Innlent | Spursmál | mbl | 23.2.2026 | 7:51 Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Spursmál Á heilalausu skrolli í hliðarsal Alþingis Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? „Ég er ekki fíkniefnasali“ Gæti fasteignaverð lækkað skarpt? Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann » Fleiri tengdar fréttir Í úttekt Viðskiptaráðs á áhrifum innleiðingar ETS-kerfis Evrópusambandsins hér á landi má sjá að innan tveggja ára mun farmiðaverð milli Íslands og Evrópu hækka um 10-12 þúsund krónur. Það er afleiðing af því hversu illa innleiðing kerfisins kemur niður á ríki sem staðsett er á eyju langt norður í ballarhafi þar sem enginn möguleiki er á að flytja fólk eða vörur með öðrum ferðamátum á borð við lestir. Leggst á Ísland af fullum þunga Vissulega væri mögulegt að sigla fólki til og frá landinu með öllum þeim kostnaði sem fylgir tímafrekum ferðamáta af því tagi en vandinn er sá að ETS-kerfið leggst einnig af fullum þunga á skipaflutninga sem er önnur mikilvægasta lífæð flutninga milli Íslands og meginlandsins. Áhrifa ETS-kerfisins eru gerð ítarleg skil í nýjasta þætti Spursmála þar sem hagfræðingur Viðskiptaráðs, Ragnar S. Kristjánsson og Frosti Sigurjónsson, rekstrarhagfræðingur og höfundur bókarinnar Hitamál fara yfir málin. Allt stefnir í að innleiðing ETS-kerfisins frá Evrópusambandinu muni íþyngja íslensku samfélagi mjög á komandi árum og leggjast af miklum þunga á starfsemi Icelandair. Ljósmynd/Icelandair Frosti Sigurjónsson er reyndar ósammála Viðskiptaráði að því leyti að hann telur að kostnaðurinn af ETS-kerfinu muni hækka farmiðaverð Íslendinga enn meira en úttekt ráðsins gerir ráð fyrir. Þannig bendir hann á að nær ómögulegt verður að velta kostnaði vegna kerfisins yfir á ferðalanga frá Bandaríkjunum. Þeir eigi alltaf þann kostinn að velja sér önnur flugfélög sem ekki þurfi að innheimta tugþúsunda gjald vegna þess.s Það verði því í raun aðeins þeir sem neyðist til þess að nýta sér þjónustu flugfélaga sem byggi á kerfi þar sem Ísland er tengipunktur milli Íslands og Evrópu annars vegar og Evrópu og Bandaríkjanna hins vegar. Ljósmynd/Úr skýrslu Viðskiptaráðs Þrjár greinar sérstaklega í fókus Fyrir skemmstu birti Viðskiptaráð nýja úttekt á ETS-kerfinu sem á komandi árum mun hafa áhrif á sífellt fleiri svið samfélagsins, meðal annars hinar mikilvægu atvinnugreinar Íslendinga, flugs og siglinga. Þá eru ótalin áhrifin sem kerfið hefur á álframleiðendur hér á landi sem allt frá árinu 1969 hafa verið ein mikilvægasta grunnstoðin í útflutningstekjum samfélagsins. Úttekt Viðskiptaráðs má lesa hér . Þar má sjá hvernig fólksflutningar milli Íslands og Evrópu og Bandaríkjanna eru bornir saman við sambærilega flutninga sem fara beint milil Bandaríkjanna og Evrópu eða með millilendingu í Bretlandi sem fellur ekki undir ETS kerfið. Með sama hætti má sjá hvernig ETS-skatturinn leggst miklu þyngra á Ísland þegar kemur að flutningum á sjó þar sem vörur eru fluttar frá Bandaríkjunum til Evrópu með millilendingu hér á landi. Frændur okkar í Færeyjum standa uppi með pálmann í höndunum og samkeppnishæfni þeirra eykst til mikilla muna þar sem þeir falla ekki undir kerfið. Samkvæmt mati mun ETS-kerfið kosta íslenska viðskiptakerfið um 28 milljarða króna árlega að fjórum árum liðnum eða árið 2030. Ríkið mun geta innheimt um þrjá milljarða í tekjur af úthlutuðum útblásturskvóta á sama tíma og því verða nettóáhrifin neikvæð um 25 milljarða samkvæmt umfjöllun Viðskiptaráðs. Viðtalið við Frosta og Ragnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan: Tengdar fréttir Spursmál Á heilalausu skrolli í hliðarsal Alþingis Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? „Ég er ekki fíkniefnasali“ Gæti fasteignaverð lækkað skarpt? Ríkisstjórnin hafði ekkert samráð við Seðlabankann » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ferðabann sett á í New York-borg vegna óveðurs Segir Pútin hafi hafið þriðju heimsstyrjöldina Enginn sineldur og nóttin óvenju róleg Vikumatseðill fræga fólksins: Borðað eins og stjörnurnar Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Fólk hvatt til að halda sig fjarri eldinum Hægir á byggingu íbúða næstu árin „Almenningur ekki að hjálpa til“ Mest lesið Í gær Í vikunni Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Fimm prósent landans á Wegovy Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Stefán í spennufalli og Finnur undir feldi Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Ferðabann sett á í New York-borg vegna óveðurs Segir Pútin hafi hafið þriðju heimsstyrjöldina Enginn sineldur og nóttin óvenju róleg Vikumatseðill fræga fólksins: Borðað eins og stjörnurnar Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Forstjóri Norðuráls: Tekur 90 daga Telur að Guðmundarlundi hafi verið bjargað Fimm prósent landans á Wegovy Mest lesið Í gær Í vikunni Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Fimm prósent landans á Wegovy Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Slökkvilið sent aftur á vettvang sinueldsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Stefán í spennufalli og Finnur undir feldi Hlutdeild ÁTVR minnkar umtalsvert Sendir frá sér yfirlýsingu vegna Kúbuferða Myndir sýna hvernig sinueldurinn breiddist út Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka