Innlent | mbl | 13.5.2026 | 20:00 Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Lúkas Geir Ingvarsson fékk manndrápsdóm sinn mildaðan. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Gufunesmálið Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Sakborningar gefa nýjar skýrslur í Landsrétti » Fleiri tengdar fréttir Við ákvörðun þess að milda manndrápsdóma yfir þeim Stefáni Blackburn, Lúkasi Geir Ingvarssyni og Matthíasi Birni Erlingssyni leit Landsréttur til þess að Stefán og Lúkas hefðu sýnt mikla iðrun við meðferð málsins og einnig til þess að Matthías var aðeins 18 ára gamall er morðið var framið. Landsréttur mildaði fyrr í dag dóma yfir Stefáni og Lúkasi úr 17 árum í 16 og dómi yfir Matthíasi úr 14 árum í 12. Er um að ræða dóma vegna manndráps þremenninganna á Hjörleifi Hauki Guðmundssyni í mars í fyrra. Þá var dómur yfir konu sem sýknuð hafði verið í héraðsdómi snúið við og hún sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu vegna málsins en annar maður sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við morðið í héraði var sýknaður. Frétt af mbl.is Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi Snerist alltaf um peninga Matthías fór fram á það að ákæru gegn honum yrði vísað frá þar sem engin tiltekin ofbeldisverk sem leitt hafi til andlátsins séu eignuð honum í ákærunni heldur sé vísað til almennrar fullyrðingar í upphafi ákærunnar um margþætt og hrottafengið ofbeldi allra ákærðu í sameiningu. Landsréttur féllst hins vegar ekki á þá röksemd Matthíasar. Stefán vísaði til þess í framburði sínum fyrir dómi að hann hefði talið sig hafa beitt grófasta ofbeldinu er hann braut handlegg Hjörleifs. Hann hafi þó aldrei talið áverka Hjörleifs vera lífshættulega er Hjörleifur var skilinn eftir á göngustíg í Gufunesi. Hann segir málið alltaf hafa snúist um peninga og ekki hafi verið ætlunin að beita Hjörleif ofbeldi. Frétt af mbl.is Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán tók tjakkinn af Matthíasi Lúkas sagðist hafa veitt Hjörleifi 20 til 30 högg í iðnaðarbili í Mosfellsbæ. Af þeim hafi tíu verið þung. Lúkas sagði þó Matthías hafa á sama tíma veist að Hjörleifi með bíltjakki og veitt honum högg í hendur, fætur og búk, Stefán hafi þá komið og tekið tjakkinn af Matthíasi vegna þess að hann hafi ekki viljað nota vopn. Segir Lúkas þá að endingu hafa áttað sig á því að þeir fengu ekki Hjörleif til að greina þeim frá aðgangsorðinu á bankareikningi sínum og að aðgerð þeirra væri farin út um þúfur. Lúkas segist hafa átt hugmyndina að því að kúga fé út úr Hjörleifi. Matthías vildi litlu bæta við framburð sinn frá því í héraðsdómi en hann sagðist ekki hafi orðið var við það að Hjörleifur hafi verið beittur ofbeldi í iðnaðarbilinu. Frétt af mbl.is Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Sýndu skeytingarleysi um líf Hjörleifs Taldi Landsréttur að framburður Stefáns og Lúkasar um aukna hlutdeild Matthíasar í morðinu væri ekki trúverðugur en að Matthías hefði þó í framburði sínum leitast við að gera minna úr sínum hlut en raunin var. Var talið ljóst að Matthías hefði tekið virkan þátt í atburðarásinni. Þrátt fyrir að þeir dæmdu hafi borið fyrir sig að þeir hefðu ekki talið áverkana lífshættulega taldi Landsréttur ljóst að þeir hefðu með því að skilja Hjörleif eftir bjargarlausan um hánótt í Gufunesi hafi þeir sýnt algjört skeytingarleysi um líf Hjörleifs, var því sakfelling vegna manndráps staðfest. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að Stefán og Lúkas hefðu sýnt mikla iðrun vegna háttsemi sinnar og auk þess að þeir hefðu í fangelsinu á Litla-Hrauni stundað vinnu og verið virkir í meðferðarstarfi. Við mat á refsingu Matthíasar var ekki litið til þessara þátta en þó tiltekið að hann hefði aðeins verið 18 ára gamall er morðið var framið auk þess sem hafi ekki verið skipuleggjandi verknaðarins og komið síðar á vettvang. Frétt af mbl.is „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Mjög hræddur við Matthías og Lúkas Konan sem var sakfelld fyrir hlutdeild í frelsissviptingu en sýknuð fyrir hlutdeild í ráni átti þátt í málinu með því að hringja í Hjörleif og fá hann út í bifreiðina á fölskum forsendum. Hún neitaði því staðfastleg að hún hafi vitað að til stæði að frelsissvipta Hjörleif og beita hann ofbeldi. Taldi Landsréttur þó, ólíkt Héraðsdómi Suðurlands, að konunni hefði ekki getað dulist að hún væri með háttsemi sinni að koma Hjörleifi í aðstæður þar sem honum stæði ógn af Lúkasi og samverkamönnum hans. Þó hafi hún ekki haft nokkra vitneskju um að ofbeldi kynni að koma til. Taldi dómurinn því að rétt væri að sakfella hana fyrir frelsissviptingarákæruna en sýkna fyrir ákæruna vegna hlutdeildar í ráni. Maðurinn sem var sýknaður af ákæru vegna peningaþvættis fékk millifært á sig það fé sem þremenningarnir höfðu af Hjörleifi. Hann sagðist hafa verið þvingaður af Matthíasi og Lúkasi til að gefa upp reikningsupplýsingar sínar og ekki vitað að til stæði að leggja inn á sig fjármuni. Sagðist maðurinn hafa verið mjög hræddur við Matthías og Lúkas og talið sig vera að setja velferð sína og fjölskyldu sinnar í hættu með því að veita ekki upplýsingarnar. Taldi Landsréttur framburð hans trúverðugan og taldi því ekki skilyrði uppfyllt til að sakfella manninn. Tengdar fréttir Gufunesmálið Gufunesmálið: Átti von á mildari dómi „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Sakborningar gefa nýjar skýrslur í Landsrétti » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Búið að kæra Kane Í gæsluvarðhaldi vegna gruns um alvarlegt kynferðisbrot Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Grýttu Clapton af sviði í Madríd Myndskeið: Reyndi að hugga Ronaldo Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hörð gagnrýni á yfirvöld vegna Grindavíkur Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Búið að kæra Kane Í gæsluvarðhaldi vegna gruns um alvarlegt kynferðisbrot Litið til þess að þeir hefðu sýnt iðrun Grýttu Clapton af sviði í Madríd Myndskeið: Reyndi að hugga Ronaldo Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík „Allt ægilega flókið bla bla“ Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Fer ekki í flík látins bróður í fjósið Skellt í lás í rótgrónu bakaríi „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu