Gengið hefur verið frá viðskiptum þar sem sænska félagið AGRD Partners fjárfestir í BBA//Fjeldco á Íslandi. AGRD var stofnað í fyrra og hefur vaxið hratt á sænskum lögfræðimarkaði. Félagið er í meirihlutaeigu norræna fjárfestingasjóðsins Axcel og hefur sérhæft sig í nýsköpun, stafrænum lausnum og gervigreind á sviði lögfræði. BBA//Fjeldco er fyrsta lögfræðistofan utan Svíþjóðar sem AGRD fjárfestir í. Fjárfestingin er liður í þeirri alþjóðlegu vegferð AGRD að vera leiðandi afl á evrópskum lögfræðimarkaði. Við fjárfestingu AGRD í BBA//Fjeldco endurfjárfesta hluthafar félagsins hluta af greiddu kaupverði, halda áfram störfum sínum fyrir félagið og verða þannig áfram haghafar eftir viðskiptin. Þá fær BBA//Fjeldco aðgang að þekkingu og styrk AGRD Partners á sviði stafrænna lausna og gervigreindar og bætist í hóp annarra framsækinna lögfræðistofa innan raða AGRD. Halldór Karl Halldórsson, faglegur framkvæmdastjóri BBA//Fjeldco, segir þetta fullkominn vettvang fyrir stofuna til að taka næsta skref og nýta þá gervigreindar- og tæknibyltingu sem nú á sér stað. „Við vildum gera þetta á meðan fyrirtækið stendur vel. Við erum enn að vaxa, fyrirtækið er mjög heilbrigt, framlegðin, tekjurnar og hagnaðurinn er góður. Við vildum ekki bíða þar til þessi nýi veruleiki skellur á okkur, heldur að snúa vörn í sókn. Þótt við séum snemma á ferð hér á Íslandi fannst okkur tímasetningin fullkomin,“ segir Halldór Karl. Fjárfesting AGRD í BBA//Fjeldco mun ekki hafa bein áhrif á daglegan rekstur lögfræðistofunnar, sem mun áfram starfa undir eigin nafni. Aftur á móti mun BBA//Fjeldco nýta vettvang AGRD til að veita bestu þjónustuna. „Í okkar huga er þetta að vissu leyti það besta úr báðum heimum: að sameina krafta, nýta sameiginlegan vettvang og fá inn þekkingu á sviðum sem við erum ekki sérfræðingar í, til dæmis í tækni og gervigreind, en halda um leið sjálfsmynd okkar og geta áfram vaxið á markaðinum,“ segir Halldór Karl. AGRD Partners var stofnað á síðasta ári og er eins og áður segir í eigu fjárfestingasjóðsins Axcel. Um er að ræða fyrstu fjárfestinguna með stuðningi einkafjárfesta í lögfræðiþjónustu á Norðurlöndunum. Maria-Pia Hope, framkvæmdastjóri AGRD Partners, segir þau hafa fundið fyrir miklum áhuga, en það hafi skipt þau miklu máli að fá inn stofu sem er í jafn sterkri stöðu og BBA//Fjeldco á markaðinum. „Þannig viljum við byggja AGRD upp. Við viljum að þær stofur sem verða hluti af AGRD standi mjög sterkar. Í ljósi þess hve mikill samhljómur er í hugsun okkar og þess hve framsækin þau eru í greiningu sinni á því hvert markaðurinn stefnir, geta þau sannarlega hjálpað okkur hinum að hugsa um hvernig best sé að takast á við þessar breytingar og tryggja að við séum áfram í fremstu röð,“ segir hún enn fremur. Hún bendir einnig á að sjóðir á borð við Axcel komi ekki aðeins með fjármagn að borðinu, heldur sömuleiðis mikla þekkingu, reynslu af stefnumótun og aðstoð við að byggja upp stjórnenda- og ráðgjafateymi sem geti fylgt vaxtastefnu eftir. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .