Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þorlákshafnarmálið tekið fyrir í Landsrétti

Read Full Article →

Þorlákshafnarmálið verður tekið fyrir í Landsrétti í dag og næstu tvo daga. Alls eru fimm sem tengjast því. Áður höfðu þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson verið dæmdir í 17 ára fangelsi í Héraðsdómi vegna aðildar þeirra að andláti Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, frelsissviptingu, fjárkúgun og ráni. Matthías Björn Erlingsson var dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir sömu sakir. Allir hafa þeir áfrýjað dómum sínum til Landsréttar. Samkvæmt heimildum fréttastofu verður til umfjöllunar matsgerð sem unnin var að beiðni lögmanna Stefáns og Lúkasar um það hvort dánarmein Hjörleifs hafi verið eitthvað annað en barsmíðar, þá mögulega hvort læknismeðferð hefði valdið dauða hans. Sú matsgerð var lögð fram munnlega við fyrirtöku málsins og þar kom fram að ekki hefði verið hægt að færa sönnur á að eitthvað annað en ofbeldi hefði valdið andlátinu. 18 ára piltur og tvítug stúlka sem einnig tengjast málinu koma einnig fyrir dóm í dag. Pilturinn var áður dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti í málinu. Stúlkan var sýknuð af aðild að frelsissviptingu og ráni. Stúlkan hringdi í Hjörleif og lokkaði hann út af heimili sínu og í bíl Stefáns. Farið var fram á 24 mánaða fangelsi yfir henni, þar af þrjá mánuði óskilorðsbundna. Ríkissaksóknari áfrýjaði sýknudómi hennar meðal annars á þeim forsendum að hún hefði tengsl við fleiri tálbeitu- og fjárkúgunarmál. Hrottaleg frelsissvipting Hjörleifur Haukur var numinn á brott af heimili sínu í Þorlákshöfn 10. mars. Í ákæru segir að hann hafi verið beittur hrottafengnu ofbeldi í fimm klukkustundir sem dró hann til dauða og verið skilinn eftir klæðlítill á göngustíg við Gufunes í Reykjavík. Þar fannst hann í morgunsárið nær dauða en lífi. Hann lést skömmu eftir að komið var með hann á sjúkrahús. Fimm tennur voru brotnar í Hjörleifi og poki settur yfir höfuð hans til að þvinga hann til að gefa upp aðgangsorð að heimabanka. Samkvæmt ákærunni voru það einkum tveir karlmenn úr hópi ákærðu sem beittu hann ofbeldi. Ákærðu komust inn í heimabanka Hjörleifs með aðgangsorði hans og rafrænum skilríkjum og millifærðu þrjár milljónir króna af reikningi hans inn á reikning eins sakborninganna.

Share this article