var sagt að hafa allt sitt á brott og þá segir Júlía að allt hafi verið tekið, einnig öryggisgirðingar. Hún furðar sig á því að borgin hafi ekki gert einhverja aðgerðaráætlun fyrst hún ákvað að skipta út verktaka á svona viðkvæmum stað þar sem börn eru í skólanum. „Ekki bara segja okkur að fara og svo eru þeir ekkert klárir með nýjan búnað?“ Júlía furðar sig einnig á því að liðnir séu tveir og hálfur vinnudagur og enn hefur HH Hús ekki fengið eina einustu ástæðu uppgefna fyrir riftun samningsins. Segist hún hafa tafarlaust óskað eftir ástæðu á miðvikudag en ekkert hafi borist. Þeim hafi verið sagt að lögfræðiteymið muni svara fyrir það þar sem lögfræðiteymið hafi komist að þessari niðurstöðu. Starfsmaður Ölduselsskóla sagði í samtali við mbl.is m.a. að menn á vegum verktakans hafi valsað á milli kennslustofa þar sem nemendur sinntu námi, borað í gólf og loft og skilið eftir opin sár þar sem vitað var að hættuleg mygla hafði fundist. Vinnufólk hafi ekki notast við viðeigandi hlífðarbúnað sem og að öryggisstaðlar hafi ekki verið virtir. Júlía segir þetta af og frá. „Það var talað um að borað væri í gólf og loft. Það er Verkvist sem hefur komið til þess að taka sýni og borað. Verktakinn var ekkert að gera það. Þetta eru mjög erfiðar vinnuaðstæður, í starfandi skóla. Ég meina, við erum að brjóta niður veggi og ég skil að fólk sé ósátt við það en það hefur ekkert með verktakann að gera. Við erum bara að vinna samkvæmt verkáætlun og gera það sem okkur er sagt að gera. Við ráðum ekki hvort börn eru í skólanum eða ekki.“ Frétt af mbl.is Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Skipt um verkefnastjóra HH Hús hefur unnið fyrir borgina í sjö ár og er í fleiri verkefnum fyrir borgina í dag. Þau verkefni halda áfram að óbreyttu að sögn Júlíu. „Það er bara ánægja með störf okkar innan borgarinnar og það er bara ánægja með þessi verkefni.“ Hún segir að nýlega hafi verið skipt um verkefnastjóra á verkinu og eftir það hafi samstarfið gengið erfiðlega. „Hann var búinn að vera að reyna að finna að öllu hjá okkur síðan hann kom. Hann lét eftirlitsmenn standa yfir okkur allan daginn og ef einhver hvarf vildi hann vita hvert viðkomandi fór. Þetta var viðbjóðsleg framkoma,“ segir Júlía og að samstarfserfiðleikarnir hafi svo endað með uppsögninni á miðvikudag. Ekki náðist í Guðna Guðmundsson við vinnslu fréttarinnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Litháen, staðan er 86:85 Nýrri bráðamatsdeild ætlað að dreifa álagi „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Svona stillir Sjálfstæðisflokkurinn upp í Mosfellsbæ FH-ingar neituðu að spila Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nýr verktaki fenginn varðandi Ölduselsskóla Í raun verið í kreppuverðbólgu í fjögur ár Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Ræða tillögu um að bjóða ekki fram Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Ísland - Litháen, staðan er 86:85 Nýrri bráðamatsdeild ætlað að dreifa álagi „Þetta var viðbjóðsleg framkoma“ Svona stillir Sjálfstæðisflokkurinn upp í Mosfellsbæ FH-ingar neituðu að spila Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ný könnun fyrir kosningar í borginni: Tveir turnar Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Fólk tjaldar inni hjá sér“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Lögreglan fylgdist með hitafundi Loga Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Fullt tilefni til að hafa áhyggjur Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf 420 milljónir fyrir Toppstöðina Meginorsök banaslyss að afturhjólið læstist Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Fólk flutt sjóleiðina eftir að vegurinn varð ófær Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál