Innlent | Morgunblaðið | 13.2.2026 | 19:58 Metfjöldi bíður bráðamóttöku Í desember var gripið til þess örþrifaráðs að sinna sjúklingum í bílskúr bráðamóttökunnar. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs Landspítala segir „hægfara rútuslys“ hafa orðið á spítalanum undanfarin ár. Aldrei hafi jafnmargir þurft að bíða eftir þjónustu bráðamóttökunnar en fjöldinn hefur margfaldast síðustu þrjú árin. Á sama tíma og fólk bíður eftir þjónustu eru ríflega hundrað sjúklingar sem geta ekki séð um sjálfa sig, komast ekki að á dvalarheimilum, og dvelja því á spítalanum. „Við höfum aldrei séð þessar tölur svona háar,“ segir Gunnar Ágúst Beinteinsson, framkvæmdastjóri rekstrar- og mannauðssviðs Landspítalans. Hann segir spítalann hafa verið rekinn réttum megin við núllið undanfarin ár en nú muni fimm milljörðum á milli fjárheimilda spítalans og rekstraráætlunarinnar. Raunvöxtur spítalans í fjárheimildum, sem nú er um 1,3%, þyrfti að vera ríflega tvöfalt meiri að mati stjórnenda. Gunnar telur eðlilegt að gera þá kröfu á stóra stofnun að hún hagræði og bæti rekstur sinn. Aftur á móti sé ósanngjarnt að í fjárheimildunum núna sé ekki gert ráð fyrir kostnaði sem hlýst af opnun bráðamatsdeildar, sem verður um mitt ár. Þá vanti upp á verðlags- og launabætur vegna nýs kjarasamnings við lækna. Þannig horfi spítalinn fram á að greiða ríflega tvo milljarða aukalega vegna kjarasamningsins, sem ríkið bætir stofnuninni ekki upp. „Það er stór biti til að kyngja,“ segir Gunnar. Frétt af mbl.is Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Verður erfitt Segjum að þetta standi bara svona, og þið fáið ekki þessa fimm milljarða, hvaða áætlun eruð þið með? Hvernig bregðist þið við? „Við erum að stilla því upp, það verður erfitt í þessu umhverfi að hagræða um fimm milljarða. Spítalinn er bara á þeim stað að það er gríðarlega mikið álag, ef við myndum fara í eitthvað svoleiðis þá myndi það alltaf koma niður á þjónustunni. En ég hef ekki trú á því, það er samtal í gangi og það er skilningur á stöðunni.“ Gunnar segir Landspítalann hafa tekið fram í áætlunarbréfi, sem skilað var inn með rekstraráætlun, að spítalinn gæti tekið á sig ákveðna hagræðingu. Hvaða hagræðing væri það? „Við segjum að við getum kannski tekið á okkur 1,4 milljarða. En það verður snúið og erfitt.“ Á hverju byggist sú tala? „Við erum náttúrlega að skoða innkaupin, við erum að skoða hvort við þurfum að hægja á ráðningum í störf sem tengjast ekki klínískri þjónustu – við þurfum að gera ákveðna hluti til að ná þessu fram. Við erum í þeirri vinnu og erum að klára það, við erum að vinna þá áætlun. Við erum að bíða eftir því, hver verður nákvæmlega upphæðin sem verður sett á okkur til að hagræða um,“ segir Gunnar. „En það eru erfiðar aðstæður á spítalanum og mjög margir eru hérna sem eiga ekki að vera á spítalanum. Þetta hefur náð nýjum hæðum, síðustu tvö, þrjú ár, það er bara búið að vera hægfara rútuslys í gangi.“ Ef litið er til baka síðustu fjögur árin hafi að jafnaði 10-15 beðið eftir þjónustu bráðamóttökunnar. Í dag sé fjöldinn kominn upp í 50-60. Á bráðalegudeildum eru of margir sjúklingar á hverri einustu deild og sjúklingar liggja í rúmum frammi á göngum. Á sama tíma liggja ríflega 110 á spítalanum sem ættu í raun að vera á dvalarheimilum. „Svo eru líka Vífilsstaðir, þar eru tæplega 50. Við höfum aldrei – aldrei, séð þessar tölur svona háar, aldrei. Það er bara það sem við erum að segja. Það er ákveðið umhverfi sem við erum í, mjög víða erum við ágætlega mönnuð en mjög víða erum við líka verulega undirmönnuð. Í þessu umhverfi er erfitt að fara í fimm milljarða niðurskurðarverkefni.“ Í fjárheimildum spítalans er gert ráð fyrir raunvexti upp á 1,8 milljarða, sem nemur um 1,3%, til að bregðast við mannfjöldaþróun og breyttri aldurssamsetningu þjóðar. Gunnar segir spítalann telja þörf á raunvexti upp á 2,7%. „Og það má alltaf deila um það.“ Fóru yfir rauða stigið Þú talar um álag á bráðamóttökunni og bráðalegudeildunum, en væri hægt að dreifa álaginu betur á fleiri deildir spítalans þannig að þær myndu taka við fleiri sjúklingum? „Það er það sem við gerðum. Við erum að reyna að jafna álagið á spítalanum. Spítalinn er nánast búinn að gera allt sem hann getur. Við erum bæði búin að fjölga þeim sem bíða á bráðamóttökunni og allar deildir, bráðalegudeildir, eru á rauðu stigi. Fyrir tíu dögum fóru þær yfir rauða stigið af því að við urðum að biðja þær um að taka enn fleiri, þá vorum við með fólkið í bílskúrnum á bráðamóttökunni. Þarna erum við. Við erum að reyna að jafna álagið þannig að það sé jafnt yfir spítalann.“ Hann tekur fram að stjórnendum hafi tekist að bæta mönnun bráðamóttökunnar. „Mönnunin á bráðamóttökunni er orðin ásættanleg.“ En samt var starfsfólkið þar að funda á Hótel Grand. „Já, ég veit það. Aðstæður eru þannig að þrengsli og vinnuaðstæður – þú getur ekki sett fólk í einangrun, vinnuaðstæðurnar þegar þú ert með 36 rými fyrir sjúklinga en ert síðan með hundrað sjúklinga á staðnum, það segir sig alveg sjálft að það gengur ekkert alveg upp.“ Hann segir bráðamatsdeildina, sem vonandi verði tilbúin um mitt ár, munu bæta ástandið. Síðar verði nýi meðferðarkjarninn opnaður með betri bráðamóttöku, sem enn eru nokkur ár í. Þangað til þurfi að bæta ástandið til að brúa þetta bil. „Uppbygging hjúkrunarheimila hefur bara setið á hakanum og á meðan, ég ætla bara að segja það, er hægfara rútuslys búið að eiga sér stað á Landspítalanum. Ef við fengjum rútuslys núna, þá þyrftum við að koma 70 manns út af spítalanum kviss, bamm, búmm! En þetta hefur bara gerst á einhverjum þremur árum. Ástandið núna – við erum bara komin á þann stað þar sem er bara erfitt að veita þjónustu sem við eigum að vera að veita.“ Hver eru úrræðin ykkar þegar þið eruð með of marga sjúklinga sem eiga ekki heima hjá ykkur heldur á dvalarheimilum? Eru þau engin? „Sjúklingarnir eru fastir hjá okkur en fá forgang á hjúkrunarheimilin þegar þeir eru komnir með færni- og heilsumat, þegar það er búið að meta þá þannig að þeir geti ekki verið einir heima. Svo erum við að reyna að útskrifa hraðar aðra sjúklinga og okkur hefur tekist það. Þannig náum við að auka afköstin,“ segir Gunnar. „Þetta er gamall vandi en hann er búinn að ná nýjum hæðum núna.“ Hvað veldur? „Það er fólksfjölgun og breytt aldurssamsetning þjóðar, og uppbygging úrræða hefur bara ekki fylgt. Við vísum engum frá. Við erum 365, 24/7 stofnun og við tökum alltaf við. Við erum bara í þessu sem þjóðarsjúkrahús en það eru ákveðin þolmörk og við erum að banka á þau og við verðum að koma ákveðnum hluta frá okkur til að geta þjónustað aðra.“ En það eru 1,4 milljarðar sem þið getið hugsanlega hagrætt? „Já, þetta er eitthvað sem við höfum sett fram en við þurfum hjálp við þennan kjarasamning, við þurfum rekstrarfé inn í þessa nýju bráðamatsdeild. En það er bara eðlilegt, við eins og allir aðrir þurfum að horfa inn á við og skoða hvar við getum bætt rekstur, og við erum að því. En okkur finnst ekki sanngjarnt að kjarasamningar séu ekki bættir að fullu, okkur finnst ekki sanngjarnt þegar við erum að opna nýja legudeild, 20 manna, að það sé ekki bætt.“ Hann segist þó upplifa skilning á þessari stöðu í samtalinu við stjórnvöld. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Illa farið með fyrrverandi framherja Liverpool Falin myndavél inni á kvennasalerni Pompidou Markahæstur í stórsigri Samþykkti að halda viðræðum við Dani áfram Gleymdi doktorsritgerðinni eftir slys á Íslandi Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Ráðherrann sáttur við Urriðafoss í bið Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Björgunarsveitir kallaðar út á Snæfellsnesi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Grunur um salmonellu í kjúklingalærum Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Illa farið með fyrrverandi framherja Liverpool Falin myndavél inni á kvennasalerni Pompidou Markahæstur í stórsigri Samþykkti að halda viðræðum við Dani áfram Gleymdi doktorsritgerðinni eftir slys á Íslandi Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Pílustaður ekki íþróttamannvirki Hefur haft áhyggjur af heimferð Íslendinga frá Kúbu Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta