Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Álag aukist mikið hjá Barnavernd

  • What: Reykjavík City Council is allocating additional funds to Barnavernd Reykjavíkur (child protection services) to increase staff and operate a new emergency shelter.
  • Impact: The increased funding aims to improve the care and oversight of children in the city's care.
Read Full Article →

Velferðarnefnd Reykjavíkurborgar vill verja tæpum 100 milljónum til viðbótar árlega til Barnaverndar Reykjavíkur til að fjölga starfsfólki og reka nýtt neyðarheimili. Tugir barna voru vistaðir í Bakkakoti á vegum borgarinnar. Reykjavíkurborg var eitt þeirra sveitarfélaga sem sendi börn í vistun í Bakkakot. Þrjátíu börn voru send í Bakkakot á vegum félagsmálayfirvalda á árunum 1999 til 2005 langflest í sumardvöl. „Við bara finnum til ábyrgðar og auðvitað bara sorgar yfir því að þetta hafi gerst. Við vitum að það voru fleiri en þá þarf að fara að grafa ofan í skjalasöfn og svoleiðis þannig að það er bara vinna sem þarf að fara í,“ segir Þyrí Halla Steingrímsdóttir, starfandi framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur. 276 börn eru nú í vistun á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Velferðarráð samþykkti í fyrradag að fela óháðum að gera úttekt á hvernig eftirliti með fósturforeldrum er háttað og skila fyrir lok mars. Á fundi ráðsins var gagnrýnt að Barnavernd Reykjavíkur sinni sjálf eftirliti með fósturforeldrum sem ráðnir eru til starfa. Þannig séu lögin og þeim þurfi að breyta. „Við erum í þeirra stöðu að veita bæði þjónustuna sem er þá vistunin og stuðningurinn, en á sama tíma eigum við að hafa eftirlit með því að vistunin og þjónustan sé í lagi,“ segir Þyrí. „Við sinnum eftirliti eins og lögin bjóða okkur að gera en við teljum að þetta þurfi að vera með öðrum hætti.“ Rúmlega 6500 tilkynningar bárust í fyrra sem vörðuðu 2600 börn Rúmlega 6500 tillkynningar bárust Barnavernd Reykjavíkur í fyrra meðal annars fyrir vanrækslu, ofbeldi og áhættuhegðun. Tilkynningarnar vörðuðu rúmlega 2600 börn. Af þeim var ákveðið að athuga frekar eða vinna áfram með mál 1550 barna. „Það er líka töluvert stór hópur af börnum sem að eru í mjög miklum vanda og það eru þau börn sem enda þá hérna inni hjá okkur á Barnaverndinni.“ Álag hefur aukist mikið hjá Barnavernd Reykjavíkur og hópur barna er í mjög miklum vanda segir framkvæmdastjórinn. Borgin sendi 30 börn í sumarvist í Bakkakot á sex ára tímabili um og eftir aldamót.

Share this article