Viðskiptaráð gagnrýnir Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra fyrir að hafa ekki svarað erindi sem ráðið sendi á hann fyrir einu ári síðan þar sem vakin var athygli á misbresti við skattlagningu fjárfestinga fyrirtækja í verðbréfasjóðum. „Viðskiptaráð gerir athugasemd við þessi vinnubrögð og telur þau ekki í samræmi við góða stjórnsýsluhætti. Ráðið skorar á ráðherrann að svara erindinu um hvort ráðherrann hyggist taka það til skoðunar og/eða taki afstöðu til þeirra tillagna sem þar koma fram,“ segir í tilkynningu á vef Viðskiptaráðs. Viðskiptablaðið fjallaði ítarlega um bréf Viðskiptaráðs til Daða fyrir ári síðan. Í stuttu máli felast athugasemdir ráðsins í því að núverandi skattalöggjöf valdi því að ávinningur af fjárfestingum á milli fyrirtækja í gegnum verðbréfasjóði er tvískattlagður. Ráðið sagði þessa tvískattlagningu draga úr samkeppnishæfni skattkerfisins, hagkvæmni miðlunar fjármagns og umfangi fjárfestinga hérlendis. Sjá einnig Daði Már fær bréf vegna tvísköttunar „Um er að ræða skattlagningu á óinnleystan hagnað hlutdeildarskírteina fyrirtækja sem síðan er aftur skattlagður við innlausn,“ segir í tilkynningu ráðsins. „Þegar óinnleystur hagnaður er skattlagður á þennan máta getur það þýtt að fyrirtæki selji hlutdeildarskírteini sín einfaldlega því þau hafa ekki fjármagn til að greiða skattinn af þeim. Slík tvísköttun fælir fyrirtæki frá fjárfestingum í verðbréfasjóðum og gerir slíkar fjárfestingar óstöðugri, með minni sérhæfingu og áhættudreifingu. Þannig stuðlar skatturinn að verri nýtingu fjármagns en ella. Um er að ræða hagsmunamál fyrir Ísland en óskilvirk miðlun fjármagns fælir frá fjárfesta og veikir samkeppnishæfni landsins.“