Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Þetta mál er harmleikur“

Read Full Article →

Aðalmeðferð Þorlákshafnarmálsins hófst í Landsrétti í morgun. Réttað er yfir fimm manns. Þrír þeirra, Lúkas Geir Ingvarsson, Stefán Blackburn og Matthías Björn Erlingsson hlutu þunga dóma fyrir aðkomu sína að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar. Hjörleifur var numinn brott af heimili sínu í Þorlákshöfn 10. mars í fyrra og lést á Landspítala daginn eftir eftir að hafa fundist meðvitundarlaus og klæðlítill í Gufunesi eftir að hafa sætt barsmíðum og misþyrmingum. Lúkas og Stefán voru hvor um sig dæmdir í 17 ára fangelsi fyrir manndráp, frelsissviptingu, fjárkúgun og rán og Matthías 14 ár fyrir sömu sakargiftir. Lögmenn allra þriggja áfrýjuðu dómunum. Þá áfrýjaði héraðssaksóknari dómum hinna tveggja; tvítugrar stúlku sem var sýknuð af ákæru um aðild að frelsissviptingu og ráni og 18 ára pilts sem var dæmdur í tveggja ára skilorð fyrir aðild að peningaþvætti. „Alveg á hreinu að við vorum ekkert að klára vakt í Krónunni“ Aðalmeðferðin hófst á því að framburður Stefáns Blackburn fyrir héraðsdómi Suðurlands í lok ágúst í fyrra var spilaður á sjónvarpsskjá. Þar lýsti hann nokkuð ítarlega atburðum kvöldsins 10. mars og aðfaranótt 11. mars, að þremenningarnar hefðu ginnt Hjörleif heitinn á brott af heimili sínu, misþyrmt honum á ýmsan hátt, meðal annars handarbrotið hann, neytt hann til að gefa upp lykilorð reiknings síns og síðan skilið hann eftir klæðlítinn við göngustíg í Gufunesi. Eins og fram kom í fréttum RÚV á þeim tíma sagði Stefán að þetta hefði aldrei átt að ganga svona langt, tilgangurinn hefði eingöngu verið að hafa fé af Hjörleifi og enginn ásetningur hefði verið til að ráða honum bana. Þetta hafi verið harmleikur sem fór úr böndunum. „Það var alveg á hreinu að við vorum ekkert að klára vakt í Krónunni. Við vorum að gera ólöglega hluti,“ sagði Stefán í framburði sínum í ágúst sem spilaður var í Landsrétti í morgun. Eftir að framburður Stefáns hafði verið sýndur gaf hann viðbótarskýrslu og svaraði spurningum Hrafnhildar M. Gunnarsdóttur saksóknari sem sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Stefán sagði að það hefði verið sláandi að sjá framburð sinn síðan í ágúst. Í mars í fyrra, þegar Hjörleifur var numinn á brott, hefði hann verið að jafna sig eftir langvarandi fíkniefnaneyslu og hefði verið ósofinn eftir sólarhringa neyslu. Segir ofbeldi sitt hafa verið í mýflugumynd Hann vildi árétta að það sem hann hefði átt við í framburðinum, um að taka stjórnina - hefði verið að koma sér og öðrum sakbornungum í skjól, hann hefði verið betur kunnugur staðháttum en þeir. Hann sagði aðkomu sína að ofbeldi sem Hjörleifur var beittur á Esjumelum hefði verið „í mýflugumynd“ - eins og hann orðaði það sjálfur, hann hefði beitt ofbeldi, en hefði ekki verið meðvitaður um að áverkanir gætu verið lífsógnandi. Stefán sagðist hafa ákveðið að fara með Hjörleif á fjölfarinn stað þar sem hann gæti fundist. „Ég valdi Gufunes vegna þess að ég þekkti þar til. Ekki íbúðagötu eða fyrir framan blokk - það er ekkert leyndarmál að við vorum að fremja glæp. Ég var nokkuð viss um að lögreglan væri á eftir okkur,“sagði Stefán. Grunaði ekki að Hjörleifur væri í lífshættu „Fötin hans tengdu okkur við málið, vildum koma honum í skjól þar sem hann gæti fengið aðstoð en vildum á sama tíma koma okkur í skjól. Ekki á einum einasta tímapunkti grunaði mig að Hjörleifur væri í lífshættu. Þá hefðum við komið honum á spítala.“ Að taka mannslíf er ekkert grín og þessi maður átti aldrei skilið að deyja. Stefán sagði að það hefði ekki verið ásetningur að taka símann af Hjörleifi svo hann gæti ekki leitað aðstoðar, heldur hefði hann orðið eftir fyrir slysni í bíl Matthíasar. „Það var ekki meiri hugsun en það með símann,“ sagði Stefán. Hélt að Hjörleifur gæti leitað aðstoðar Hann sagðist hafa talið Hjörleif vera með áverka á hönd, fæti og ýmsa minniháttar áverka sem hefðu ekki átt að hindra hann í að leita sér hjálpar. Stefán sagðist hafa verið í mikilli sjálfsvinnu síðustu mánuði. „Ég á börn, en þau eiga ekki pabba í dag. En hann kemur aftur. Fjölskylda Hjörleifs fær ekki sinn pabba aftur og ég votta þeim mína dýpstu samúð. Þetta mál er harmleikur.“

Share this article