Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrrum aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar gagnrýnir Samfylkinguna harðlega

Read Full Article →

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar skrifaði færslu á Facebook í gærkvöldi og sagði frá því að hún hafi tekið kosningapróf Ríkisútvarpsins. Ingibjörg sagði að niðurstöðurnar hafi svo sem ekki komið á óvart. Ingibjörg sagðist ekki alltaf hafa verið „sátt við Samfylkinguna á undanförnum árum“ en sagðist þrátt fyrir það treysta flokknum best til að leiða þær umbætur í þjónustu sem nauðsynlegar væru í borginni. Kristín A. Árnadóttir var aðstoðarmaður Ingibjargar Sólrúnar þegar hún var borgarstjóri, en þær höfðu áður starfað saman í Kvennalistanum. Ingibjörg gerði Kristínu síðar að sviðsstjóra hjá borginni auk þess að skipa Kristínu sendiherra í utanríkisráðherratíð sinni. Kristín svaraði færslu Ingibjargar á Facebook í gærkvöldi: Það er nú ekki aldeilis eins og Samfylkingin hafi ekki haft alla möguleika á því.. í 16 ára valdasetu! Ingibjörg Sólrún var augljóslega óhress með athugasemd fyrrum aðstoðarmannsins: Ekki var þetta nú málefnalegt. Sitthvað hefur gerst á 16 árum þó að gera megi betur! Ingibjörg Sólrún þá borgarstjóri ásamt Kristínu A. Árnadóttur, framkvæmdastjóra þróunarsviðs Reykjavíkurborgar, í febrúar 2001. © Morgunblaðið/Kristinn (Morgunblaðið/Kristinn) Kristín lét ekki þar við sitja og svaraði fyrrum yfirmanni sínum í annað sinn, án þess að draga nokkuð í land: Mér eru ofarlega í huga biðlistarnir í leikskólunum þar sem Reykjavíkurborg hefur dregist afturúr og skipulagsmálabáknið. Á þessari vakt. Kristín A Árnadóttir var ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra Reykjavíkur árið 1994, í tíð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Hún var skipuð sviðsstjóri þróunar- og fjölmiðlasviðs borgarinnar 29. desember 2000 og gegndi því starfi 2001–2005 og tók þá við starfi skrifstofustjóra á skrifstofu borgarstjóra, í tíð Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur oddvita Samfylkingarinnar. Í júlí 2007 fór Kristín í leyfi frá borginni til að stýra framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna fram að kosningunum í október 2008, og var skipuð sendiherra af Ingibjörgu Sólrúnu, þá utanríkisráðherra, í nóvember sama ár. Ingibjörg Sólrún var kjörin formaður Samfylkingarinnar í maí 2005. Kristín var meðal dyggustu stuðningsmanna hennar og er til vinstri á borði Ingibjargar. © Morgunblaðið/Árni Torfason (Morgunblaðið/Árni Torfason) Kristín var sendiherra Íslands í Kína 2010–2013, jafnframt gagnvart Ástralíu, Kambódíu, Laos, Mongólíu, Nýja-Sjálandi, Norður-Kóreu, Suður-Kóreu, Tælandi og Víetnam. Á árunum 2013–2017 var hún sendiherra í Finnlandi og jafnframt gagnvart Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Úkraínu. Hún gegndi starfi jafnréttissendiherra í utanríkisráðuneytinu 2018–2021 og tók við starfi fastafulltrúa Íslands í Vínarborg 1. maí 2021, þar sem hún sinnir erindrekstri gagnvart ÖSE, Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni og skrifstofum Sameinuðu þjóðanna í Vín, auk þess að vera sendiherra gagnvart Slóvakíu. Hér má lesa færslu Ingibjargar Sólrúnar í heild sinni: Tók kosningapróf RÚV og niðurstöðurnar komu svo sem ekkert á óvart. Ég er sósíaldemókrati með svolitla vinstri slagsíðu. Hef ekki alltaf verið sátt við Samfylkinguna á undanförnum árum en ég treysti henni best til að leiða þær umbætur í þjónustu við fjölskyldur í borginni - í leikskólamálum, skólamálum og félagsþjónustu - sem nauðsynlegar eru. Samfylkingin hefur gott veganesti og þá sýn og staðfestu sem þarf. Ég treysti því að Pétur og félagar láti hendur standa fram úr ermum.

Share this article