Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur

  • What: Allegations of abuse have surfaced regarding children placed in foster care at Bakkakot in Iceland.
  • Impact: 25 men are requesting an investigation into the conditions of children who were placed at Bakkakot.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.2.2026 | 21:50 Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur 25 menn sem dvöldu í Bakkakoti sem börn krefjast þess að forsætisráðuneytið ráðist í úttekt á aðbúnaði barna sem vistuð voru í Bakkakoti. mbl.is/Karítas Ásakanir um barsmíðar í Bakkakoti voru komnar fram áður en drengur var fluttur þaðan með áverka sem þáverandi húsfreyja viðurkenndi að hafa veitt honum. Fleiri hafa stigið fram og sagt frá vistun þeirra á bænum. Bakkakotsmálið var fyrst til umfjöllunar í Kveik á RÚV fyrir tveimur vikum og hélt sú umfjöllun áfram í kvöld. Í þætti kvöldsins var m.a. rætt við Unnar Þór Sæmundsson sem vistaður var í Bakkakoti sumarið 1999, þá níu ára gamall. Segir hann þáverandi húsfreyja í Bakkakoti, Þóra Elísabet Bernódusdóttir, hafa beitt hann ofbeldi og að karlmaður sem hann veit ekki hver er hafi nauðgað honum í nokkur skipti. Í þættinum kom fram að þeir séu nú 25 talsins þeir menn sem krefjast þess að forsætisráðuneytið ráðist í úttekt á aðbúnaði barna sem vistuð voru í Bakkakoti. Frétt af mbl.is Fleiri vistheimilabörn: „Sláandi lýsingar“ Frétt af mbl.is Boðar fjórar aðgerðir: „Átakanlegur fundur“ Viðurkenndi barsmíðarnar Þá kom aukinheldur fram í þættinum að sumir drengjanna hafi sagt yfirvöldum frá aðstæðum í Bakkakoti á meðan þeir dvöldu þar enn. Þar á meðal hafi verið Friðrik Már Heimisson, sem einnig var rætt við í þætti kvöldsins. Hann hafi reynt að segja frá árið 2001. Það hafi engu breytt því að samningur um að hjónin í Bakkakoti yrðu áfram stuðningsfjölskylda hans var framlengdur. Árið 2002 hafi Friðrik svo komið með ásakanir um drykkju og barsmíðar á heimilinu er hann fór á fund félagsþjónustu Reykjavíkur ásamt móður sinni. Ekki liggur fyrir hvernig brugðist var við þeim ásökunum en ljóst er að börn voru áfram vistuð í Bakkakoti. Segist annar annar drengur, Svavar Þór Georgsson, sem steig fram í fyrsta þætti Kveiks, hafa orðið fyrir barsmíðum tveimur mánuðum eftir að Friðrik sakaði Þóru um ofbeldi. Mun Þóra þá hafa viðurkennt að hafa beitt Svavar ofbeldi en hann var þá samdægurs fluttur af bænum. Frétt af mbl.is Mikilvægt að gera upp rústir fortíðar Fékk síðustu greiðsluna frá Reykjavík árið 2005 Í þættinum var því lýst hvernig Þóra hafi látið drengina afklæðast og nudda sig. Einnig var sagt frá því að hún hafi eitt sinn barið dreng svo illa með girðingarstaur að einn drengjanna, sem varð vitni að árásinni, hélt að drengurinn hefði drepist. Þá var greint frá því að Reykjavíkurborg hafi haft milligöngu um að börn færu í Bakkakot fram á mitt ár 2005 og fékk Þóra síðustu greiðsluna frá borginni í júní það ár, þremur sumrum eftir að greint hafði verið frá ofbeldi sem Þóra sjálf hafði viðurkennt. Markahæstur í Evrópuleik Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Myndir: Skelltu sér á skíði í borginni Frá Haukum og til erkifjendanna Hleðslustríð í Danmörku Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Vonast til að geta fundið Lúðvík Eitur sem ekki hefur verið notað áður Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Markahæstur í Evrópuleik Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Myndir: Skelltu sér á skíði í borginni Frá Haukum og til erkifjendanna Hleðslustríð í Danmörku Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Clinton sakar Trump um yfirhylmingu „Við finnum að símtölin eru þung“ Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Lögreglan lýsir eftir manni Loka fyrir heimsóknir vegna gruns um nóróveiru Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Brynjar hæfastur en er með hugann við annað Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article