Fjárhagsstaða og rekstur Skagafjarðar, deilur um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki fyrir 1,5 milljarða og áhyggjur íbúa á Hólum í Hjaltadal um framtíð staðarins voru meðal þess sem oddvitar í Skagafirði tókust á um í oddvitaumræðum á RÚV. Skagafjörður er sveitarfélag á Norðvesturlandi og þar búa 4.361 manns. Flestir búa á Sauðárkróki en aðrir þéttbýliskjarnar eru Hofsós, Hólar í Hjaltadal og Varmahlíð. Fjórir listar eru í framboði í Skagafirði fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Oddvitar þeirra mættust í umræðum. Þau eru: Einar Eðvald Einarsson, Framsóknarflokki Magnús Barðdal, Sjálfstæðisflokki Eyþór Fannar Sveinsson, Byggðarlistanum Högni Elfar Gylfason, Miðflokki Umsjónarmaður er Ágúst Ólafsson.