Innlent | mbl | 12.5.2026 | 19:30 Schengen: „Við óttuðumst það sem varð“ Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Engin úrræði og engin ábyrgð Ameríkanar óttast að vera ekki velkomnir Fæstir fatta hvað þetta verður stórt Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið » Fleiri tengdar fréttir „Við í lögreglunni vorum algjörlega á móti því. Við óttuðumst það sem varð, að landamærin myndu opnast,“ segir Geir Jón Þórisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn, þegar hann er spurður um þá ákvörðun í byrjun aldar að Ísland gekk inn í Schengen-samstarfið. Schengen-samstarfið gengur út á að afnumið var persónubundið eftirlit á innri landamærum Schengen-landanna og tryggja átti aukna samvinnu evrópskra lögregluliða til að tryggja öryggi borgara á svæðinu. Í dag nær þetta samstarf til 27 ríkja, flestra ríkja ESB og EES-landanna, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. Geir Jón Þórisson er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag og ræðir feril sinn í lögreglunni sem spannar 37 ár, bæði í Vestmannaeyjum og einnig í höfuðborginni. Eitt af fjölmörgum umræðuefnum var sú ákvörðun íslenskra stjórnvalda að ganga inn í Schengen-samstarfið. Þegar málið var til umfjöllunar á Alþingi á sínum tíma segir Geir Jón að aðeins tveir þingmenn hafi haft fyrir því að leita álits hjá lögreglunni. „Þetta var svo samþykkt og ein ástæðan var sú að með þessu fengi lögreglan meira samstarf við Evrópulögregluna, með því að vera í Schengen. Það voru rök. En ég fann aldrei skort á því áður en við gengum í Schengen að fá ákveðnar upplýsingar og vilja til samstarfs hjá lögregluliðum til dæmis á Norðurlöndum. Ég fór reglulega á fundi, ár eftir ár. Það eina sem vantaði upp á, sem öll Norðurlöndin höfðu en ekki við, voru forvirkar rannsóknir, að rannsaka áður en brot er framið. Þeir gátu rannsakað brotið. Þeir vissu og sögðu okkur frá hópum sem væru að horfa til Íslands. Á þeim árum trúði ég því ekki. Hvað ættu þeir að vera að þvælast hingað? Svo þegar við vorum komin í Schengen þá var þetta komið hingað,“ viðurkennir Geir Jón. Máttu ekki afhenda Íslendingunum upplýsingar Hann rifjar upp fund sem hann sat með yfirmönnum lögreglu á Norðurlöndum og þar barst í tal að finnska lögreglan hefði upplýsingar um að glæpahópur væri að hugsa sér hreyfings til Íslands. Þessi fundur var haldinn í tengslum við ráðstefnu um glæpagengi á Norðurlöndum. Finnski yfirmaðurinn sagði við Geir Jón að hann gæti ekki látið Íslendingana fá þessar upplýsingar. „Geturðu ekki laumað þessu til mín?“ spurði hann. „Nei. Ég má það ekki. Þá brýt ég reglurnar,“ svaraði sá finnski. „Þetta fannst mér verst. Það hefði þurft að byrja á því að lögreglan fengi forvirkar rannsóknarheimildir eins og á Norðurlöndum, áður en farið var inn í Schengen. Það hefði verið, það er ekki komið enn.“ Aðspurður hvað andstæðingar þess að lögreglan fái slíkar heimildir óttist segist hann ekki átta sig á því. Hann leggur mikilvægi þessa að jöfnu við það þegar lögreglan í samstarfi við Reykjavíkurborg fékk að setja upp eftirlitsmyndavélar í miðborginni. „Við vorum að setja upp þessar vélar til að hjálpa okkur við löggæslu í miðborginni sem að náttúrulega logaði um hverja einustu helgi. Þá kom fólk og sagði, sem var á móti eftirliti og að lögregla hefði eftirlit, að þarna væri verið að njósna þá um fólk. Njósna um fólk sem færi á veitingastaði, hvort það færi með maka sínum eða einhverjum öðrum. Ég sagði bara við þá: Við hefðum þá ekkert annað að gera ef við ætluðum að fylgjast með því,“ segir fyrrverandi yfirlögregluþjónninn hávaxni. Hann segir svipað gilda um hugmyndir andstæðinga forvirkra rannsóknarheimilda. Þeir óttist að það eigi að fara að njósna um almenna borgara. Hann vísar því algerlega á bug. „Við höfum ákveðnar upplýsingar. Við höfðum það þá og ég veit að þeir hafa það enn í dag, um ákveðna hópa, aðila sem væru að hugleiða það að gera eitthvað. Þá hópa og þá einstaklinga þarf að fylgjast með og rannsaka áður en að verður einhver stór glæpur eða stórt afbrot.“ Er þetta svona ennþá? „Þetta er svona ennþá. Sjáðu myndavélarnar. Við gátum upplýst morð í miðborginni og upplýst um margar hnífsstungur og ofbeldisfulla atburði.“ Geir Jón ræðir fyrri tíma í lögreglunni í Dagmálum dagsins og einnig þá alvarlegu stöðu sem íslenskt lögreglulið er að takast á við í dag. Áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á viðtalið við Geir Jón Þórisson með því að smella á linkinn hér að neðan. Kylfulaus með kærleikann að vopni í 37 ár Tengdar fréttir Dagmál Engin úrræði og engin ábyrgð Ameríkanar óttast að vera ekki velkomnir Fæstir fatta hvað þetta verður stórt Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Vilja þjóðarleikvang fyrir golfið » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 42:37 Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð Schengen: „Við óttuðumst það sem varð“ „Þegar pabbi gerir morgunmat“ „Jákvætt að menn séu að ræða saman“ Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Umræðan vekur ugg meðal lækna Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Umræðan vekur ugg meðal lækna Aðkoman vægast sagt ömurleg Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 42:37 Valur Íslandsmeistari fjórða árið í röð Schengen: „Við óttuðumst það sem varð“ „Þegar pabbi gerir morgunmat“ „Jákvætt að menn séu að ræða saman“ Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt bendir til óformlegra verkfallsaðgerða „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Leynd yfir samskiptum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Umræðan vekur ugg meðal lækna Aðkoman vægast sagt ömurleg Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“