Innlent | Morgunblaðið | 15.3.2026 | 11:47 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Vesturmunni Vaðalheiðarganga Eyjafjarðarmegin. Neðar sést vegurinn um Svalbarðsströnd, leiðin í byggðina þar og á Grenivík. Einnig ef valið er að aka um Víkurskarð, en það var leiðin milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals áður en göngin góðu voru tekin í notkun. Af ströndinni og úr skarðinu sést til Kaldbaks, fjallsins mikla í mynni Eyjafjarðar sem hér sést. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Breytingar til einföldunar voru gerðar nýlega á gjaldskrá Vaðlaheiðarganga, einstaka liðir hennar hækkaðir í verði auk þess sem ökumenn þurfa nú ekki endilega að skrá sig inn á veggjald.is til þess að greiða minna en ella fyrir ferðina. Áður gilti að álag kom á kröfur sem innheimt var skv. bílnúmeri og sent í heimabanka bíleigenda. Ferð í stærsta skammti kostar 992 kr. Reglan sem nú gildir er að krafa stofnast sjálfkrafa í heimabankanum eftir hverja staka ferð um göngin. Sú upphæð er 2.216 kr. en var til skamms tíma 3.600 kr. Þægilegast er því fyrir fólk sem sjaldan fer um göngin að aka greiðlega í gegn og borga tollinn þegar krafan er komin. Hækkunin á gjaldaliðum í Vaðlaheiðargöngum nú í byrjun mánaðarins var almennt 4%. Verð stakra ferða er sem framan greinir. Ódýrasti kosturinn er þó að kaupa fyrirframgreiddar ferðir gegnum göngin, sem hentar þeim sem eiga oft þarna leið um. Séu 10 skipti keypt fyrir fram kostar ferðin 1.599 krónur og sé tekinn 50 ferða skammtur kostar hver þeirra 992 krónur. Umferð að aukast „Umferðin er að aukast lítið eitt,“ segir Valgeir Bergmann, framkvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga hf., í samtali við Morgunblaðið. „Í fyrra fóru í gegn alls 627.000 bílar, sem er 3,3% fjölgun frá árinu á undan. Á sama tíma minnkaði umferð á Hringveginum svo að útkoman er í raun ágæt.“ Sé horft yfir heilt ár eru 55-60% þeirra bíla sem fara í gegnum göngin með fyrirframgreiddar ferðir. Yfir vetrartímann lætur nærri að þetta hlutfall sé um 80%. Yfir sumarið þegar ferðamannatíminn stendur sem hæst er umferðin eðlilega allra mest, þá með sölu stakra ferða. Þarna kemur til að sé farið frá Akureyri um göngin er Vaglaskógur við austurmunna þeirra og þaðan er ekki langt til dæmis að Mývatni og austur á Húsavík. Áhrifa gætir víða „Sífellt fleiri eru með ferðir í áskrift og kaupa pakka. Fyrir þau sem oft fara í gegn munar líka um slíkt, það er að borga 2.216 kr. fyrir staka ferð eða fá hana á innan við 1.000 kr. þegar 50 ferða skammtur er tekinn,“ segir Valgeir. „Hækkun fargjalds nú í byrjun mars um 4% er nokkuð sem gera þurfti samkvæmt lánaskilmálum félagsins sem á og rekur göngin við ríkið. Ákvæði þeirra eru að gjaldskráin fylgi verðlagsþróun á hverjum tíma. Að fella út álag á kröfur sem fara í heimabanka viðskiptavina teljum við vera til þæginda fyrir fólk. Það fyrirkomulag mun þó eitt og sér tæpast leiða til meiri umferðar. Hins vegar sést að Vaðlaheiðargöng eru heilt yfir að styrkja Norðurlandið, til dæmis að Eyjafjörður og Þingeyjarsýslur séu eitt atvinnusvæði. Áhrifa gætir hugsanlega víðar, jafnvel alveg austur á land.“ Samfélagslegra áhrifa Vaðlaheiðarganga gætir víða, svo sem á Akureyri. Atvinnu- og áhrifasvæði bæjarins hefur stækkað. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Segir verðmiðann slá sig sem háan Ekki hægt að segja nei við þessi augu! Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Nítján ára sigraði Formúlu 1 Umferð eykst og gjaldskrá breytt Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Er þetta besta berjasósa allra tíma? Skoða viðbúnað við frostrigningu Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvessir á landinu í nótt Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Kvartað undan rukkunum Isavia Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Unnið við lúxushótel á ný Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Óðinn Svan leiðir L-listann á Akureyri Hættustigi lýst yfir á Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir