Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kjara­viðræðum vísað til ríkissátta­semjara

Read Full Article →

Kjaraviðræðum Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Flugvirkjafélag Íslands hefur verið vísað til ríkissáttasemjara. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu flugfélagsins vegna uppgjörs fyrsta ársfjórðungs. Kjarasamningar flugmanna frá árinu 2020 hafa verið lausir síðan í lok september síðastliðins. Um áramótin síðustu losnuðu svo samningar Flugvirkjafélags Íslands við Icelandair. Þá losnuðu samningar Flugfreyjufélag Íslands við Icelandair í september síðastliðnum. Í afkomutilkynningu Icelandair segir að viðræðum við Flugfreyjufélagið miði áfram. Sjá einnig 5,6 milljarða tap hjá Icelandair en 21% tekju­vöxtur Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í umræddri tilkynningu að mikilvægt sé að tryggja fyrirsjáanleika til lengri tíma í sem flestum rekstrarþáttum félagsins, svo sem kjarasamningum sem eru nú lausir, m.a. vegna ýmissa ytri aðstæðna. „Áherslurnar í samningaviðræðum við flugstéttirnar eru að félagið geti áfram boðið eftirsótt störf í flugrekstri á Íslandi með því að tryggja samkeppnishæfni félagsins, styðja við vöxt leiðakerfisins og flotans, ásamt því að auka rekstrarlegan sveigjanleika,“ segir Bogi. Viðskiptablaðið fjallaði um kjaraviðræður Icelandair við flugmenn í lok mars. Samninganefndir Icelandair og FÍA funduðu þá formlega í fyrsta sinn í talsverðan tíma en deilur vegna starfslokarétts flugmanna höfðu sett strik í reikninginn. Nokkrum dögum áður hafði verið greint frá því að Icelandair og FÍA hefðu náð saman um þennan starfslokarétt og hófst hefðbundin kjarasamningsgerð í kjölfarið. Sjá einnig Loks að komast skriður á viðræður

Share this article