- What: An investigation is being requested into the conditions of children placed in Bakkakot by the city of Reykjavík.
- Impact: The investigation aims to assess the well-being of children placed in the facility between 1999 and 2005.
Innlent | mbl | 20.2.2026 | 11:23 | Uppfært 11:39 Tugir barna á vegum borgarinnar vistuð í Bakkakoti 25 menn sem dvöldu í Bakkakoti sem börn krefjast þess að forsætisráðuneytið ráðist í úttekt á aðbúnaði barna sem vistuð voru í Bakkakoti. mbl.is/Karítas 30 börn fædd á árunum 1982-1996 voru vistuð á vegum Reykjavíkurborgar í Bakkakoti á Suðurlandi þegar þau voru á aldrinum 7 til 17 ára á árunum 1999–2005. Þetta kemur fram í svari sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar við fyrirspurn fulltrúa Framsóknarflokksins í velferðarráði, sem byggir á upplýsingum úr málaskrá félagsmálayfirvalda í Reykjavík. Var svarið lagt fram á fundi velferðarráðs á miðvikudag. Frétt af mbl.is Segist ekki hafa vitað af Bakkakoti Dvalartími eða tíðni liggur ekki fyrir Í fyrirspurninni var óskað eftir upplýsingum um hvort börn hefðu verið vistuð af barnavernd Reykjavíkurborgar í Bakkakoti á Suðurlandi. Hafi það verið gert var óskað eftir upplýsingum um hvernig eftirliti með vistun þeirra hafi verið háttað. Í svarinu kemur fram að langflest hafi börnin verið í sumardvöl en að hvorki liggi fyrir hversu lengi hvert barn hafi dvalist í Bakkakoti né hversu oft. Unnið sé að því að afla þeirra upplýsinga. Vísað er til þess í svarinu að til þess að finna gögn í málaskrá félagsmálayfirvalda sem eldri eru en frá 1999 þurfi að ráðast í umfangsmikla leit í skjalageymslum, vinna úr gögnum um vistanir og handtelja. Hefja leit að skjölum Ekki sé ljóst hversu skýrt sé í þeim gögnum hvar börn voru vistuð, þó að gögnin beri það með sér að um vistun eða beitingu vistunarúrræða hafi verið um að ræða. Hafin sé leit að skjölum í samvinnu við Borgarskjalasafn og þjónustu- og nýsköpunarsvið Reykjavíkurborgar í þeirri viðleitni að ná saman yfirliti. Þá hafi verið rætt við starfsmenn barnaverndar og félagsþjónustu sem starfandi voru á þessum tíma og eru enn starfandi í dag. Þeirri vinnu sé þó ekki lokið. Frétt af mbl.is Viðurkenndi ofbeldi en fékk áfram drengi í fóstur Falið að útbúa álitsgerð um eftirlit Hvað þann hluta fyrirspurnarinnar sem snýr að eftirliti segir í svarinu að hafin sé skoðun á því hvernig eftirliti hafi verið háttað á þessum tíma og hvernig lagaumhverfið sem snéri að eftirliti hafi verið. Lögfræðingum Barnaverndar Reykjavíkur hefur verið falið að útbúa álitsgerð vegna þess. Fulltrúar Framsóknarflokksins þökkuðu skjót svör í bókun á fundinum og óskuðu þar jafnframt eftir því að álitsgerð lögfræðinga Barnaverndar Reykjavíkur um það hvernig eftirliti var háttað verði lögð fram sem allra fyrst. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokks Íslands í velferðarráði lögðu þá fram svohljóðandi bókun: „Fulltrúar samstarfsflokka í velferðarráði eru miður sín yfir því ofbeldi sem börn þurftu að sæta sem vistuð voru í Bakkakoti af hálfu Barnaverndar Reykjavíkur undir lok síðustu aldar og í byrjun þessarar. Binda fulltrúarnir miklar vonir við þá úttekt sem ríkisstjórn Íslands hefur boðað að ráðist verði í. Fulltrúarnir munu leggja sitt af mörkum á næstu misserum til þess að bæta öryggi og aðbúnað fósturbarna, m.a. með sérstakri úttekt á því hvernig eftirliti er háttað af hálfu Barnaverndar Reykjavíkur gagnvart fósturforeldrum í dag en um er að ræða mikilvægt fyrsta skref.“ Frétt af mbl.is Boðar fjórar aðgerðir: „Átakanlegur fundur“ Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Coutinho í vandræðum í Brasilíu Fjölmiðlanefnd bætir við manni „Við eigum besta kjöt í heimi“ Tugir barna á vegum borgarinnar vistuð í Bakkakoti Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Fannst örendur í fangelsinu Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Framleiðslan sögð hefjast fyrr en áætlað var Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Handtaka Andrews vatn á myllu þingmanna Coutinho í vandræðum í Brasilíu Fjölmiðlanefnd bætir við manni „Við eigum besta kjöt í heimi“ Tugir barna á vegum borgarinnar vistuð í Bakkakoti Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Verra en árið 1992 Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Svartsýni í könnun SI um markaðinn Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Myndi virkja um 200 metra fall Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Nýtt met í Hvalfjarðargöngum Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum