- What: A man was convicted of sexual assault against a minor in a Reykjavík swimming pool changing room.
- Impact: The man was found guilty of violating decency and child protection laws.
Innlent | mbl | 14.2.2026 | 10:29 Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Atvikið átti sér stað í Sundhöllinni í upphafi árs 2024. Ljósmynd/Reykjavíkurborg Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sakfellt rúmlega þrítugan mann fyrir brot gegn blygðunarsemi og barnaverndarlögum vegna atviks í útibúningsklefa kvenna í Sundhöll Reykjavíkur 5. janúar 2024. Samkvæmt dóminum gekk maðurinn inn í kvennaklefann við lokun sundlaugarinnar, þegar stúlkan var nakin í sturtu, og handlék kynfæri sín innan klæða. Brotaþoli var 16 ára stúlka en maðurinn þá um þrítugt. Dómurinn telur jafnframt sannað að hann hafi hundsað ítrekaðar beiðnir hennar um að yfirgefa klefann. Stúlkan leitaði aðstoðar hjá starfsfólki, grátandi og í miklu uppnámi eftir atvikið. Segist hafa villst Ákærði neitaði sök og hélt því fram að hann hefði villst inn í kvennaklefann þegar honum leið illa eftir gufubað og hann hefði ætlað á salerni. Verjandi hans krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi, en dómurinn hafnaði þeirri kröfu og taldi ákæruna nægilega skýra. Heyrðu stúlkuna öskra Í niðurstöðu dómsins er lögð áhersla á að framburður brotaþola hafi verið stöðugur og trúverðugur og fengið stoð í öryggismyndavélum og framburði vitna. Tvö vitni sem voru í útibúningsklefa karla sögðust hafa séð ákærða koma inn og fara út aftur skömmu áður en öskur heyrðust úr kvennaklefanum. Þá studdu starfsmenn Sundhallarinnar, kærasti stúlkunnar, móðir hennar og sálfræðingur lýsingar á ástandi hennar strax í kjölfar atviksins. Dvaldi í fimm mínútur inni í klefanum Dómurinn bendir jafnframt á mótsagnir í framburði ákærða og telur skýringar hans ekki samræmast gögnum málsins. Myndefni staðfesti að hann dvaldi um fimm mínútur í útiklefunum. Niðurstaðan var sú að maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi, en fullnustu refsingarinnar er frestað með tveggja ára skilorði. Við ákvörðun refsingar var meðal annars horft til þess að brotið beindist að ungri stúlku í aðstæðum sem hún taldi sig örugga í, og að ákærði hafi ekki farið þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir. Fær 500 þúsund krónur auk vaxta Stúlkan krafðist einnar milljónar króna í miskabætur, en dómurinn dæmdi henni 500 þúsund krónur auk vaxta. Í dóminum kemur fram að afleiðingar brotsins hafi verið alvarlegar og að stúlkan hafi ekki jafnað sig að fullu. Meðal gagna voru vottorð sálfræðings og staðfesting á viðtölum í Barnahúsi. Ákærði var einnig dæmdur til að greiða sakarkostnað, þar á meðal málsvarnarlaun verjanda síns og þóknun réttargæslumanns brotaþola, samtals tæpar tvær milljónir króna. Bloggað um fréttina Helga Dögg Sverrisdóttir: Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur bæjarfulltrúa finnst í lagi að fjölbreyttir kvennalíkamar … Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hiti í krullunni – Rifrildi á svellinu Enginn veit hvað gerist næst Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Einn fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Fangaverðir liggja ekki undir grun Legurými staðið til boða í mánuði Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Fangaverðir liggja ekki undir grun „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hiti í krullunni – Rifrildi á svellinu Enginn veit hvað gerist næst Gekk inn á unglingsstúlku og handlék kynfærin Einn fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Samferða þjóðinni til farsældar Tímabært að endurskoða áform um borgarlínu Fleira áhugavert Pílustaður ekki íþróttamannvirki Framsókn kýs nýjan formann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Legurými staðið til boða í mánuði Beið sárþjáður fram á morgun Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Tveir handteknir grunaðir um stórfellda líkamsárás Þjóðin þarf breiða sátt, ekki úlfúð 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Fangaverðir liggja ekki undir grun „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Toppi inflúensunnar náð en RS sækir í sig veðrið 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Beið sárþjáður fram á morgun Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fór alla leið á botninn og hjálpar nú öðrum Grunaður um að halda úti vændisútgerð Nágrannar hyggjast kæra