Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný

  • What: Construction of a new residential complex on Nónhæð is underway
  • Impact: 140 apartments will be built in the area
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 8.5.2026 | 23:00 Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Kristján Snorrason með byggingarlóðina í baksýn. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Kristján Snorrason húsasmíðameistari áætlar að þriðja og síðasta fjölbýlishúsið sem hann byggir á Nónhæð muni koma á markað eftir um tvö og hálft ár, eða í ársbyrjun 2029. Uppbygging hússins hefur af ýmsum sökum tafist, eða um tvö og hálft ár, og er jarðvinna nýhafin. Nónhæð er á mörkum Kópavogs og Garðabæjar. Þar eru fjölskyldufyrirtækin Nónhæð ehf. og KS verktakar ehf. að byggja 140 íbúðir. Búið er að byggja 74 íbúðir og er smíði 13 til viðbótar langt komin í lokaáfanga annars hússins af þremur sem rís á reitnum. Af þessum 13 íbúðum verður ein í Nónsmára 11 og 12 íbúðir í Nónsmára 9. Með því verða íbúðirnar orðnar 87 og munu 53 bætast við þegar þriðja og síðasta húsið kemur á markað. Verkefnið á sér langan aðdraganda því Kristján keypti lóðina árið 2002. Síðan hefur svæðið í kring byggst mikið upp. Akrahverfið í Garðabæ er orðið gróið hverfi og uppbyggingu 658 íbúða í Smárabyggð lokið. Uppbyggingin á Nónhæð hófst 2018 og komu fyrstu íbúðirnar á markað í farsóttinni. Þúsundir vörubílsfarma Kristján og samstarfsmenn hans þurftu að aka tæplega 7.000 vörubílsförmum af jarðvegi frá lóðinni upp í Bolöldu áður en hægt var að hefja framkvæmdir 2018. Lokaáfanginn kallar einnig á mikla efnisflutninga og áætlar Kristján að þegar upp er staðið verði búið að flytja um 160-170 þúsund rúmmetra af jarðvegi, eða helminginn af því magni sem þurfti að flytja úr grunni nýja meðferðarkjarnans við Landspítalann, sem er ein stærsta bygging landsins. Þannig þurfi að flytja 35-40 þúsund rúmmetra af jarðvegi áður en uppsteypa hefst og meðan á henni stendur, eða sem svarar 1.700 vörubílsförmum. Hins vegar þurfi ekki að fleyga mikla klöpp. Þá bendir hann á að grunnflötur þriðja og síðasta hússins verði um tíu þúsund fermetrar að meðtöldum bílakjallara og sameign. Jarðvinna er hafin við grunninn undir þriðja og síðasta fjölbýlishúsið sem verður byggt á Nónhæð. Flytja þarf mikið af jarðvegi í burtu. mbl.is/Baldur Standa á gömlum merg Kristján hefur farið í gegnum nokkrar efnahagssveiflur síðan hann keypti lóðina fyrir að verða aldarfjórðungi. Meðal annars efnahagshrun og farsótt. Spurður hvernig verkefnið hafi komið út segist Kristján ekki hafa neina ástæðu til að kvarta. „Mín fyrirtæki standa á gömlum merg. Þetta er komið vel á fjórða áratuginn,“ segir Kristján sem byrjaði að vinna við húsasmíði 14 ára gamall og var búinn að byggja sitt fyrsta raðhús 19 ára gamall í Hveragerði. Mikið er rætt um vaxtastigið. Spurður hvort hár fjármagnskostnaður sé vandamál segir Kristján að vissulega sé vaxtakostnaður hár um þessar mundir en að það þurfi einfaldlega að gera ráð fyrir því og hugsa hvernig hægt sé að fjármagna verkefnið á sem bestan hátt. Vinnulaun hafi hækkað mikið en verð á byggingarefni ekki mikið. Þá hafi annar tilkostnaður hækkað sem snýr að opinberum aðilum. Með góðu skipulagi sé hins vegar hægt að koma vel út úr slíkum framkvæmdum. Verið er að bæta 13 íbúðum við Nónsmára 9-11. mbl.is/Baldur Óþarfa neikvæðni Þá sé gangurinn á markaðnum betri en af er látið. „Það er svolítið búið að tala þetta niður en vissulega er salan þung í vissum hverfum. Það er búið að byggja margar íbúðir á stuttum tíma. Fyrir vikið hefur skapast offramboð í vissum hverfum. Þá hefur skipulag íbúða sitt að segja en hönnun íbúða í nýbyggingum höfðar ekki alltaf til fólks. Ég fór nýlega að skoða nýjar íbúðir á þéttingarreitum og verð að segja að hönnun íbúðanna olli mér vonbrigðum. Það vantar eitthvað upp á,“ segir Kristján. Ef íbúðirnar í síðasta fjölbýlishúsinu á Nónhæð koma á markað eftir um tvö og hálft ár munu þær að líkindum koma fyrr á markað en þær 80 íbúðir sem Klasi hyggst reisa á milli Smáralindar og Smárabyggðar, auk skrifstofuhúsnæðis. Sömuleiðis má gera ráð fyrir að uppbyggingunni í Hnoðraholti verði þá lokið og hugsanlega einnig í kringum Vífilsstaði. Spurður hverjir hafi keypt íbúðir á Nónhæð segir Kristján marga kaupendurna vera eldra fólk en að einnig hafi verið nokkuð um að yngra fólk kaupi íbúðir. Á næstunni verði ráðist í átak til að kynna minni íbúðir á Nónhæð fyrir yngri kaupendum. Bílakjallari verður undir fjölbýlishúsunum þremur á Nónhæð. Jafnframt eru stæði ofanjarðar og samanlagt 1,5 stæði á hverja íbúð, sem er til dæmis tvöfalt meira en á sumum þéttingarreitum í Reykjavík. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Hálf trommusveitin var á Samfés“ Björgvin Páll: Ætli ég verði ekki jarðaður hérna Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Haukar með fullt hús Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Rannsóknarnefnd um Bakkakot í smíðum Formleg opnun Lækjarbakka: Engin bið eftir plássi Vilja fá hagsmunagæslu fyrir Laugalandsmálið Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Nýjast á mbl.is » „Hálf trommusveitin var á Samfés“ Björgvin Páll: Ætli ég verði ekki jarðaður hérna Uppbygging á Nónhæð er hafin á ný Samkomulag Vals og borgarinnar alls ekki í höfn Haukar með fullt hús Umræðan Framför til hægri eða stöðnun til vinstri Aukin samkeppnishæfni – aukin verðmætasköpun – bætt lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslenski skálinn tekur ekki þátt í verkfallinu Engin úrræði og engin ábyrgð Vilja fá hagsmunagæslu fyrir Laugalandsmálið Stúdentum greitt högg á ögurstundu Mest lesið Í gær Í vikunni Hefðu fengið 9,4 og 6,5 í einkunn – nú fá þau B Nemendum með A stórfjölgar milli ára Sagði Støre og Tusk frá flýttu ESB-ferli Fordæma kosningamyndband Miðflokksins Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Kveðja eftir 120 ára starf hjá Árvakri Miðflokksmenn verja myndbandið Heiða útskýrir frekar notkun á kortinu Óvænt samstaða um móttökudeildir í Reykjavík Breytingarnar flækt líf barnafjölskyldna Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Borgin heldur Höfðanum í gíslingu Kristrún flytur í Ráðherrabústaðinn Bílstjóri bílsins réttindalaus þegar hann valt Stakk dóttur sína í hjartað 85 þúsund fengu 250 milljarða Greiðslukort borgarstjóra vekur spurningar Shamsudin-bræður dæmdir í 12 mánaða fangelsi Síbrotamaður verður áfram í gæsluvarðhaldi Segir notkunina „fullkomlega eðlilega“ Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Loka

Share this article