Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hörkuveiði að loknu hrygningarstoppi

Read Full Article →

Hrygningastoppi lauk þann 21. apríl og allt frá þeim tíma hefur verið hörkuveiði. Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur siglt í um 10 mínútur frá bryggju í Grindavík og þar hefur verið lagt. Aflinn hefur að langmestu leyti verið þorskur. Frá 21. apríl til 10. maí hefur aflinn að jafnaði verið 400 kg. á bjóð og heildaraflinn á því tímabili hefur verið um 220 tonn. Fjölnismenn ráðgera að róa áfram frá Grindavík næstu dagana en gera síðan ráð fyrir að færa sig austur á land eða til Neskaupstaðar. Vonast þeir til að veiðin eystra verði hin ágætasta. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar er rætt við Júlíus Magnús Sigurðsson og Kristinn Arnberg Kristinsson, skipstjóra á Fjölni GK, en Vísir í Grindavík gerir bátinn út. Voru skipstjórarnir inntir eftir fréttum um aflabrögð í aprílmánuði og það sem af er maí. Hjá þeim kom fram að tíðarfar í byrjun aprílmánaðar hafi leitt til þess að lítið hafi verið róið. Það voru brælur dögum saman á þeim tíma og þá var tækifærið notað til að skipta um skrúfu á bátnum.

Share this article