Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hlýnar með hægri suðlægri átt og hækkandi sól

Read Full Article →

Hæðarhryggur er yfir landinu og þokast suðaustur og skammt norðaustur af Hvarfi er vaxandi lægðardrag á hreyfingu í norðaustur. Búast má við vægu frosti inn til landsins í morgunsárið en svo hlýnar heldur með hægri suðlægri átt og hækkandi sól. Léttir smám saman til norðan- og austanlands í dag, en þykknar upp sunnan og vestan til með súld eða smá rigningu síðdegis. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast fyrir norðan. Á morgun verður vindur suðaustlægari, strekkingur vestast, en annars hægari. Víða rigning eða súld og úrkomumeira um kvöldið, en þurrt og víða léttskýjað norðaustantil. RÚV / Ragnar Visage

Share this article