Kjaraviðræðum Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) þokar hægt áfram. Samningsaðilar hafa átt óformlega fundi undanfarið og var sá síðasti á laugardaginn var. Samninganefnd Icelandair er leidd af Björgólfi Jóhannssyni, fyrrverandi forstjóra félagsins og Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, fer fyrir samninganefnd félagsins. Enn sem komið er hefur FÍA ekki lagt fram formlegar kröfur í kjaraviðræðunum Björgólfur Jóhannsson og Jón Þór Þorvaldsson. Kjarasamningar flugmanna hafa verið lausir í rúma fimm mánuði eða síðan í september. Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá skömmu eftir áramót þá hafa viðræðurnar verið snúnar og var það ekki síst vegna dómsmáls sem FÍA höfðaði gegn Icelandair fyrir hönd níu flugmanna, sem hugðust nýta sér rétt til starfsloka við sextugt eftir 25 ára starf hjá flugfélaginu. Dómur Hæstaréttar Málið var kært til Félagsdóms. Í úrskurði dómsins var málinu vísaði því frá, þar sem dómurinn taldi þau ákvæði, sem kröfur flugmannanna voru reistar á ekki, hluta af kjarasamningi. FÍA kærði úrskurð Félagsdóms til Hæstaréttar. Dómur féll í Hæstarétti í janúar og var niðurstaðan sú að rétturinn staðfesti úrskurð Félagsdóms. Í dómi Hæstaréttar segir að þó úrskurður Félagsdóms sé staðfestur sé „engin afstaða tekin til þess hvort í þeim skjölum sem lögð hafa verið fyrir í málinu kunni allt að einu að felast skuldbindingar annars eðlis.“ Með dómi Hæstaréttar myndu einhverjir halda að málið væri frá en svo er í raun ekki því umræddir flugmenn geta höfðað einkamál kjósi þeir svo. Það hafa þeir ekki gert. Þessi staða flækir kjaraviðræðurnar að því leyti að ná þarf sátt um starfslokasamninga flugmanna og samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins verður nýr kjarasamningur ekki undirritaður fyrr en það hefur verið gert. Heimildir blaðsins herma að þetta einstaka mál sé ekki á borði samninganefndar Icelandair heldur á borði yfirstjórnar Icelandair, sem þarf þá væntanlega að klára málið til að þoka kjarasamningunum áfram. Háannatíminn nálgast Háannatími í íslenskri ferðaþjónstu nálgast óðfluga en almennt er miðað við að þetta tímabil hefjist í lok mars. Icelandair vill alls ekki vera í þeirri stöðu að sigla inn í háannatímann með mögulegar verkfallsaðgerðir hangandi yfir sér. Sú gæti samt orðið raunin því samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins er, miðað við gang kjaraviðræðnanna í dag, afar ólíklegt að samningar verði undirritaðir fyrir páska, sem hefjast eftir rúman mánuð. Hlutirnir geta þó verið fljótir að breytast. Takist yfirstjórn Icelandair að ná sátt um starfslokasamningana margumræddu myndi það hleypa lífi í sjálfar kjaraviðræðurnar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina heild hér .