Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Landsréttur mildar refsingu Lúkasar og Stefáns

Read Full Article →

Landsréttur mildaði í dag refsingu Stefáns Blackburn og Lúkasar Geirs Ingvarssonar í 16 ára fangelsi. Matthías Björn Erlingsson hlaut 12 ára fangelsisdóm. Áður höfðu þeir Stefán og Lúkas Geir verið dæmdir í 17 ára fangelsi í Héraðsdómi vegna aðildar þeirra að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, frelsissviptingu, fjárkúgun og ráni. Matthías Björn var áður dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir sömu sakir í héraðsdómi. Einnig var felldur dómur yfir 18 ára pilti og tvítugri stúlku sem tengjast málinu. Pilturinn var sýknaður fyrir Landsrétti en stúlkan dæmd í 6 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Pilturinn var áður dæmdur í héraðsdómi í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í málinu. Stúlkan var sýknuð í héraði af aðild að frelsissviptingu og ráni. Stúlkan hringdi í Hjörleif og lokkaði hann út af heimili sínu og í bíl Stefáns. Farið var fram á 24 mánaða fangelsi yfir henni, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna. Héraðssaksóknari áfrýjaði sýknudómi hennar meðal annars á þeim forsendum að hún hefði tengsl við fleiri tálbeitu- og fjárkúgunarmál. Hjörleifur Haukur var numinn á brott af heimili sínu í Þorlákshöfn 10. mars. Í ákæru segir að hann hafi verið beittur hrottafengnu ofbeldi í fimm klukkustundir sem dró hann til dauða og verið skilinn eftir klæðlítill á göngustíg við Gufunes í Reykjavík. Þar fannst hann í morgunsárið nær dauða en lífi. Hann lést á Landspítalanum skömmu eftir að komið var með hann þangað. Fimm tennur voru brotnar í Hjörleifi og poki settur yfir höfuð hans til að þvinga hann til að gefa upp aðgangsorð að heimabanka. Ákærðu komust inn í heimabanka Hjörleifs með aðgangsorði hans og rafrænum skilríkjum og millifærðu þrjár milljónir króna af reikningi hans inn á reikning eins sakborninganna.

Share this article