Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kjaradeilu flugmanna og Icelandair vísað til ríkissáttasemjara

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjara­deilu flug­manna og Ic­elandair vísað til rík­is­sátta­semj­ara Brynjólfur Þór Guðmundsson Kjaradeila flugmanna hjá Icelandair er komin á borð ríkissáttasemjara. Samtök atvinnulífsins ákváðu fyrir hönd flugfélagsins að vísa samningaviðræðum til ríkissáttasemjara. Samningur SA og Icelandair við Félag íslenskra atvinnuflugmanna rann út í lok september. Ekki hefur náðst samkomulag um nýjan samning. Eftir að málinu var vísað áfram er ljóst að næstu skref verða á forræði ríkissáttasemjara sem stýrir viðræðunum hér eftir. Þota Icelandair. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Borgarbyggð Þrjú af fjórum fram­boð­um í Borg­ar­byggð al­far­ið á móti upp­bygg­ingu vind­orku­vers Þrír af fjórum flokkum sem bjóða fram í Borgarbyggð eru á móti uppbyggingu vindorkuvers í sveitarfélaginu. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Lyftingar Erla sló per­sónu­legt met á EM Þórbergur Ernir Hlynsson og Erla Ágústsdóttir kepptu á EM í ólympískum lyftingum í Batumi í Georgíu. Erla bætti þá sitt persónulega met í samanlagðri þyngd um tvö kíló. Þórbergur gerði vel og endar að líkindum í 21. sæti. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjónvarp Djamm­vænn glaðn­ing­ur leynd­ist í af­mæl­isköku Vik­unn­ar Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir færði Gísla Marteini Baldurssyni veglega köku í tilefni þrjúhundruðasta þáttar Vikunnar. Kakan var þó ekki öll þar sem hún var séð. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Palestína Kjör­sókn dræm í fyrstu kosn­ing­un­um síðan stríð­ið á Gaza hófst Palestínumenn á Vesturbakkanum og hluta Gaza ganga að kjörborðinu í dag og kjósa til sveitarstjórnar. Kjörsókn hefur verið dræm í morgun en rúmlega milljón er á kjörskrá. Þetta eru fyrstu kosningarnar á Gaza síðan 2006. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Svið­setja rútu­slys á Bakka­flug­velli Hópslysaæfing fer fram á Bakkaflugvelli í Landeyjum í dag. Þar er umfangsmikið rútuslys sett á svið. Varðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi segir æfingar sem þessa afar mikilvægar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Óljóst hvort Banda­ríkja­menn og Íranar fundi í dag Alls er óljóst hvort Bandaríkjamenn og Íranar hittist til friðarviðræðna í Pakistan í dag. Utanríkisráðherra Írans fundaði með yfirmanni pakistanska hersins í morgun. Átta vikur eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stærst­ur í Kópa­vogi Sjálfstæðisflokkurinn héldi sínum fjórum bæjarfulltrúum í Kópavogi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu. Meirihluti þeirra og Framsóknar myndi falla. Samfylkingin er með þrefalt meira fylgi en í síðustu kosningum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lög­brot að selja hunang með stinn­ing­ar­lyfj­um að mati for­stjóra Lyfja­stofn­un­ar Fólk stofnar heilsu sinni í hættu með því að kaupa ólögleg lyf á netinu, segir forstjóri Lyfjastofnunar. Hún segir lög brotin með sölu á hunangi með stinningarlyfjum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Fjórð­ungi færri fá fjár­hags­að­stoð en áður 60 prósent þeirra sem þiggja fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg eru atvinnulaus. Tveir af hverjum þremur sem þiggja fjárhagsaðstoð eru erlendir ríkisborgarar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Vill skil­greina sigl­inga­leið­ina til Vest­manna­eyja sem „þjóð­ferju­leið“ Þingmaður Framsóknar óskar eftir því að innviðaráðherra geri grein fyrir aðgerðum næstu vikna og mánaða vegna Landeyjahafnar, viðhalds Herjólfs og varaskipakosts. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Grikkland Vilja vernda við­kvæm­ar strend­ur fyrir ágangi ferða­manna Grísk stjórnvöld hafa uppfært lista yfir þau strandsvæði sem ber að halda í sínu náttúrlega ástandi í friði fyrir sívaxandi ágangi ferðamanna. Sérstaklega er horft til svæða með fagurfræðilegt eða vistfræðilegt gildi. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Erki­bisk­up­inn leyfir kjöt á grill­ið á föstu­dag­inn Formlegt upphaf grilltímabilsins í Póllandi fellur á föstudag þetta árið. Erkibiskupinn í Varsjá ákvað að veita undanþágu frá banni við kjötneyslu svo kaþólikkar þyrftu ekki að fara á mis við tímamótin. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Grindavíkurbær Engin viðmið eða skil­yrði um skóla­hald í Grinda­vík Bæjarstjórn Grindavíkur er staðráðin í að hefja skólastarf í bænum í haust – þvert á álit ríkisstjórnarinnar. Hætta vegna jarðhræringa er enn metin töluverð í bænum en íbúar segja rök um að skólastarf þar yrði hættulegt ekki standast. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Ís­lensk­ur brúðu­söng­leik­ur frum­sýnd­ur í Sam­komu­hús­inu Nýi brúðusöngleikurinn Rót verður frumsýndur í Samkomuhúsinu á Akureyri á laugardaginn. Rót er fjölskyldusýning um að alast upp á mörkum ólíkra heima Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fjórði mað­ur­inn í gæslu­varð­hald og hús­leit gerð hjá tveim­ur Einn til viðbótar hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald, grunaður um smygl á amfetamínbasa til landsins með Dettifossi. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fá ekki að kalla þrjá dómara til að bera vitni Landsréttur hefur hafnað kröfu Margrétar Friðriksdóttur og lögmanns hennar um að þrír dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur beri vitni í sakamáli gegn henni. Hún er ákærð fyrir ærumeiðingar og rógburð í garð dómara sem dæmdi hana. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp Ragnar og Yrsa skrifa saman Hvernig verður góð glæpasaga að góðum glæpaþáttum í sjónvarpinu? Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir ræddu glæpaþætti í Miðstöðinni á RÚV. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Í dag: Glódís spilar í und­an­úr­slit­um Meist­ara­deild­ar­inn­ar Glódís Perla Viggósdóttir og Bayern München mæta Barcelona í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildainnar í dag. Glódís og félagar byrja á heimavelli og leikið verður á Allianz Arena. Leikurinn verður sýndur beint á RÚV. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Blotn­ar aðeins suð­vest­an til en bjart­ara norð­aust­an til Víðast hvar verður hæglætisveður í dag. Útlit er fyrir vindstrengi á norðanverðu Snæfellsnesi. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Harð­neskju­leg­ar að­stæð­ur á víg­lín­unni Háttsettur liðsforingi hefur verið rekinn úr í úkraínska hernum eftir að ljósmyndir birtust á samfélagsmiðlum af horuðum hermönnum sem hafa búið við mikinn matar- og vatnsskort á víglínunni. Mennirnir voru lengst án matar í 17 daga. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist „Blautt, ka­ot­ískt og ógeðs­lega gaman“ Harðkjarnapönksveitin Gaddavír frá Akranesi hefur leikið á tveimur stórum þungarokkshátíðum síðustu mánuði og var fulltrúi Íslands í hljómsveitakeppni á Wacken Open Air í Þýskalandi. Rætur hljómsveitarinnar sjást vel í framgöngu hennar á sviði. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Palestína Sveita­stjórn­ar­kosn­ing­ar á Vest­ur­bakk­an­um og í Deir el-Balah á Gaza í dag Um 1,5 milljón manna er á kjörskrá á Vesturbakkanum og um 70.000 kjósendur eru í borginni Deir el-Balah á Gaza. Þetta eru fyrstu kosningarnar síðan stríðið braust út á Gaza milli Hamas og Ísraels í október 2023. 25. apríl 2026 kl. 3:50ERLENDAR FRÉTTIR Mið- og Suður-Ameríka Tveir drepn­ir í að­gerð­um banda­ríska hers­ins gegn meint­um fíkni­efna­smygl­bát­um Bandaríski herinn hefur gert að minnsta kosti sjö sams konar árásir í apríl. Alls hafa 182 manns verið drepnir í aðgerðum bandaríska hersins gegn meintum fíkniefnasmyglurum. 25. apríl 2026 kl. 2:44ERLENDAR FRÉTTIR Kanada For­stjóri OpenAI biður íbúa Tumbl­er Ridge af­sök­un­ar Sam Altman, forstjóri OpenAI, harmar að fyrirtækið hafi ekki tilkynnt um ChatGPT-reikning Jesse Van Rootselaar, sem skaut átta til bana í Tumbler Ridge í febrúar. Kanadísk stjórnvöld fordæmdu aðgerðarleysi OpenAI. 25. apríl 2026 kl. 1:22MENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndir Ís­lensk­ur kvik­mynda­töku­mað­ur vann Gull­ruten-verð­laun fyrir bestu kvik­mynda­töku Brynja Dögg Friðriksdóttir Jakob hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndatökur bæði hérlendis og í Noregi. Owen Fiene Íslenski kvikmyndatökumaðurinn Jakob Ingason vann til verðlauna fyrir bestu kvikmyndatöku á norsku sjónvarpsverðlaunahátíðinni Gullruten sem veitt voru á fimmtudaginn. Verðlaunin fékk Jakob fyrir kvikmyndatöku fyrir þáttaröðina Heajastallan sem nefnist Brúðkaupsveislan á íslensku og er aðgengileg í Spilara RÚV. Þættirnir eru norskir og voru teknir upp í Lapplandi í Norður-Noregi. Jakob hefur verið kvikmyndatökumaður í mörg ár og starfað bæði í Noregi og á Íslandi við fjölda kvikmynda og sjónvarpsþáttaraða. Hann stjórnaði til að mynda kvikmyndatöku í kvikmyndinni Ég man þig og sjónvarpsþáttunum Afturelding. 25. apríl 2026 kl. 0:27ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína 13 drepn­ir í árásum Ísra­els­hers á Gaza Vopnahlé hefur verið í gildi frá 7. október. Að minnsta kosti 792 hafa verið drepnir á Gaza frá því að vopnahléið hófst. 24. apríl 2026 kl. 22:35ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Breiv­ik sækir um reynslu­lausn eitt skipt­ið enn Norski hryðjuverkamaðurinn sem myrti 77 manns í Útey og miðborg Oslóar í júlí 2011 hefur sótt um reynslulausn einu sinni enn. Hann hlaut þyngsta fangelsisdóm sem lög leyfa sem lengja má meðan dómstólar telja hann hættulegan umhverfi sínu. 24. apríl 2026 kl. 22:27ÍÞRÓTTIR Körfubolti Allt jafnt hjá Haukum og Kefla­vík Anna Sigrún Davíðsdóttir Keflavík tók á móti Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Bónusdeildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar unnu fyrsta leikinn en Keflavík hafði betur í kvöld. Staðan er því jöfn 1-1 en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitaleikinn. Haukar voru yfir í stöðunni 2-3 en þaðan náðu Keflvíkingar foyrstunni og héldu henni raunar allt þar til flautað var af. Liðið leiddi með 19 stigum í hálfleik, 60-41 og leiknum lauk svo með 17 stiga sigri Keflvíkinga 98-81. Sara Rún Hinriksdóttir var atkvæðamest Hauka með 21 stig. Liðin mætast aftur á þriðjudag. Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 21 stig. RÚV / Mummi Lú 24. apríl 2026 kl. 22:17ÍÞRÓTTIR Handbolti Valur tók for­yst­una í úr­slita­ein­víg­inu Anna Sigrún Davíðsdóttir Valur og FH mættust í f

Share this article