Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Daði og bindiskyldan

Read Full Article →

Hrafnarnir furða sig oft á framgöngu Daða Más Kristóferssonar, sem situr ókjörinn í stóli fjármálaráðherra. Sem kunnugt er lýsti Þórður Snær Júlíusson, fyrrverandi þingmaður, því yfir á dögunum að bankaskatturinn á skuldir viðskiptabankanna yrði hækkaður á næsta ári á bloggsíðunni Kratanum. Vakti þetta töluvert umtal enda var þarna um að ræða innherjaupplýsingar sem vörðuðu fyrirtæki skráð í Kauphöllinni. Þá steig Daði fram og sagði ekkert hafa verið ákveðið í þessum efnum. Það virðist þó vera hálfsannleikur, þar sem hann var í viðtali í Morgunblaðinu þar sem Andrea Sigurðardóttir spurði hann út í þessi áform og hvort hann óttaðist ekki áhrifin sem gætu orðið af því að hækka útlánsvexti til heimila og fyrirtækja. Daði svaraði því til að þetta væri ekkert mál þar sem Ásgeir Jónsson og hans fólk í Seðlabankanum gætu einfaldlega lækkað bindiskylduna til að vega á móti skattlagningu útlána. Hröfnunum finnst ekki skrýtið að skuldabréfamarkaðurinn gefi skýr skilaboð um litla trú á stjórn efnahagsmála þegar fjármálaráðherra landsins býður upp á svona röksemdafærslu. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum VIðskiptablaðsins.

Share this article