Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjölnismenn hæstánægðir með febrúar

Read Full Article →

Skipstjórar krókaaflamarksbátsins Fjölnis frá Vísi í Grindavík, Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson, segja að febrúar hafi verið hörkumánuður. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar, móðurfélags Vísis. Þar segir að hinar tvær áhafnir Fjölnis hafi farið í samtals sautján róðra í febrúar og fengið rúmlega 218 tonna afla. Mjög vel hafi aflast þegar unnt hafi verið að róa vegna veðurs. Meðal bestu febrúarmánaða Haft er eftir Kristni Arnberg að afli hafi jafnvel verið yfir 20 tonn í róðri. „Þetta gekk afar vel. Bestu túrarnir yfir 20 tonn og nokkrir á bilinu 15 – 17 tonn. Fiskurinn sem fékkst var líka stór og fallegur, meðalvigtin líklega 7 – 9 kíló. Það dró úr veiðinni þegar loðnan kom á miðin en þannig er það ávallt. Þetta er á meðal bestu febrúarmánaða sem ég man eftir og það var hægt að róa meira en oft áður þó að síðasta vika mánaðarins félli að mestu niður vegna veðurs,” segir Kristinn Arnberg á svn.is . Fjölnismenn geti ekki annað en verið ánægðir Þá segir að Júlíus Magnús hafi ekki verið síður ánægður með febrúar sem hafi verið með bestu febrúarmánuðum. Báturinn Fjölnir sé gerður út frá Grindavík en veðrið hafi stundum þau áhrif að róið sé frá öðrum höfnum. „Í febrúar voru til dæmis farnir fimm róðrar frá Grindavík, einnig fimm frá Þorlákshöfn og sjö frá Sandgerði. Aflabrögðin í mánuðinum voru mjög góð og það má alveg tala um mokfiskirí. Það er alltaf góð veiði áður en loðnan kemur á svæðið og það brást svo sannarlega ekki. Þessi flotti febrúarmánuður bættist við janúar sem var afar góður líka. Við Fjölnismenn getum ekki annað en verið ánægðir með byrjun þessa árs,” er haft eftir Júlíusi Magnúsi á vef Síldarvinnslunnar.

Share this article