Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Viðræður strandi á starfslokarétti

Read Full Article →

Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), segir að staðan á viðræðum stéttarfélagsins við Icelandair sé augljóslega ekki ákjósanleg. Síðasti formlegi samningafundur hafi verið haldinn 29. desember síðastliðinn. „Nokkrir óformlegir fundir hafa þó verið milli aðila vegna ákvæða sem eru útistandandi frá síðustu kjarasamningum. Það eru snúin mál sem þarf að leiða í jörð áður en lengra er haldið. Það er þó von og vilji beggja vegna borðs að ná sáttum svo hægt sé að beina orkunni í kjarasamninga til framtíðar,“ segir Jón Þór í nýju fréttabréfi FÍA, Kotra . Strandi helst á rétti til starfsloka Í viðtali í fréttabréfinu segir Jón Þór að eins og stendur sé réttur til starfsloka, sem FÍA og Icelandair deildu um fyrir Félagsdómi, sá þáttur sem viðræðurnar strandi helst á. Stéttarfélagið telji hann afar mikilvægan. „Við höfum á undanförnum vikum velt við ýmsum steinum og mögulegum útfærslum á því máli. Náist saman um það geta hlutirnir gerst hratt og hægt að binda alla lausa hnúta”. Sjá einnig Siglir Icelandair inn í háannatíma án kjara­samnings? Kjarasamningar flugmanna frá árinu 2020 hafa verið lausir í rúma fimm mánuði eða síðan í lok september. Jón Þór segir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan þá. Þar beri helst að nefna „einhliða ákvörðun Icelandair að virða ekki 18. gr. kjarasamningsins er varðar rétt flugmanna til starfsloka“. FÍA höfðaði mál gegn Icelandair fyrir hönd níu flugmanna, sem hugðust nýta sér rétt til starfsloka við sextugt eftir 25 ára starf hjá flugfélaginu. Málið var kært til Félagsdóms. Í úrskurði dómsins var málinu vísaði því frá, þar sem dómurinn taldi þau ákvæði, sem kröfur flugmannanna voru reistar á ekki, hluta af kjarasamningi. Jón Þór segir að Félagsdómur hafi komist að þeirri niðurstöðu að ákvæðið væri ekki gilt sökum umboðsskorts samningamanns Icelandair. „Þetta leysti úr læðingi ákveðna atburðarrás. Málið var dæmt á tæknilegum forsendum, en staðreyndin er sú að eftir því hafði verið starfað allt frá árinu 2020 og um gildi þess ríkti enginn efi. Þessi málarekstur vakti upp spurningar um önnur sem leysa þarf í kjölfarið.“ Komin aftur á byrjunarreit Hann segir að dómurinn breyti þeirri forsendu að lagaleg óvissa ríki um alla þá gerninga sem ekki séu „geirnegldir, vottaðir og samþykktir af öllum sem umboð hafa við kjarasamningsgerð“. Standi forsendur núgildandi kjarasamninga ekki, þá lítur Jón Þór svo á að aðilar séu komnir aftur á ákveðinn byrjunarreit, í það minnsta að hluta. „Við getum ekki staðið í viðræðum um nýjan samning, þegar sá fyrri er í ákveðnu uppnámi. Það er bæði tæknilegt sem og prinsipp mál að hreinsa borðið áður en sest er niður við gerð nýs samnings”. Jón Þór, sem er einn í framboði til formanns fyrir aðalfund FÍA þann 26. mars nk., segist ekki líta svo á að málið sé í hnút „Sem betur fer hefur aðilum borið gæfa til að geta sest niður og rætt þetta mál opinskátt. Markmið beggja er að komast að sameiginlegri niðurstöðu, sem báðir aðilar geta unað við”. Hann segir aðila horfa til þess að ná saman er varðar rétt fluganna til starfsloka. Takist það, verði þá hægt að taka upp þráðinn í hefðbundinni kjarasamningsgerð.

Share this article