- What: A law firm is representing individuals who were placed in residential care homes (vistheimili) as children, seeking compensation from the state.
- Impact: Individuals who experienced abuse or neglect in these homes are seeking redress.
Innlent | mbl | 13.2.2026 | 23:00 Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Menn sem voru vistaðir á Bakkakoti sem börn gengu á fund forsætisráðherra í síðustu viku. mbl.is/Karítas 23 einstaklingar frá Bakkakoti og 15 frá öðrum vistheimilum hafa formlega veitt lögmannsstofunni Solidum umboð til að sækja sanngirnisbætur frá ríkinu. Lögmaður stofunnar segir lýsingar þeirra sem þangað hafa leitað sláandi. Í samtali við mbl.is segir Snorri Vidal, lögmaður á Solidum, vistheimilin vera víða um land en hann vilji ekki nafngreina þau. Fjölmargir hafi haft samband eftir að þáttur Kveiks var sýndur á RÚV, þar sem fimm menn stigu fram og sögðust hafa orðið fyrir ofbeldi á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi á tíunda áratugnum. Frétt af mbl.is Margir haft samband eftir Bakkakotsmálið Frétt af mbl.is Kristrún felldi tár „Sláandi lýsingar“ „Þetta eru mjög svona sláandi lýsingar sem maður er að heyra,“ segir Snorri um lýsingar þeirra sem leitað hafa til stofunnar eftir sýningu þáttarins, margir hverjir frá öðrum vistheimilum en Bakkakoti. Segir hann menn m.a. lýsa líkamlegu ofbeldi og kynferðisofbeldi, að lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með börnum og að þeim hafi verið meinað að hafa samband við foreldra sína á meðan á vistun þeirra stóð. „Það er í raun bara sláandi hvað þetta hefur viðgengist.“ Frétt af mbl.is 30 manns leitað til lögmanns „Algjörlega óeðlilegt ástand“ „Það virðist ekki vera neitt heimili sem hafði yfir eins miklum fjölda að ráða og Bakkakot. Einhvern veginn virðast hafa verið þar á tímabili upp undir 15 börn í einu, svona varlega talið, og svo virðist sem barnayfirvöld hafi einhvern veginn ekkert gert sér grein fyrir hvaða börn voru þarna og hversu mörg börn voru þarna hverju sinni. Og krökkunum var bara hrúgað í eitt herbergi [...] þetta var náttúrulega algjörlega óeðlilegt ástand þarna,“ segir Snorri. Eins og staðan er núna fer Solidum með umboð fyrir 38 manns en Snorri segir sig og kollega sinn á stofunni, Bjarka Heiðar Bjarnason, hafa rætt við mun fleiri aðila. „Svo eru aðrir sem eru að gera upp hug sinn, hvort þeir vilji koma fram. Þetta er náttúrulega ofboðslega stórt skref fyrir einstaklinga sem eru kannski búnir að bæla þetta niður til fjölda ára.“ Spurður hvort hann eigi von á því að enn fleiri bætist við segir hann að það myndi ekki koma sér á óvart. „Auðvitað var það upphaflega þannig að við ætluðum eingöngu að sinna þessum Bakkakotsstrákum og við gerðum okkur í raun aldrei grein fyrir þessu umfangi og hvernig þetta yrði.“ Frétt af mbl.is Boðar fjórar aðgerðir: „Átakanlegur fundur“ Í samskiptum við ráðuneytið Solidum og forsætisráðuneytið hafa að sögn Snorra átt í samskiptum þar sem verið er að útfæra næstu skref en t.a.m. hefur verið greint frá því að brugðist verði við Bakkakotsmálinu með fjórum mismunandi aðgerðum, þar af einni sem snýr að því að mönnunum verði boðin sálfræði- og áfallameðferð. „Ég verð virkilega að hrósa ráðuneytinu og þeim ráðuneytisstjóra sem ég hef verið í sambandi við. Það virðist vera faglega unnið að þessu öllu saman og starfsmennirnir eru virkilega vel viljaðir í garð strákanna.“ „Ég á náttúrulega fjögur börn þannig að þetta togar allt saman mjög í hjartastrengina á manni,“ segir Snorri að lokum. Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Röng hugmynd að allt sé erfiðara eftir barnsburð Fór mikinn í toppslag Skotmaðurinn sagður hafa verið „á veiðum“ „Ég er varla farinn að leiða hugann að því að eldast“ Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert Ekki fengið framreiddan mat í 10 daga Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 Harður árekstur á Suðurlandsvegi Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Björgunarsveitir kallaðar út á Snæfellsnesi Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Röng hugmynd að allt sé erfiðara eftir barnsburð Fór mikinn í toppslag Skotmaðurinn sagður hafa verið „á veiðum“ „Ég er varla farinn að leiða hugann að því að eldast“ Látum dæmið ganga upp Heimsmenn og heimabrúk Fleira áhugavert 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Pílustaður ekki íþróttamannvirki Grunaður um peningaþvætti og fíkniefnalagabrot Fjaran hopað 300 metra síðan 1970 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Geta hugsanlega sparað 1,4 milljarða Eldur í bústað við Elliðavatn Harður árekstur á Suðurlandsvegi „Full ástæða til að hafa nákvæmt eftirlit með þessu“ Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin? Bústaðurinn brann til kaldra kola Kettirnir drápust á meðan eigandi var í útlöndum Björgunarsveitir kallaðar út á Snæfellsnesi Hættur á RÚV og heldur í bæjarpólitíkina Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Ekki með eigin flokk að baki sér Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Bæjarstjórinn einn á móti Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Stúlkan fundin heil á húfi Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum