Innlent | mbl | 13.5.2026 | 11:20 Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Stúlkan strauk ítrekað af meðferðaheimilinu Stuðlum á meðan brotin áttu sér stað. Ljósmynd/Colourbox Setja bókamerki Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur dæmt Brynjar Leó Hjartarson, karlmann á þrítugsaldri, í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og sifskaparbrot gegn stúlku undir lögaldri. Brotin áttu sér stað frá janúar til maí 2024. Stúlkan var 13 og 14 ára þegar Brynjar braut á henni en í dómnum segir að Brynjar hafi nýtt sér yfirburði sína sökum aldurs- og þroskamunar en stúlkan var háð fíkniefnum og lyfjum. Þá var hún í umsjá Barnaverndar Reykjavíkur á tímabilinu en hafði ítrekað strokið frá meðferðarheimilinu Stuðlum. Dómari taldi Brynjar hafa skapað stúlkunni aðstæður til að halda áfram í neyslu og mat dómurinn framburð ákærða svo að hann hafi í einhverjum tilvikum útvegað stúlkunni fíkniefni eða lyf. Þá taldi dómurinn Brynjar hafa skapað stúlkunni aðstæður til að koma sér undan valdi og umsjá forsjáraðila og að hún hafi verið háð ákærða um dvalarstað eða aðstæður utan fósturheimilis. Frétt af mbl.is Ákærður fyrir fjölda brota gegn unglingsstúlku Kvaðst ekki vita aldur stúlkunnar Eins og áður segir var stúlkan 13 og 14 ára þegar brotin voru framin. Brynjar kvaðst fyrir dómi ekki vita hvað stúlkan var gömul þegar samband þeirra hófst og hélt því fram að stúlkan hafi sagst vera sautján ára. Stúlkan hélt því hins vegar fram að hún hefði verið opin fyrir því að hún væri fædd árið 2010. Dómurinn mat framburð Brynjars sem ótrúverðugan. Niðurstaða málsins byggði ekki á framburði ákærða nema að því marki sem hann fær stoð í öðrum gögnum sem dómurinn taldi trúverðug. „Lét eigin hagsmuni alfarið ráða“ Maðurinn játaði hluta ákærunnar sem sneri að fíkniefnalagabrotum. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Brynjar hafi brotið gróflega gegn brotaþola og taldi dómurinn að háttsemi hans hafi verið til þess fallin að hafa alvarlegar afleiðingar fyrir stúlkuna. „Skeytti ákærði engu um brotaþola heldur lét eigin hagsmuni alfarið ráða ferðinni og nýtti sér hana á ófyrirleitinn hátt,“ segir í dómnum. Brynjari er gert að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna auk þess sem honum er gert að greiða skipuðum verjanda sínum 2,3 milljónir króna og þóknun skipaðs réttargæslumanns stúlkunnar 1,5 milljónir. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina „Takk fyrir mig handbolti“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík X26: Oddvitar í Reykjanesbæ mætast Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann Stjörnugrísmálið: „Vatn á myllu misjafnra“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina „Takk fyrir mig handbolti“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Evrópumeistararnir mæta Þýskalandsmeisturunum Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég vil svara fyrir mig núna“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Algerlega óljóst hver tók ákvörðunina Mest lesið Í gær Í vikunni „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði „Allt ægilega flókið bla bla“ Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Hvað var hann að gera á Íslandi? Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg