- What: Football league broadcast rights extended to Sýn
- Impact: Sports fans in Iceland will continue to watch top-tier football matches on Sýn
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 26 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti Besta deildin áfram á Sýn Brynjólfur Þór Guðmundsson Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn að Bestu deild karla og kvenna í fótbolta út næsta ár. Fyrri samningur átti að renna út að loknu þessu keppnistímabili. Sýn og Íslenskur toppfótbolti hafa samið um að framlengja sýningarrétt Sýnar meðan viðræður standa yfir um nýjan langtímasamning. Efstu deildir í íslenska fótboltanum hafa verið á dagskrá Sýnar og forvera hennar í 29 ár. Fram og ÍBV í leik í Bestu deild kvenna. Mummi Lú Fyrir 29 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku Rúmlega tvítugur karlmaður var sakfelldur fyrir að hafa ítrekað samræði og önnur kynferðismök við stúlku þegar hún var fjórtán ára. Hún var á flótta frá barnaverndaryfirvöldum og stuðlaði hann að flótta hennar. Fyrir 37 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál 40% foreldra ná illa endum saman Fjórir af hverjum tíu foreldrum í aðildarfélögum ASÍ og BSRB eiga erfitt með að ná endum saman og fjórðungur hefur ekki efni á að senda börn sín á sumarnámskeið eða skipulagðar tómstundir. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Strætó of stór fyrir undanþágu Endurnýjun lýsingar í Hvalfjarðargöngunum er á áætlun, segir sérfræðingur hjá Vegagerðinni. Að öllu óbreyttu verður aftur opnað fyrir umferð um göngin að næturlagi 29. maí. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Biðst afsökunar á ummælum um reykingar barna Forsætisráðherra Danmerkur harmar orð sem hún lét falla á ráðstefnu um gervigreind í gær. Hún sagði að ef hún ætti ung börn í dag myndi hún frekar vilja að þau myndu reykja en að vera ein á samfélagsmiðlum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Spáir því að stýrivextir hækki í næstu viku Brynjólfur Þór Guðmundsson Greiningardeild Landsbankans spáir því að stýrivextir hækki um 0,25 prósent í næstu viku. Þetta rökstyður hún með því að verðbólga sé enn yfir markmiði og verðbólguvæntingar þrálátar. Peningastefnunefnd fer yfir stöðuna í næstu viku og tekur ákvörðun um hversu háir stýrivextir skuli vera. Ákvörðunin verður kynnt á miðvikudag. Stýrivextir hækkuðu úr 7,25 í 7,50 prósent við síðustu vaxtaákvörðun. Landsbankinn spáir því að verðbólga hjaðni í maí og verði 4,9 prósent. Íslandsbanki telur að hún standi óbreytt í 5,2 prósentum. Merki Seðlabankans. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Færri skemmtiferðaskip á landsbyggðinni í sumar Komum skemmtiferðaskipa fækkar milli ára og minni hafnir og smærri bæjarfélög finna mest fyrir því. Ástæðan er talin óvissa og hærri gjöld á skipafélög. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Golf Dagbjartur spilar um sæti á Opna bandaríska meistaramótinu Kylfingurinn Dagbjartur Sigurbrandsson hefur tryggt sér sæti í lokaúrtökumótum Opna bandaríska meistaramótsins í golfi. Opna bandaríska mótið er eitt af fjórum risamótum ársins hjá karlkylfingum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Áhættumat gert of sjaldan og ekki kynnt nógu vel Skortur á áhættumati, skriflegu verklagi og áætlunum vegna almannavarnastigs er meðal þess sem starfshópur dómsmálaráðherra vegna jarðhræringanna á Reykjanesskaga setur út á. Viðbragðsaðilar hafi unnið þrekvirki og þeim að þakka að ekki fór verr. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélög Þrjú sveitarfélög hækkuðu frístund umfram verðbólgu Brynjólfur Þór Guðmundsson Gjaldskrá sveitarfélaga fyrir frístund hjá grunnskólabörnum hækkaði um allt að 37 prósent milli áranna 2023 og 2026, samkvæmt nýrri úttekt Alþýðusambands Íslands. Þar er miðað við að barn nýti þjónustuna í um þrjár klukkustundir á dag og fái síðdegishressingu. Verð var kannað í fjórtán sveitarfélögum. Mest var hækkunin í Reykjanesbæ, Fjarðabyggð og Garðabæ. Það eru einu sveitarfélögin sem hækkuðu gjaldskrá umfram verðbólgu. Mosfellsbær sker sig úr sem eina sveitarfélagið þar sem gjaldskráin lækkaði, um tvö prósent. Gjaldið er hæst í Garðabæ og á Seltjarnarnesi en lægst í Vestmannaeyjum, Hafnarfirði og Reykjavík. Leikskóli í Reykjavík. Sólveig Klara Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Ofbeldi Eldra fólk segir síður frá ofbeldi Fræðsla fyrir eldri borgara um ofbeldi miðast að því að valdefla, segir samfélagslögreglumaður. Eldra fólk leitar síður til lögreglu en aðrir hópar, segir félagsráðgjafi – ekki síst þegar gerandi er ættingi eða aðstandandi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Kölluð út tvisvar sama daginn vegna skipa í vanda Tvö fiskiskip fengu veiðarfæri í skrúfuna í gær og þurfti björgunarskipið Björg að fara til aðstoðar í bæði skiptin. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál 4,6 prósenta atvinnuleysi Brynjólfur Þór Guðmundsson Atvinnuleysi í apríl var 4,6 prósent, aðeins minna en í mars þegar það var 4,8 prósent. Atvinnuleysið er þó öllu meira en í apríl í fyrra þegar það var 3,9 prósent. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. 9.385 voru án vinnu í apríl að meðaltali, 5.598 karlar og 3.787 konur. Mest var atvinnuleysið á Suðurnesjum, 7,5 prósent, en minnst á Norðurlandi vestra, 1,8 prósent. Atvinnuleysi minnkaði milli mánaða í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum. Mest var atvinnuleysið í verslun og vöruflutningum, því næst í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Ferðamenn í miðbæ Reykjavíkur. Ferðaþjónusta er í sjötta sæti yfir atvinnugreinar þar sem flestir eru atvinnulausir. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt sem þú þarft að vita um HM Heimsmeistaramót karla í fótbolta er handan við hornið. Hér eru allar helstu upplýsingar um mótið. Hvenær er keppt? Hvar er keppt? Hvenær verður útsláttarkeppnin? Hvar er hægt að horfa? Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dómarar ósáttir við minni launahækkanir Dómarafélag Ísland setur sig upp á móti áformum stjórnvalda um að laun þeirra hækki aðeins um 3,5 en ekki í takt við viðmiðunarhópa. Þeir segja ítrekuð inngrip stjórnvalda í laun þeirra ekki viðbrögð við efnahagsþrengingum heldur venjubundnu ástandi. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Myndlist Furðulegt hve mikinn kjark það tekur að fylgja innsæinu Því fylgir ábyrgð að vera fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum en Ásta Fanney vill ekki setja of mikla pressu á útkomuna. Það sé þó erfitt að treysta innsæinu. Hún vill heldur ekki setja listinni hömlur en telur hana mikilvæga á óróatímum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Spyr hvort Icelandair beri ábyrgð gagnvart samfélagi sem studdi það í covid Formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna gagnrýnir áform Icelandair um að byggja upp starfsemi á Möltu þar sem flugmenn fá lægri laun en á Íslandi. Hann rifjar upp að flugfélagið fékk ríkisábyrgð á lánum í covid. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar á Reykjanesskaga Vænlegra að síga eftir Lúðvík en að beita öðrum aðferðum Verktakafyrirtæki telur besta kostinn að síga eftir Lúðvík Péturssyni ef reynt verður að endurheimta lík hans. Aðstæður á vettvangi uppfylla ekki hefðbundnar öryggiskröfur. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Íþróttir Í dag: Landsleikur gegn Egyptum og bikarkeppni karla Í dag mætir íslenska karlalandsliðið í handbolta liði Egypta í fyrri æfingaleik liðanna. Þá hefjast 16-liða úrslit karla í fótbolta og verða tveir leikir sýndir. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Lítill svefn og mikið kaffi í sauðburði Reynir Þór Jónsson bóndi á Hurðarbaki í Flóahreppi er vakinn og sofinn yfir sauðburði Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Málin sem (næstum því) allir eru sammála um Reykvíkingar geta gengið að því sem nokkurn veginn vísu að opnunartími sundlauga verði lengdur eftir kosningar. Standi flokkarnir við það sem þeir segja geta eldri borgarar hugsað sér gott til glóðarinnar. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvorki sérlega hvasst né hlýtt Skýjað verður yfir landinu í dag og á morgun og sunnan- og vestantil verður dálítil væta á köflum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Laus við vorkunn og vonbrigðasvip og er heilsað með virktum í Vesturbænum Óskar Hrafn Þorvaldsson og KR-ingar mæta Stjörnunni í úrvalsdeildarslag í 16-liða úrslitum bikarsins í dag. Óskar ræðir þessa hörkuviðureign en einnig viðsnúninginn sem hefur orðið á liðinu frá síðasta tímabili. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Frönsk kona í öndunarvél smituð af hantaveiru Markús Þ. Þórhallsson Frönsk kona er í öndunarvél á sjúkrahúsi eftir að hún sýktist af hantaveirunni um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Læknar konunnar segja hana mikið veika. Skemmtiferðaskipið Hondius. EPA / Ramon de la Rocha Þrír farþegar á skipinu létust af völdum veirunnar og níu önnur tilfelli hafa verið staðfest. Allir farþegar hafa verið fluttir frá borði og smitrakning stendur yfir í nokkrum löndum. Hondius er á leið til Hollands þar sem skipið og farangur verða þrifin og sótthreinsuð. Tedros Ghebreyesus, forstjóri WHO, varar við því að fleiri tilfelli hantaveirunnar eigi eftir að greinast, en telur ekki hættu á að faraldur brjótist út. Embætti landlæknis Íslands fylgist enn grannt með stöðu mála. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kína Íransstríðið, tollar og Taívan meðal umræðuefna í þriggja daga ríkisheimsókn Bandaríkjaforseta Donald Trump Bandaríkjaforseti er á leið til Kína til fundar við Xi Jinping forseta og fleiri háttsetta ráðamenn. Heimsóknin stendur fram á föstudag. Stríðið í Íran, tollamál, tækniframfarir og staða Taívan eru talin verða helstu umræðuefnin. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Notendur leiðsöguhunda fá endurgreiddan kostnað við ferðalög til útlanda Blindum og sjónskertum verður gert auðveldara fyrir með ferðalög til útlanda samkvæmt ákvæðum nýrrar reglugerðar um endurgreiðslu margvíslegs kostnaðar vegna leiðsöguhunda. Ráðherra segir reglurnar tryggja jafnræði og auðvelda ferðalög. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Eyjaálfa Boðað til þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingu á opinberu heiti Nárú Stjórnvöld í Kyrrahafseyríkinu Nárú hafa boðað þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingu á opinberu heiti landsins