Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stór floti rússneska skipa í karfa á Reykjaneshrygg

Read Full Article →

Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, fór í hefðbundið gæsluflug á Reykjaneshrygg á föstudag, bæði til að fylgjast með skipum í íslensku efnahagslögsögunni en einnig til að kanna hvort þau erlendu fiskiskip sem voru á veiðum suðvestur af landinu væru réttu megin við lögsögumörkin. TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, tekur á loft. Tíu rússnesk fiskiskip reyndust að úthafskarfaveiðum rétt við lögsögumörkin en öll voru utan íslensku efnahagslögsögunnar. Um helgina bættist eitt skip í hópinn. Á undanförnum árum hefur verið algengt að erlend fiskiskip stundi úthafskarfaveiðar á þessum slóðum á Reykjaneshrygg en í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er vel fylgst með að veiðarnar fari fram utan íslenskrar lögsögu auk þess sem áhöfnin á TF-SIF flýgur reglulega yfir svæðið til eftirlits. Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hefur ráðlagt að engar veiðar á djúpkarfa verði stundaðar á Reykjaneshrygg vegna veikrar stöðu stofnsins. Vegna þessa innleiddi Norðaustur-Atlantshafsveiðiráðið (NEAFC) veiðibann árið 2020 og svo í nóvember 2022 var samþykkt bann við löndun, umskipun og þjónustu við skip sem stunda djúpkarfaveiðar á þessu svæði. Rússar eru þeir einu sem stunda veiðarnar þvert á bannið. Ef blaðamanni skjöplast ekki er skipið á myndinni efst í fréttinni rússneski verksmiðjutogarinn Kapitan Sokolov, smíðaður fyrir Norebo útgerðarrisann rússneska eftir teikningum íslensku skipahönnunarstofunnar Nautic. Í skipinu eru vindur og kranar frá Naust Marine og Nautic Russia, dótturfyrirtæki Nautic, annaðist innanskipshönnun. Kapitan Sokolov var fyrsta skipið í sex skipa raðsmíði Severnaya skipasmíðastöðvarinnar í Pétursborg fyrir Norebo. Það er 81,6 metra á lengd og ber 1.500 tonn af fiskafurðum, þar með talið fiskimjöli, niðursoðnum fisk og fleiru. Í áhöfn eru allt að 80 manns þegar fiskvinnslufólk er talið með.

Share this article