Kjörstjórnir um allt land eru í óða önn að undirbúa sveitarstjórnarkosningar um helgina, enda að mörgu að huga. Þeir eru langir, tékklistarnir hjá yfirkjörstjórnum landsins þessa vikuna. Helga og samstarfsmenn hennar á Akureyri voru í dag að tryggja að öll gögn kæmust í kjördeildina í Grímsey - en í áranna rás hefur gengið á ýmsu við að koma gögnum til og frá nyrstu byggð landsins. Óteljandi handtök eru að baki hverjum kjörseðli fyrir sveitarstjórnarkosningar. Kjörstjórnir hafa í nægu að snúast, enda aðeins fimm dagar til kosninga. Þangað, eins og í aðrar kjördeildir, þarf að koma ýmsu: Innsigluðum kjörkassa, kjörseðlum, kjörskrá, skriffærum og gjörðabók - þar sem eru upplýsingar um kjörfundi í gegnum árin. Að sjálfsögðu með mola um hvernig viðraði á kjördag. 302.688 manns eru á kjörskrá og ganga að kjörborðinu á laugardag í 57 sveitarfélögum. Kjördeildirnar eru svo enn fleiri - eða 293. Í fjórum sveitarfélögum er sjálfkjörið, þar sem aðeins er einn listi í framboði. Að baki þessu öllu eru óteljandi handtök þeirra þúsunda starfsmanna sem sjá til þess að öll okkar atkvæði fari í löglegan farveg og endi í réttum höndum. Eitt sem kemur til með að breyta deginum töluvert fyrir þau eru nýju kjörkassarnir, sem eru þónokkuð léttari en forverar þeirra. Fjögur innsigli en ekki tvö, kalla líka á meiri tíma í meðhöndlun kassanna, reiknar kjörstjórnin á Akureyri með. „Nú eru fjögur innsigli í staðinn fyrir þau voru bara tvö á gömlu trékössunum. Þá voru þeir bara innsigli á sínhvorri hliðinni og svo bara hengilás. Þetta tekur pínu lengri tíma en til að vera viss að allt sé klárt klukkan níu þá ætlum við að byrja klukkan átta.“