Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

,,Ég myndi ekki fyrirgefa mér“

Read Full Article →

Lúkas Geir Ingvarsson, annar þeirra tveggja sem fengu 17 ára dóm í Þorlákshafnarmálinu fyrir aðild sína að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar í mars í fyrra, segir að hann myndi ekki fyrirgefa sér, væri hann aðstandandi Hjörleifs. Lúkas áfrýjaði dómnum og aðalmeðferð hófst í Landsrétti í morgun. Eftir að framburður Stefáns Blackburn, sem líka fékk 17 ára dóm hafði verið spilaður og Stefán gefið viðbótarskýrslu var röðin komin að Lúkasi. Framburður hans fyrir héraðsdómi Suðurlands í ágúst var spilaður og sýndur á sjónvarpsskjá, síðan gaf hann viðbótarskýrslu og svaraði spurningum Hrafnhildar M. Gunnarsdóttur saksóknari sem sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. „Það er ekkert grín þetta mál,“ sagði Lúkas. Hann sagði að allir þeir þrír, sem voru dæmdir fyrir manndráp, frelsissviptingu, fjárkúgun og rán; hann, Stefán Blackburn og Matthías Björn Erlingsson sem var dæmdur til 14 ára fangelsisvistar, hefðu allir verið settir undir sama hattinn í dómnum. Ekki væru skýr skil á milli þess hver hefði gert hvað. Hef sparkað svona í menn svona 200 sinnum Lúkas sagði að Matthías hefði verið sá eini sem var allan tímann með Hjörleifi í iðnaðarbili á Esjumelum þar sem honum var misþyrmt. Sjálfur taldi hann að hann hefði veitt honum um tíu þung högg og eitt spark. „Ég hef sparkað svona í menn svona 200 sinnum og enginn var í lífshættu,“ sagði Lúkas. „Ég vildi ekki að við værum að berja manninn fram og til baka fyrir ekki neitt.“ Lúkas Geir sagði að aldrei hefði staðið til að stofna lífi Hjörleifs í hættu og lýsti yfir iðrun sinni vegna málsins og sagðist finna mikið til með fjölskyldu Hjörleifs. „Ég myndi ekki fyrirgefa mér ef ég væri í þeirra sporum, mér þykir þetta mjög leitt.“ Hafði áður tekið þátt í tálbeituaðgerðum Lögmaður Lúkasar, Stefán Karl Kristjánsson, spurði hann hvort hann hefði áður átt hlutdeild í tálbeituaðgerðum eða villt á sér heimildir til að ná sér í fé. Lúkas sagði svo vera. Spurður hvernig þær aðgerðir hefðu endað sagði hann að þær hefðu endað illa, en ekki á sama hátt og nóttina sem Hjörleifur lét lífið.

Share this article