Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dómarar gagn­rýna launa­skerðingu

Read Full Article →

Dómarafélag íslands gagnrýnir áform ríkisstjórnarinnar um að takmarka launahækkanir æðstu embættismanna ríkisins við 3,5% þann 1. júlí í ár, en launahækkanir þessa hóps hefðu að óbreyttu numið 9,7%. Dómarafélagið lítur svo á að frumvarpshöfundar vilji að laun dómara hækki aðeins um 3,5% jafnvel þótt laun ríkisstarfsmanna hækki hugsamlega meira, „það er að laun dómara sitji eftir“. Sjá einnig Hækka laun ráðamanna um 3,5% í stað 9,7% Í umsögn um frumvarp fjármálaráðherra um viðmið uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna segir dómarafélagið að þetta yrði fimmta skerðingin á sjö árum. „Ítrekuð inngrip síðustu ár í lögákveðnar launaleiðréttingar dómara hafa helgast að sögn stjórnvalda og þingmanna af því að mikilvægt sé að vinna að stöðugleika í íslensku efnahagslífi. Þau áform hafa ekki gengið eftir og er hér viðvarandi verðbólga og háir vextir. Það er því hið venjubundna ástand á Íslandi og hefur verið um langt skeið,“ segir í umsögn Dómarafélagsins. Félagið segir ítrekuð afskipti af launum dómara til að bregðast við venjubundnu ástandi í efnahag lands verði ekki réttlætt með vísan í Feneyjanefnd Evrópuráðsins sem hafi sagt að almenn lækkun launa geti náð til dómara þegar kreppir að í efnahag lands. Dómarar í landinu eru 65 talsins. Dómarafélagið segir að samkvæmt því séu þeir rúmlega þriðjungur þeirra samningsréttarlausu stétta sem verða fyrir skerðingu af völdum laganna, og helmingur ef þingmenn eru teknir út fyrir sviga.

Share this article