Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.5.2026 | 7:15 Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Við komuna á kjörstað er mikilvægt að finna rétta kjördeild. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Valdið færist til kjósenda Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ » Fleiri tengdar fréttir Landsmenn ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórna. Kjörstaðir opna flestir klukkan níu og standa opnir til klukkan tíu í kvöld. Ýmislegt þarf að hafa í huga áður en haldið er á kjörstað. Til að mynda þarf að hafa skilríki meðferðis. Hér verður farið yfir nokkur helstu atriði sem þarf að hafa í huga, bæði fyrir þá sem eru að kjósa í fyrsta sinn og þá sem hafa kosið áður. Þá er einnig gott að hafa í huga hvað á ekki að gera á kjörstað. Hverjir mega kjósa? Allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu mega kjósa, auk norrænna ríkisborgara, frá Danmörku, Finnlandi, Noregi eða Svíþjóð og hafa náð 18 ára aldri á kjördag og eiga lögheimili í sveitarfélaginu. Þeir erlendu ríkisborgarar sem hafa átt samfellda búsetu á Íslandi í að minnsta kosti þrjú ár fyrir lok kjörfundar og eiga lögheimili í sveitarfélaginu geta einnig kosið til sveitarstjórna. Kjósandi þarf að vera með skráð lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi fyrir klukkan 12 á hádegi 38 dögum fyrir kjördag samkvæmt Þjóðskrá til að mega kjósa í því sveitarfélagi. Hvar og hvenær á að kjósa? Ef þú ert óviss hvar þú ert með skráða búsetu og ert þar af leiðandi óviss hvar þú átt að kjósa er hægt að fletta því upp á vef Þjóðskrár . Þar fæst uppgefið heimilisfang, kjördæmi, kjörstaður og kjördeild. Kjörstaðir eru almennt opnir frá klukkan 9 að morgni til klukkan 22. Einhverjir kjörstaðir í minni sveitarfélögum eru opnir skemur en opnunartíma þeirra má nálgast á heimasíðum sveitarfélaganna. Hvernig á að kjósa? Þegar þú gengur inn á kjörstað þarf að athuga í hvaða kjördeild þú ert skráður innan kjördæmisins. Listar með götuheitum og kjördeildum hanga uppi á kjörstöðum. Á flestum kjörstöðum er starfsfólk sem getur aðstoðað kjósendur við að finna rétta kjördeild, en hægt er að nálgast upplýsingarnar hér . Kjörstjórn tekur á móti þér og óskar eftir heimilisfangi og skilríkjum, til dæmis ökuskírteini eða vegabréfi eða rafrænu ökuskírteini. Kjósandi getur líka gert grein fyrir sér á annan fullnægjandi hátt að mati kjörstjórnar. Þegar kjósandi hefur fengið kjörseðil fer hann með hann í kjörklefa þar sem hægt er að kjósa án þess að nokkur sjái. Þar merkir kjósandi með skriffæri X í ferning fyrir framan þann framboðslista sem hann vill kjósa. Hvað á ekki að gera? Það má ekki vera með áróður á kjörstað, til að mynda er ekki heimilt að mæta í peysu merktri stjórnmálaflokki á kjörstað. Það má ekki skrifa tákn, orð eða annað á kjörseðilinn. Einungis á að haka X í ferning fyrir framan þann framboðslista sem kjósandi vill kjósa. Enginn má sjá hvernig þú greiddir atkvæði. Ef þú gerir mistök er hægt að fá nýjan kjörseðil. Aðstoð á kjörstað Allir kjósendur geta fengið aðstoð við að kjósa og þarf ekki að gefa upp neinar ástæður fyrir því. Kjósandi getur komið á kjörstað með eigin aðstoðarmann eða fengið aðstoð frá starfsfólki. Aðstoðarmaður þarf að fylla út eyðublað sem er aðgengilegt hér og á kjörstöðum. Sá má hvorki vera í framboði né þekkja frambjóðanda náið. Ef kjósandi fær aðstoð við að kjósa á kjörstað stöðvar kjörstjórn alla umferð um kjördeildina á meðan kosningin fer fram til að tryggja að hún sé leynileg. Bókað er um aðstoðina í fundargerð. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Þeir sem geta ekki sótt kjörfund í sínu kjördæmi geta farið á skrifstofur sýslumanna víða um land. Kjósanda ber þó að koma atkvæði sínu til skila í því kjördæmi sem hann er á kjörskrá. Upplýsingar um opnunartíma hjá sýslumönnum á kjördag má finna hér . Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Valdið færist til kjósenda Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fullkomnar pönnukökur fyrir helgarbrönsinn Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frumflutningur sérkenni kórsins Beint: Landsmenn ganga til kosninga Valdið færist til kjósenda Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Ógildir íbúakosningu vegna verulegs ágalla Rúmlega 32.000 hafa kosið utan kjörfundar Nýir eigendur að húsnæði Kjötborgar Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Nýjast á mbl.is » Fullkomnar pönnukökur fyrir helgarbrönsinn Kjördagur: Þetta þarf að hafa í huga Frumflutningur sérkenni kórsins Beint: Landsmenn ganga til kosninga Valdið færist til kjósenda Umræðan Litla veislan! Þetta snýst um samfélagið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spá allhvassri austanátt á morgun Kannast ekki við eigið kosningaloforð Ekki ávísun á meirihluta til vinstri Aldrei heyrt frá Pétri hverju hann vilji breyta Mest lesið Í gær Í vikunni Ný könnun sýnir hversu litlu munar í borginni „Við getum ekki tekið við endalaust af fólki“ Keyrði á hjólreiðamann sem barði bílinn á móti Áttu von á fleiri atkvæðum fyrir norðan Segist ekki ætla að verja það sem búið er að gerast Myndir: Allt að verða klárt á nýjum stað í Reykjavík Tekur undir gagnrýni um takmörkun á launahækkun Fagna „vöggu bítsins“ með stórtónleikum í Keflavík „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar Fá allt að 400 þúsund kr. fyrir að stökkva til Kannast ekki við eigið kosningaloforð Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Þetta eru einkenni hantaveiru Ný könnun: Meirihluti til hægri mögulegur án Viðreisnar „Fyrirtækið hefur notað það óspart í gegnum tíðina“ Launin skert í fimmta sinn 16 fengu úthlutaða íbúð Flytja ráðuneytið í miðbæinn Kappræður X26: Borgarstjóraefnin berjast um borgina Greiddi sama flugið tvisvar Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Aflýst: Ekki tókst að manna enn eitt flugið Sérsveit til aðstoðar í Eyjum „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum

Share this article