- What: Icelandair and European airlines are concerned about the timing of the full implementation of the new Schengen entry system.
- Impact: The new system could cause disruptions during the summer travel season.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 22:07 Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn Lögregluembætti sögðu í desember að fjölga þyrfti landamæravörðum vegna nýs kerfis Schengen-samstarfsins og hjá Icelandair ríkja áhyggjur af tímasetningu fullrar innleiðingar þess í apríl. Morgunblaðið/Karítas „Þetta lítur allt í lagi út. Hins vegar deilum við þeim áhyggjum Samtaka evrópskra flugfélaga [A4E] og Alþjóðasamtaka flugfélaga [IATA] sem þau hafa lýst yfir, að tímasetning fullrar innleiðingar er ekki sú heppilegasta fyrir reksturinn.“ Þetta segir Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, í samtali við mbl.is um innleiðingu nýs komukerfis farþega inn á Schengen-svæðið sem mbl.is fjallaði um í gær. Hefur kerfið verið innleitt í áföngum síðan í október en þeirri innleiðingu lýkur í apríl. Frétt af mbl.is Krefjast aðgerða vegna nýs kerfis Schengen-ríkja Hafa evrópsk flugfélög varað við því að nýja komukerfið muni valda alvarlegum röskunum yfir háannatímann í sumar og kalla eftir aðgerðum til að leysa vandann sem þegar er sagður valda töfum. Fari eitthvað úrskeiðis... Arnar Már vísar hér að ofan til sameiginlegs bréfs Evrópudeildar Alþjóðasamtaka flugvalla, ACI, og áðurnefndra A4E og IATA þar sem segir að verði ekki gripið til tafarlausra aðgerða til að tryggja nægjanlegan sveigjanleika sé raunveruleg hætta á alvarlegum truflunum yfir háannatímann í sumar, þar sem biðraðir gætu náð fjórum klukkustundum eða jafnvel lengri tíma. Bendir Arnar Már á að sumarið sé háannatíminn og fari eitthvað úrskeiðis komi mestu áhrifin fram þá. Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, bendir á að tengifarþegar séu viðkvæmasti hópur viðskiptavina Icelandair en flugfélagið óttast að nýja komukerfið geti tafið för þeirra um flugvöllinn í Keflavík. Ljósmynd/Icelandair „Full innleiðing í apríl stendur enn til og við erum tengiflugfélag þannig að biðraðir og tafir, ef eitthvað brotnar í keðjunni, hafa áhrif á leiðakerfið okkar. Þar liggja okkar áhyggjur, tengitíminn er stuttur í Keflavík og áhyggjuefni sé honum ógnað. Það á ekki að vera þannig og ég býst ekki við að það verði þannig en í þessum innleiðingarfasa er okkar viðkvæmasti hópur, tengifarþegar, sem eru búnir að standa fyrir utan þessa innleiðingu,“ útskýrir Arnar Már. Eftir fulla innleiðingu fari sá hópur hins vegar í gegnum nýja komukerfið eins og aðrir og hafi þá ekki ótakmarkaðan tíma þar sem tengiflug á áfangastað bíður. Frestun fram á haust æskileg Tilgangur nýja komukerfisins er að gera yfirvöld betur í stakk búin til að koma auga á þá farþega sem dvalið hafa lengur innan Schengen en þeim er heimilt auk þeirra sem neitað hefur verið um landgöngu og líkir Arnar Már kerfinu við ferðaheimildakerfið ESTA sem bandarísk innflytjendayfirvöld notast við. „Þótt þetta sé ekki alveg eins er þetta á svipuðum stað og þetta þyngir auðvitað ferlið,“ segir hann til útskýringar. Mun full innleiðing kerfisins annaðhvort skella á ykkur strax eða alls ekki, er þetta eitthvað sem þið munið sjá strax og henni er lokið? „Nei, það gerir það ekki, við munum ekki sjá almennilega hvernig þetta virkar fyrr en í háannavertíðinni þegar mesti fjöldinn er að fara í gegnum stöðina þannig að þetta mun „trappast“ upp og auðvitað myndum við helst vilja sjá þetta fært inn í haustið þegar við höfum betri tíma með færri farþegum og minna álagi þegar keyrt er á þessu hundrað prósent hlutfalli,“ segir Arnar Már Magnússon, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair, um innleiðingu nýja komukerfisins á Schengen-svæðið sem enn sem komið er stendur fyrir dyrum á versta tíma fyrir flugfélögin, við upphaf hábjargræðistíma þeirra. Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn „Þú drapst stóra bróður minn“ Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Prófa einfaldari leið til að greina alzheimers Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Íslendingar hvattir til að huga að heimför Framkvæmdir gætu kostað milljarða „Heimsmeistarar í sjálfsmörkum“ „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins Stúlkan fundin heil á húfi „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Gekk um 50.000 kílómetra á 12 árum Tengifarþegar viðkvæmasti hópurinn „Þú drapst stóra bróður minn“ Segir stöðuna verri en eftir fall Sovétríkjanna Prófa einfaldari leið til að greina alzheimers Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert „Við tökum þessi orð mjög alvarlega“ Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Vonast eftir öðru tækifæri frá Íslendingum 50-60 metra rof á Reynisfjöru Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins Stúlkan fundin heil á húfi „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson