Innlent | mbl | 11.5.2026 | 18:55 „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Valshverfið svokallaða. Loftmynd/Reykjavíkurborg Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skipulagið andstætt vilja íbúanna Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða » Fleiri tengdar fréttir Íbúar við Smyrilshlíð og Haukahlíð hyggjast leggja fram formlega bótakröfu á hendur Reykjavíkurborg vegna breytinga á deiliskipulagi svonefnds I-reits í svokallaða Valshverfinu í Vatnsmýrinni. Einn íbúi segir borgina hafa brugðist væntingum kaupenda sem keyptu íbúðir á svæðinu á grundvelli kynningargagna þar sem ekki var gert ráð fyrir byggð á reitnum. Sigríður Gunnarsdóttir, íbúi í Smyrilshlíð 2, segir í samtali við mbl.is að íbúar hafi um árabil reynt að stöðva uppbyggingu á reitnum og talið sig eiga rétt á því þar sem auglýsingabæklingar og kynningarefni frá Reykjavíkurborg hafi sýnt svæðið sem opið svæði þegar íbúðirnar voru seldar á árunum 2019 og 2020. „Fólk var að borga fyrir útsýni,“ segir Sigríður. Frétt af mbl.is Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Segja borgina breyta skipulagi ítrekað Að sögn Sigríðar hafa íbúar gagnrýnt að Reykjavíkurborg geti gert sífelldar breytingar á deiliskipulagi án einhvers konar samtals við íbúa. Hún segir að einn íbúi hafi t.a.m. tekið saman fjölda breytinga á skipulaginu undanfarin ár og að þær hafi verið um 200 talsins. Hún segir íbúðirnar hafa verið keyptar á upplýsingum sem borgin hafði veitt og að það sé „rannsóknarefni út af fyrir sig“ hvernig borgin breyti svo deiliskipulaginu eins oft og hefur verið gert. Sigríður segir að kannað hafi verið hvernig fyrirkomulag varðandi deiliskipulag sé í öðrum borgum og bendir á að alla jafna sé það með slíkum hætti að ekki megi breyta því til nokkurra ára eftir að það hafi verið samþykkt. Þá þurfi einnig að fara fram grenndarkynning. „Þetta er ekkert svona hér hjá okkur.“ Frétt af mbl.is Segir borgaryfirvöld hunsa íbúa Frétt af mbl.is Af hverju eru hagsmunir Reykvíkinga virtir að vettugi? Munu höfða bótamál verði krafan ekki samþykkt Þá telur hún fasteignakaupendur skorta neytendavernd. „Þetta er yfirleitt það dýrasta sem maður kaupir í gegnum ævina, íbúðirnar og húsin, og við erum ekkert varin. Það er ekkert sem ver okkur. Það er ekki horft á okkur sem neytendur þegar við erum að kaupa íbúðirnar okkar,“ segir Sigríður. Aðspurð segir hún íbúa Smyrilshlíðar og Haukahlíðar ítrekað hafa sent kærur og erindi til borgarinnar en að aldrei hafi verið hlustað á sjónarmið þeirra. Eins og greint hefur verið frá hyggjast íbúarnir höfða bótamál á hendur Reykjavíkurborg ef borgin samþykkir ekki bótakröfu þeirra vegna tjóns sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. Aðspurð segir Sigríður alla íbúðaeigendur Smyrilshlíðar 2, sem séu um 20 talsins, sem og alla íbúðareigendur Haukahlíðar 5, sem telji svipaðan fjölda, vera með í málinu. Frétt af mbl.is Birtumagn í íbúðir hverfur nánast Frétt af mbl.is Íbúðirnar verða í skugga allt árið Vilja koma í veg fyrir að svona mál komi upp aftur Hyggjast íbúarnir fara fram á bætur vegna verðrýrnunar fasteigna sinna og segir Sigríður að miðað verði við um fimm prósent af fasteignamati íbúðanna. Þá verði einnig horft til tilviks þar sem áhrif uppbyggingarinnar hafði áhrif á söluverð íbúðar á svæðinu. Í því tilviki voru íbúðareigendurnir með samþykkt kauptilboð frá Félagsbústöðum, sem eru í eigu Reykjavíkurborgar. Þegar undirritun kaupsamnings fór fram kröfðust Félagsbústaðir hins vegar lækkunar á verði á grundvelli þess að skipulagsbreytingar myndu lækka íbúðina í verði. Sigríður segir íbúana jafnframt vilja vekja athygli á því sem þeir telji vera kerfislægt vandamál í skipulagsmálum borgarinnar. „Það sem við viljum að eftir standi sé að það verði eitthvað tekið úr þessu máli um hvernig þú ferð ekki með borgara, að það sé allavega hægt að gera eitthvað þannig að þetta komi ekki fyrir aftur af því að það er engin neytendavernd og það er enginn að spá í þetta sem hefur hugrekki eða völd til þess að stíga inn í þetta.“ Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Allir sögðu nei nema Heiða Björg Skipulagið andstætt vilja íbúanna Flestir vilja aukna hlutdeild leiguhúsnæðis Segir að um sögulegan áfanga sé að ræða » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Njarðvík - Haukar, staðan er 0:0 Arftaki Salah fundinn? „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Heimilislífið „er auðvitað dálítið kaótískt“ Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Rúmeninn keypti bíl og stakk af með Norrænu Vill segja bless við bókstafina strax í sumar Ætlar að sanna sig fyrir efasemdarmönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Nýjast á mbl.is » Njarðvík - Haukar, staðan er 0:0 Arftaki Salah fundinn? „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Heimilislífið „er auðvitað dálítið kaótískt“ Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Umræðan Ábyrg fjármálastjórn Viðurkennum vandann Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Jörð skelfur við Ok Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Sjö sóttu um embætti skólameistara Þórdís Ólöf bar sigur úr býtum í Bakgarðshlaupinu 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Ekki leið en í sjokki „Fari alltaf einhverjar sögur af stað“ Handtekinn með þrjú ungmenni undir aldri á skemmtistað „Íbúar og fyrirtæki eru að sligast“ Segir vændismansal stærsta vandamálið Gott að fá vorhretið snemma í ár Vöggustofubygging verði rifin Tveir unnu 520 þúsund krónur Líkt var eftir að farþegaþota hefði farist Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Fer ekki í flík látins bróður í fjósið