Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Sakfelldur fyrir að fara með stúlku um borð í fiskibát

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.5.2026 | 14:58 Sakfelldur fyrir að fara með stúlku um borð í fiskibát Aðrir í áhöfn Grímsness GK-555 vissu ekki af stúlkunni um borð. Ljósmynd/Sigurður Bergþórsson Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hafa stuðlað að því að 15 ára stúlka kæmi sér undan valdi og umsjá foreldra sinna eftir að hafa farið með hana um borð í fiskiskip án vitneskju foreldra hennar. Dómur í málinu féll í Héraðsdómi Reykjavíkur. Maðurinn, Guðmundur Elís Briem Sigurvinsson, var sakfelldur fyrir sifskaparbrot samkvæmt almennum hegningarlögum en sýknaður af ákæru um brot gegn barnaverndarlögum vegna meintrar hættu sem stúlkunni hafi verið búin um borð í skipinu. Frétt af mbl.is Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Hafi ætlað að fara heim um kvöldið Málið á rætur að rekja til kvöldsins 1. apríl 2023 þegar stúlkan, þá 15 ára gömul, fór með Herjólfi frá Vestmannaeyjum til Landeyjahafnar til að hitta manninn sem þá var 23 ára. Ætlunin var samkvæmt framburði beggja að hún færi aftur heim með síðustu ferð ferjunnar síðar um kvöldið, en þeirri ferð var aflýst. Fór um borð í fiskibát Í kjölfarið ók maðurinn með stúlkuna til Suðurnesja og fór með hana um borð í fiskibát þar sem hann starfaði. Skipinu var síðan siglt út um nóttina og dvaldi stúlkan þar fram á síðdegi daginn eftir þegar lögregla hafði uppi á henni. Í dóminum segir að maðurinn hafi vitað að foreldrar stúlkunnar væru mótfallnir samskiptum þeirra. Móðir hennar hefði áður haft samband við hann og óskað eftir því að hann hætti að tala við dótturina. Þá taldi dómurinn framburð mannsins um að hann hafi talið stúlkuna hafa heimild foreldra sinna til ferðarinnar ótrúverðugan. Neitaði að stúlkan væri með Dómurinn lagði einnig áherslu á að Guðmundur hafi logið að lögreglu þegar hún hafði samband við hann um nóttina og neitað því að stúlkan væri með honum. Þá hafi hann laumað henni um borð í skipið án vitneskju annarra skipverja. Héraðsdómur taldi hins vegar ekki sannað að Guðmundur hefði með háttsemi sinni stofnað heilsu eða lífi stúlkunnar í þá hættu sem áskilin er samkvæmt barnaverndarlögum. Var hann því sýknaður af þeim ákærulið. Áður dæmdur fyrir nauðgun Við ákvörðun refsingar leit dómurinn meðal annars til þess að maðurinn hefði játað háttsemi sína og sagst iðrast hennar. Þá kom fram að hann hefði lokið skipstjórnarnámi og snúið lífi sínu til betri vegar. Á móti vó þó þungt að hann hélt áfram samskiptum við stúlkuna eftir að hafa samþykkt nálgunarbann. Maðurinn á að baki nokkurn sakaferil. Þar á meðal var hann árið 2025 dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Fjögurra mánaða fangelsisdómurinn sem nú féll er hegningarauki við þann dóm. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sendi Biel fallega kveðju þrátt fyrir stormasama tíma Íslandsmeistari heldur til Póllands Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Sakfelldur fyrir að fara með stúlku um borð í fiskibát Jörð skelfur við Ok Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Jörð skelfur við Ok Fleiri smitaðir af hantaveirunni Sorphirðan er dýrust í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Þungt högg og fjárfestingar í hættu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Kærður fyrir sama brot í fjórða sinn Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Sendi Biel fallega kveðju þrátt fyrir stormasama tíma Íslandsmeistari heldur til Póllands Sjálfbærni er góð fyrir viðskiptin Sakfelldur fyrir að fara með stúlku um borð í fiskibát Jörð skelfur við Ok Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Gervigreind drifkraftur vaxtar í Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þungt högg og fjárfestingar í hættu X26: Samhljómur um frekari vöxt Bíla- og skólamálin ofarlega á blaði Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er búið að eyðileggja“ Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Þungt högg og fjárfestingar í hættu Lífshættuleg stigmögnun í ofbeldissamböndum Goðsögn í fótbolta kenndi honum að tefla Kærður fyrir sama brot í fjórða sinn Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið

Share this article