Lögfræðistofan BBA//Fjeldco hefur gengið til liðs við sænska félagið AGRD Partners en BBA//Fjeldco er fyrsta lögfræðistofan utan Svíþjóðar sem AGRD fjárfestir í. Halldór Karl Halldórsson, faglegur framkvæmdastjóri BBA//Fjeldco, bendir á að lögfræðistofan hafi vaxið talsvert frá því að BBA og Fjeldco voru sameinuð árið 2019. „Við höfum reynt að vera nýjungagjörn og meðal þeirra fyrstu á markaðinum til að stíga ákveðin skref. Það hefur gagnast okkur vel á þessari vegferð, bæði með aukinni markaðshlutdeild og hröðum og náttúrulegum vexti, á sama tíma og reksturinn hefur haldist heilbrigður og arðbær,“ segir Halldór Karl. „Á síðasta ári sáum við fyrir okkur að næsta skref í átt að áframhaldandi vexti og framgangi félagsins, svo fyrirtækið gæti skarað fram úr, væri að nýta þá gervigreindar- og tæknibyltingu sem nú á sér stað. Það er eiginlega ótrúlegt hvað er hægt að gera á skömmum tíma, hafi maður hugmyndina, þekkinguna og reynsluna til að nýta tæknina rétt. Við fórum því að skoða leiðir til að nýta tækni og gervigreind enn betur.“ Maria-Pia Hope, framkvæmdastjóri AGRD Partners, segir að nú sé tími breytinga á lögfræðiþjónustumarkaðinum. Hún tekur undir með Halldóri að gervigreindin og tæknin sé að ryðja sér mjög hratt til rúms og muni í grundvallaratriðum breyta því hvernig fyrirtæki starfa og veita þjónustu. „Á tímum sem þessum er miklu betra að sameinast í stærri hópi. Það skapar raunverulegan ávinning að geta rætt við fólk sem er að glíma við sömu áskoranir og við stöndum öll frammi fyrir, byggja á bestu starfsvenjum og komast að því hvernig við getum staðsett okkur þannig að við verðum áfram mikilvæg í augum viðskiptavina á markaði sem breytist hratt,“ segir Maria-Pia. „Lögfræðiþjónustumarkaðurinn er mjög áhugaverður að því leyti að hann hefur jafnan vaxið og framlegðin er góð. Þarna er klárt fólk, viðskiptavinir eru gjarnan tryggir og samböndin langvarandi. Ég er viss um að fjárfestingar á þessum markaði munu aukast, sérstaklega í Bretlandi þar sem nú þegar er töluverð virkni. Það verður mjög áhugavert að sjá hvernig þetta þróast,“ segir Maria Pia. Halldór segir að markmiðið sé ekki aðeins að halda áfram vexti stofunnar heldur einnig að auka skilvirkni í þjónustu við viðskiptavini. Með betri nýtingu tækni og gervigreindar eigi að vera hægt að skila meiri afköstum, bæta gæði þjónustunnar og til lengri tíma skapa hagkvæmari verðlagningu. Hvað AGRD varðar segir Maria-Pia að samstæðan muni halda áfram að vaxa en um þessar mundir sé áhuginn mikill. „Við horfum til þess að stækka áfram á Norðurlöndunum. Við höfum átt samtöl sem eru komin vel á veg og erum bjartsýn á möguleikana þar,“ segir Maria-Pia. „Við munum þó ekki hætta þar. Við teljum að til lengri tíma verði þetta sam-evrópsk samstæða. Það mun taka tíma, enda er regluverkið ólíkt milli markaða og við þurfum að vera nokkuð tækifærissinnuð í nálgun okkar.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .