Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 12 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga 26 milljónir rúmmetrar af kviku undir Svartsengi Þorgils Jónsson Aflögun og landris heldur áfram við Svartsengi. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að landris nemi áfram um tveimur sentimetrum á mánuði. Landris og kvikusöfnun á svæðinu mælast með svipuðu sniði og síðustu vikur og samkvæmt líkanreikningum hafa tæplega 26 milljónir rúmmetra af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá því síðasta gos hófst, 16. júlí í fyrra. Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní nema breytingar verði á virkninni. Guðmundur Bergkvist Fyrir 32 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Menning Hinn fullkomni víkingur Málfræðingurinn Haukur Þorgeirsson fjallar um forna ljóðlist í Víðsjá á Rás 1. Ímyndarsköpun skálda hins sigursæla Eiriks Jarls eru viðfangsefni þessa pistils. Fyrir 36 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Mun fleiri teknir fyrir að gera aðra út í vændi 160 vændiskaupamál hafa komið til rannsóknar lögreglu hérlendis frá 2020. Í fyrra voru ellefu grunaðir um að græða á vændi annarra, talsvert fleiri en árin á undan. Sviðsstjóri á ákærusviði telur þetta skýrast af auknu bolmagni í rannsóknum á vændi. Fyrir 38 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Popptónlist Rauðarok hjá Aldísi Fjólu Söngkonan Aldís Fjóla var að senda frá sér nýtt lag með Halldóri Sveinssyni. Hún sendi hlustendum Popplands kveðju beint úr sauðburði á Borgarfirði eystra. Fyrir 42 mínútumÍÞRÓTTIR Handbolti Katrín Tinna til Danmerkur Gunnar Birgisson Íslenska landsliðskonan og ÍR-ingurinn Katrín Tinna Jensdóttir hefur samið við HH Elite í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Þetta kemur fram í færslu ÍR Handbolta á samfélagsmiðlum en þar er Katrínu þakkað fyrir vel unnin störf hjá ÍR hvar hún hefur leikið frá árinu 2024. Katrín er línumaður og einnig öflugur varnarmaður. HH Elite er staðsett í Horsens og endaði í 7. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og datt snemma út úr úrslitakeppninni. Katrín Tinna er öflugur línumaður RÚV / Mummi Lú Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkar mjög ósammála um framtíð Borgarlínu Skiptar skoðanir eru meðal flokka um samgöngumál á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt kosningaprófi RÚV. Flestir flokkar styðja við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins en skiptast í fylkingar um Borgarlínu og Suðurlandsbraut. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Instructure borgaði hökkurum fyrir að dreifa ekki gögnum úr Canvas Fyrirtækið sem rekur Canvas-kerfið borgaði hökkurum fyrir að dreifa ekki gögnum sem þeir komust yfir. Sviðsstjóri kennslusviðs HÍ segir að nemendur og starfsfólk geti haldið áfram að nota kerfið. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Mesta verðbólga í þrjú ár Brynjólfur Þór Guðmundsson Verðbólgan í Bandaríkjunum var 3,8 prósent í apríl og hefur ekki verið meiri í þrjú ár. Verðbólgan jókst um hálft prósentustig milli mánaða. Aukin verðbólga er ekki síst rekin til stríðsins við Íran og áhrifa þess á olíudreifingu frá Persaflóa. Vísitala orkuverðs í Bandaríkjunum hækkaði um 17,9 prósent milli ára. Það er mesta hækkun allra undirflokka verðbólgunnar. Maður fyllir á tank flutningabíls í Texas í Bandaríkjunum. EPA / FAZRY ISMAIL Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Handbolti Báðir leikirnir gegn Egyptum sýndir á RÚV Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Egyptum í tveimur vináttuleikjum í vikunni. Leikið verður í Kaíró á morgun og laugardaginn. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grímsnes- og Grafningshreppur Stefna að byggingu 700 fermetra atvinnuhúsnæðis í Grímsnesi Fasteignaþróunarfélagið Laufdal ehf. og Drangar hf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf vegna uppbyggingar verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Uppbyggingin felur meðal annars í sér byggingu 700 fermetra atvinnuhúsnæðis. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hlaup Hljóp 742,6 kílómetra á tíu dögum Hlaupadrottningin Karlotta Ósk Óskarsdóttir sló þrjú Íslandsmet þegar hún hljóp tæplega 750 kílómetra í tíu daga hlaupi í Búlgaríu. Hún hefur slegið sjö Íslandsmet á níu mánuðum. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál „Þarna gengu menn bara of langt“ Framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir ekki forsvaranlegt að valda dýrum dauða og þjáningum í mótmælum. Tíu grísir drápust og fjölmörg dýr eru hölt og skrámuð eftir að brotist var inn í svínabú fyrirtækisins og svínum sleppt út. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Sakar Icelandair um að sniðganga félagið Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna sakar Icelandair um að reyna að sniðganga félagið. Og ekki í fyrsta skipti. Icelandair boðar flugmenn til fundar á föstudag án milligöngu FÍA. Hann þvertekur fyrir að flugmenn séu í óformlegu verkfalli. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Helgi Bjartur áfrýjar til Landsréttar Helgi Bjartur Þorvarðarson, sem var dæmdur í 12 mánaða fangelsi í síðasta mánuði fyrir að brjóta kynferðislega gegn 10 ára dreng og húsbrot, hefur áfrýjað dóminum. Ákæruvaldið skoðaði líka að áfrýja. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Varasamir vindar undir Eyjafjöllum og í Öræfum Brynjólfur Þór Guðmundsson Útlit er fyrir hvassa vindstrengi undir Eyjafjöllum og í Öræfum síðdegis og fram á kvöld. Vakthafandi veðurfræðingur varar við að vindurinn verði það ákafur að hann reynist varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Norðlæg átt verður ríkjandi í dag og víðast verður vindstyrkurinn á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Mun hvassara verður þó syðst og austan Öræfa síðdegis, samkvæmt veðurspánni. Bílar á ferð undir Eyjafjöllum. Safnmynd. Víðir Hólm Ólafsson Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spá ýmist minnkandi eða óbreyttri verðbólgu Íslandsbanki spáir óbreyttri verðbólgu í maí en Landsbankinn telur að hún fari undir fimm prósent í fyrsta skipti á árinu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Tíu grísir drápust eftir innbrot í svínabú Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í fyrrinótt. Skemmdir voru unnar á skrifstofu og svínahúsum búsins með þeim afleiðingum að dýr gengu laus og sum drápust. Málið hefur verið kært til lögreglu og er nú til rannsóknar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Fjárfestingar og þróun sett á bið vegna óvissu Rúmlega 400 milljóna króna tap var á rekstri Reykjalundar í fyrra. Stjórnendur segja mikla óvissu hafa skapast meðan beðið sé nýrrar endurhæfingarstefnu stjórnvalda. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Nýliðarnir í þjálfarakrísu mánuði fyrir mót Það gengur á ýmsu í herbúðum Curaçao sem eru að keppa á heimsmeistaramótinu í fótbolta í fyrsta sinn í sumar. Fred Rutten þjálfari liðsins sagði starfi sínu lausu í gær. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Þrír undirráðherrar hafa yfirgefið stjórn Starmers Yfir 80 þingmenn breska Verkamannaflokksins hvetja Starmer til að segja af sér Þrír undirráðherrar hafa hætt í ríkisstjórn Starmers í morgun Eftir slakt gengi Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningum á dögunum hefur þrýstingur á leiðtoga flokksins aukist Fyrir kosningarnar var kraumandi óánægja með störf Starmers Starmer segist ætla að sitja áfram í embætti og ítrekaði á ríkisstjórnarfundi í morgun að hann tæki ábyrgð á slöku gengi í kosningum fyrir helgi FRÉTTAVAKT Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fylgjast með framkvæmd kosninganna Brynjólfur Þór Guðmundsson Fimmtán manna sendinefnd Evrópuráðsins kemur til Íslands á morgun til að fylgjast með sveitarstjórnarkosningunum á laugardag. Nefndinni verður skipt í sjö hópa á laugardag sem fara vítt og breitt um landið og fylgjast með því sem fram fer á kjörstöðum. Sendinefndin verður hér frá miðvikudegi til sunnudags og skilar af sér skýrslu um framkvæmd kosninganna. Auk þess að fara á kjörstaði ræða nefndarmenn við embættismenn og fulltrúa félagasamtaka. Landskjörstjórn segist í tilkynningu fagna komu kosningaeftirlitsmannanna og telur að heimsóknir sem þessar skapi mikilvægan lærdóm. Nýju kjörkassarnir sem verða notaðir um helgina. RÚV / Ragnar Visage Fréttin var uppfærð með viðbrögðum landskjörstjórnar. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Vildu hátíð þar sem hinseginleikinn væri sjálfsagður: Fór fram úr björtustu vonum Hjónin Eva Rún og Halla Þórlaug standa í annað sinn fyrir bókmenntahátíðinni Queer Situations eftir vel heppnað fyrra skipti. Þeim þykir mikilvægt að birtingarmynd hinseginleikans fjölbreytt og að komið sé í veg fyrir stigveldi innan samfélagsins. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Umdeildur sendiherra Trumps á Íslandi færist nær staðfestingu Billy Long færðist skrefi nær staðfestingu sem sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í gærkvöld. Long var ríkisskattstjóri um stund en var vikið úr því starfi og boðið starf sendiherra á Íslandi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Vill kanna reglur um samfélagsmiðlanotkun barna Brynjólfur Þór Guðmundsson Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir líklegt að nýjar reglur um samfélagsmiðlanotkun barna verði kynntar í sumar. Von der Leyen ávarpaði ráðstefnu um gervigreind og börn í Kaupmannahöfn, höfuðborg Danmerkur, í dag. Hún sagði að sérfræðingahópur hefði verið beðinn um að leggja fram tillögur um hvað ætti að gera til að vernda börn á samfélagsmiðlum. Svo gæti farið að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynni tillögur að löggjöf um samfélagsmiðla strax í sumar, sagði von der Leyen. Ursula von der Leyen. AP / Anthony Pizzoferrato Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Beittu gísla sína miklu kynferðisofbeldi og pyntingum Hamas og bandamenn þeirra beittu gísla sína kerfisbundnu og umfangsmiklu kynferðisofbeldi eftir árásirnar á Ísrael 7. október 2023. Niðurstöður óháðrar rannsóknarnefndar leiða þetta í ljós. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur Rannsaka strok seiða úr landeldi í Kelduhverfi Laxaseiði sem sluppu úr landeldi í Kelduhverfi í Norðurþingi voru líklega orðin sjógöngufær. MAST rannsakar strokið og bíður ná