Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Njarðvíkingar komu sér í afar góða stöðu

Read Full Article →

Njarðvík og Haukar áttust við í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta. Njarðvík leiddi einvígið 1-0. Leikurinn var spennandi allt frá fyrstu mínútu þar sem forystan flakkaði á milli og aldrei munaði meira en níu stigum á liðunum. Það var í takti við leikinn að stigin voru jöfn í hálfleik, 42-42. Þaðan átti forystan eftir að sveiflast og spennan því mikil. Brittany Dinkins skoraði þrist undir lok þriðja leikhluta og sá til þess að Njarðvíkingar leiddu með fjórum stigum fyrir lokafjórðunginn, 62-58. Amandine Toi kom Haukum yfir, 68-70, þegar ein og hálf mínúta var eftir. Helena Rafnsdóttir svaraði því með þristi og góður lokakafli Njarðvíkinga færði þeim sigurinn, 75-70. Njarðvíkingar leiða því einvígið við deildarmeistara Hauka núna 2-0. Liðin mætast aftur á fimmtudag í Ólafssal. Vinna þarf þrjá leiki til að fagna Íslandsmeistaratitlinum.

Share this article