- What: An article discusses allegations of abuse at a farm called Bakkakot, where children were sent for summer stays.
- Impact: The article highlights concerns about the safety of children sent to the farm despite prior reports of abuse.
Aftur og aftur reyndu börn og fullorðnir að tilkynna að ekki væri allt með felldu á sveitabænum Bakkakoti þar sem þau voru í vist. Árið 2002 viðurkenndi þáverandi húsfreyja á bænum, Þóra Bernódusdóttir, að hafa barið einn drengjanna – Svavar Þór Georgsson. Samt sendi Reykjavíkurborg börn í sumardvöl á bænum allt fram til ársins 2005 og samt var barn á vegum Kópavogsbæjar ekki tekið af bænum fyrr en tveimur mánuðum eftir ofbeldið. Nánar er fjallað um málið í fréttaskýringarþættinum Kveik í kvöld sem er á dagskrá klukkan 20:15. Þar stíga fleiri einstaklingar fram sem dvöldu í Bakkakoti sem börn. Tekið skal fram að Þóra býr ekki lengur í Bakkakoti og að ábúendur þar nú hafa ekkert með þetta mál að gera. Foreldrar uggandi en starfsfólk sannfærði þá Bjarki Heiðar Bjarnason er lögmaður 25 manna sem voru vistaðir í Bakkakoti sem drengir. Hann segir algjörlega óskiljanlegt að borgin hafi haldið áfram að senda börn í Bakkakot eftir að upp komst um ofbeldið gegn Svavari og eftir að fleiri börn höfðu sagt ofbeldi og áfengisdrykkju viðgangast á bænum. Hann segir að árið 2004 hafi foreldrar fengið á tilfinninguna að eitthvað misjafnt væri í gangi á bænum og haft samband við félagsmálayfirvöld. „Foreldrarnir eru í raun bara sannfærðir um að þetta sé allt í lagi: „Skiljiði bara börnin ykkar eftir, þetta verður allt í lagi.“ Foreldrarnir láta til leiðast og skilja börnin eftir í þessum aðstæðum,” segir Bjarki. Þetta fólk hefur þá ekki fengið að vita hvað hafi gengið á á undan, bæði ásakanirnar og ofbeldið sem þó kom þarna upp? „Ekkert slíkt, foreldrar fengu ekki að vita um eitt eða neitt. Börnin eru skilin þarna eftir. Maður spyr sig: Hverjir eiga að axla ábyrgð? Í sumum tilvikum eru starfsmenn sem fóru með þessi störf á þessum tíma og tóku þessar umræddu ákvarðanir enn þá við störf og eru komnir í yfirmannastöður,“ segir Bjarki. Nánar verður fjallað um málið í Kveik í kvöld og í ítarlegri veffærslu sem birtist klukkan 20:15.