Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ótrúlegur kraftur í Grindavík segir hafnarstjórinn

Read Full Article →

„Veturinn var okkur óhagstæður veðurfarslega,“ segir Sigurður Arnar Kristmundsson, hafnarstjóri í Grindavík, við vertíðarlok. „Suðaustanáttin var mjög ríkjandi hér í apríl og menn þurftu svolítið að leita til annarra hafna,“ segir Sigurður. Apríl hafi því verið mánuður dálítillar niðursveiflu. „Við erum með svipað magn og í fyrra en við vorum að gera okkur vonir um að það yrði aðeins meira.“ Meiru landað á seinni hluta ársins en áður Að sögn Sigurðar er landaður afli í Grindavík um ellefu þúsund tonn þegar komið er fram á 11. maí sem er gamli vertíðarlokadagurinn. „Miðað við sama tímabil í fyrra er það mjög svipað. Ætli það hafi ekki verið átján þúsund tonn 2022 og þangað stefnum við,“ segir hann. Það vantar því talsvert upp á að vertíðin skili jafn miklu og áður fyrr. Sigurður tekur hins vegar fram að taflið hafi snúist við að því leyti að landað aflamagn í fyrra hafi verið meira á síðari hluta árs en á fyrri hlutanum. Á árinu 2022 hafi 58 prósent af ársaflanum komið fram til 11. maí. Í fyrra hafi 44 prósent af aflanum komið á land á því tímabili. Afla ekið í bæinn „Við gerum okkur vonir um að núna verði það sama uppi á teningnum og það verði meiri landanir seinni partinn á þessu ári en var 2022,“ segir Sigurður. Þrátt fyrir þessa stöðu segir Sigurður ekki hafa skort hráefni til vinnslu í Grindavík, afla sé einfaldlega ekið þangað frá öðrum löndunarhöfnum eins og til dæmis Hafnarfirði, Þorlákshöfn og Sandgerði. „Þeir eru alvanir að skutla þessu fram og til baka,“ segir hann. Koma með fiskinn sem þeir lofuðu Sigurður minnir á að útgerðarmenn í Grindavík hafi sagst ætla að koma með fisk til löndunar í Grindavík eins og þeir mögulega geti og það hafi þeir staðið við. Það sé aðeins vegna veðurs sem það gerist ekki. Bæjarbúar og fyrirtæki í Grindavík eru síst af baki dottin þrátt fyrir náttúruhamfarirnar sem enn sér ekki alveg fyrir endann á. Sigurður segir fyrirtækin í Grindavík vera að byggja upp. Byggi þó þau geti ekki tryggt ný mannvirki „Orkuverið er að fjárfesta og Bláa lónið er að fjárfesta. Og Samherji er nýbúinn að reisa hér stóra seiðaeldisstöð. Þeir gera þetta þrátt fyrir að tryggingafélögin séu ekki með þeim í liði. Eins og staðan er núna geta þeir ekki brunatryggt þessi mannvirki gegn aðsteðjandi náttúruvá,“ segir Sigurður. Hagnaðarvonin drifkraftur Þetta segir hafnarstjórinn vera gert vegna þess að tækifærin á svæðinu sé svo mikil. Það komi að því að fyrirtækin geti tryggt. „Hagnaðarvonin er slík að menn fara af stað,“ segir hann. Fiskeldið verður að sögn Sigurður stór þáttur í starfsemi þjónustufyrirtækja í bænum sem sé miðsvæðis í þeim efnum. „Viknordik leigði hér þrjú þúsund fermetra undir sína starfsemi. Það er 23 manna plastsuðufyrirtæki sem sérhæfir sig í að þjónusta fiskeldisfyrirtæki,“ nefnir hann sem dæmi. Ekkert annað sem kemur til greina „Það eru alls konar vísbendingar um það að atvinnulífið hér sé að eflast,“ heldur Sigurður áfram. Meira sé selt af rafmagni og heitu vatni. „Það er alveg ótrúlegur kraftur í þessum fyrirtækjum. Það er ekkert annað sem kemur til greina en að starfsemin sé í Grindavík. Ég held að föðurlandsástin hafi blossað upp af krafti og var alveg nóg fyrir. Þetta er gengið út fyrir öll velsæmismörk,“ segir Sigurður í léttum tóni. Markmiðið að Grindavík lifi „Menn eru ekki endilega að hugsa um hvað sé hagkvæmast hverju sinni heldur bara að Grindavík lifi þetta af. Það er eina markmiðið. Á endanum sé það hagur þeirra að fá að vera hér áfram og reka sín fyrirtæki og búa að þeim möguleikum sem hér eru til staðar.“

Share this article