Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Loks líf í kjara­viðræður flug­manna

Read Full Article →

Samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) funduðu í dag. Var þetta fyrsti formlega fundurinn í nokkurn tíma en fulltrúar samninganefndanna hafa átt óformlega fundi í vetur. Flugmenn hafa ekki enn lagt fram formlegar kröfur í viðræðunum. Kjarasamningar flugmanna hafa verið lausir í um sex fimm eða síðan í september. Almennt er talað um að háannatími í íslenskri ferðaþjónustu hefjist í lok mars. Í dag er staðan sú að Icelandair er að sigla inn í háannatímann án þess að samið hafi verið við flugmenn. Þó viðræður séu nú að komast á skrið er ýmislegt að hafa áhrif á þær. Líkt og Viðskiptablaðið hefur greint frá þá hafa viðræðurnar verið snúnar og var það ekki síst vegna dómsmáls sem FÍA höfðaði gegn Icelandair fyrir hönd níu flugmanna, sem hugðust nýta sér rétt til starfsloka við sextugt eftir 25 ára starf hjá flugfélaginu. Þetta mál hefur haft veruleg áhrif á kjaraviðræðurnar en ekki lengur því í FÍA og Icelandair hafa náð samkomulagi um starfslok flugmanna líkt og fréttamiðillinn FF7 greindi fyrst frá þann 19. mars. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var ýmislegt rætt á fundinum en þó starfslokamálið sé frá er ýmislegt annað að hafa áhrif á kjaraviðræðurnar. Fulltrúar samninganefndanna eru sem dæmi uggandi yfir þróun efnahagsmála hérlendis. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er bjartsýnasta spáin sú að samið verði ... Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article