Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Forsætisráðherrann segir einnig af sér

  • What: Lettland's prime minister resigns
  • Impact: Political changes in the government of Latvia
Read Full Article →

Evika Silina, forsætisráðherra Lettlands, tilkynnti um afsögn sína í morgun og fer því sömu leið og varnarmálaráðherrann fyrr í vikunni. Forseti landsins ætlar að hitta alla leiðtoga stjórnmálaflokka í dag í þeirri von að hægt verði að mynda starfhæfa ríkisstjórn. Mið-hægri flokkur Silinu, Ný samstaða, missti meirihlutann í þinginu þegar Framfaraflokkurinn dró sig út úr samstarfinu með afsögn Andris Sprüds, varnarmálaráðherra. Hann hafði verið gagnrýndur fyrir viðbrögð sín við því hvernig Lettland hefur orðið á milli í drónahernaði Rússa og Úkraínumanna. Undanfarið hafa nokkrir drónar hrapað til jarðar í aðskildum atvikum í Lettlandi og herinn verið gagnrýndur fyrir að bregðast ekki nægilega fljótt við og skjóta þá niður. Sprüds sagðist með afsögninni vilja koma í veg fyrir að herinn dragist inn í pólitískar deilur. Þrír flokkar mynduðu ríkisstjórn Lettlands. Flokkur forsætisráðherrans Ný samstaða, Framfaraflokkur varnarmálaráðherrans og flokkur grænna og bænda.

Share this article