Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mikill munur eftir sveitarfélögum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 13.5.2026 | 10:35 | Uppfært 14:11 Mikill munur eftir sveitarfélögum Gjaldskrár frístundaheimila hafa tekið miklum breytingum undanfarin ár. Morgunblaðið/Hari Setja bókamerki Gjaldskrár frístundaheimila fyrir grunnskólabörn hafa tekið miklum breytingum undanfarin ár. Mikill munur er bæði á verðlagi og hækkunum milli sveitarfélaga. Mestu hækkanirnar eru í Fjarðabyggð eða 36% á þriggja ára tímabili. Kostnaðurinn nemur rúmum 23 þúsund krónum. Í Reykjanesbæ hækkuðu gjöldin úr 20.266 í 23.673 krónur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alþýðusambandi Íslands. Úttektin miðast við eitt barn í 63 klukkustunda vistun á mánuði eða um þrjár klukkustundir á dag auk síðdegishressingar. Mosfellsbær sker sig úr Á höfuðborgarsvæðinu er vistun barna í frístundaheimili dýrust í Garðabæ. Kostnaðurinn nemur rúmum 34 þúsund krónum en árið 2023 nam kostnaðurinn rúmum 32 þúsund krónum. Á Seltjarnarnesi er kostnaðurinn sambærilegur og í Garðabæ en fyrir þriggja klukkustunda vistun á frístundaheimili með síðdegishressingu nemur kostnaðurinn rúmum 38 þúsund krónum fyrir eitt barn. Í Reykjavík hækka gjöld frístundaheimila um 15% og fara úr 21 þúsund krónum í 24 þúsund krónur. Sambærileg þróun er í Árborg og á Akranesi. Mosfellsbær er eina sveitarfélagið þar sem gjöld lækka. Mánaðargjaldið lækkar um 2% á þriggja ára tímabili þar sem kostnaðurinn fer úr 26.586 krónum í 25.984. Uppfært klukkan 14.03: Fréttin og fyrirsögnin hafa verið uppfærð eftir að ASÍ benti á að villa væri í verðskrárreikningum sambandsins. Í upphaflegri frétt sagði að kostnaðurinn í Reykjanesbæ væri 27.768 krónur en hið rétta er að kostnaðurinn nemur 23.673. Þá sagði að dýrasta vistunin væri í Garðabæ þar sem kostnaðurinn væri 39.550 en rétt upphæð er 34.400. „Ástæðan fyrir villu í útreikningi var að notast var við verðskrártöflur hjá sveitarfélögunum, og var ekki samræmi þar hvort verð væri birt með síðdegishressingu reiknaðri inn í verð eða ekki. Síðdegishressing var því reiknuð tvöfalt inn hjá þessum sveitarfélögum sem skáru sig úr í þessari framsetningu,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Hér má sjá þróunina. Ljósmynd/ASÍ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 30:30 Trump mættur á tímamótafund í Peking Musk taldi OpenAI ekki eiga möguleika án hans Markvörðurinn áfram í Kópavogi Initiative Driven by the Private Sector Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann Mikill munur eftir sveitarfélögum Konungur kynnti áform Starmers: „Ekki núna, Andy“ Veikleiki í Innu: „Lítum málið mjög alvarlegum augum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg Nýjast á mbl.is » Ísland - Egyptaland, staðan er 30:30 Trump mættur á tímamótafund í Peking Musk taldi OpenAI ekki eiga möguleika án hans Markvörðurinn áfram í Kópavogi Initiative Driven by the Private Sector Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólk bíður í fjögur ár eftir aðgerð Mikill munur eftir sveitarfélögum „Ég vil svara fyrir mig núna“ Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Enn ein mistökin tefja enduropnun á Brákarborg Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Aðkoman vægast sagt ömurleg

Share this article