Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Njarðvík valtaði yfir Hauka og er Íslandsmeistari

Read Full Article →

Njarðvík er Íslandsmeistari kvenna í körfubolta eftir stórsigur gegn Haukum, 95-68. Liðin mættust fyrir ári síðan í úrslitaeinvíginu og þar höfðu Haukar betur. Njarðvíkingar voru staðráðnar í að hefna fyrir sig og unnu einvígið 3-1. Sigurinn var í raun aldrei í hættu. Liðið náði mest í nokkur skipti yfir 20 stiga forskoti í seinni hálfleik í Njarðvík. Njarðvík fór mun betur af stað Njarðvík fór örlítið betur af stað og leiddi 12-5 þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Sóknarleikur Hauka var stirðbusalegur og leiddi Njarðvík 18-10 eftir fyrsta leikhluta. Haukar náðu að minnka muninn í sjö stig Heimakonur voru svo áfram skrefi á undan og leiddu 28-15 þegar sjö mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta. Haukar náðu sér örlítið meira á strik það sem eftir var leikhlutans og náðu að minnka muninn í 47-40 í hálfleik. Haukar sluppu í raun með skrekkinn í fyrri hálfleik þar sem Njarðvíkingar hættu að hitta skot sín. Dani, Dani, Dani Ef Haukar höfðu einhverjar vonir í upphafi seinni hálfleiks slökkti landsliðskonan Danielle Rodriguez samstundis í þeim. Dani setti tóninn strax í upphafi seinni hálfleiks er hún setti þrist og kom Njarðvík í tíu stiga forskot, 50-40. Hún bætti við fjórum stigum í næstu tveimur sóknum er hún setti erfið skot niður. Hún var því með fyrstu sjö stig þeirra grænu í seinni hálfleiknum. Allt gekk upp Munurinn varð svo fimmtán stig, 66-51, þegar þriðji leikhluti var hálfnaður. Það gekk allt upp hjá Njarðvík á þessum kafla, bæði varnarlega og sóknarlega. Brittany Dinkins setti rýtingsþrist og heimakonur náðu 20 stiga forskoti, 71-51, þegar þrjár mínútur voru eftir af þriðja leikhluta. Munurinn var 77-56 eftir þriðja leikhluta. Keyrðu áfram á Hauka Njarðvíkingar slökuðu ekkert á klónni í fjórða leikhluta. Hulda María Agnarsdóttir setti niður þrist sem gerði endanlega út um leikinn. Njarðvík leiddi þá 85-63 þegar fimm mínútur voru til stefnu. Kirsuberið á kökuna var svo þristur Dani sem fór í spjaldið og ofan í. Hún gat ekki annað en hlegið að þessu og staðan var þá 91-67, þegar tvær mínútur lifðu leiks. Danielle og Brittany leiddu sóknina Danielle Rodriguez og Brittany Dinkins voru svakalegar sóknarlega. Danielle var stigahæst og Brittany var með þrefalda tvenna. Brittany sló einnig stigametið í úrslitaeinvígi og þurfti ekki einu sinni oddaleik til. Danielle: 36 stig, 9 fráköst, 7 stoðsendingar Brittany: 25 stig, 11 fráköst, 11 stoðsendingar. Næstar komu Hulda María Agnarsdóttir og Paulina Hersler með níu stig.

Share this article