- What: A Reykjavík city council member is calling for changes to the laws regarding oversight of foster parents.
- Impact: Current oversight has shortcomings and requires immediate action.
Magnús Davíð Norðdahl, borgarfulltrúi Pírata, telur brýnt að Reykjavíkurborg hefji samtal við löggjafann um breytingar á lögum um fyrirkomulag eftirlits með fósturforeldrum. Hann lýsir þungum áhyggjum af brotalömum í eftirlitinu og segir þörf á tafarlausum viðbrögðum. Þetta kom fram í bókun sem Magnús lagði fram á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar að lokinni kynningu framkvæmdastjóra Barnaverndar Reykjavíkur og deildarstjóra fósturteymisins. Þar kom fram að 276 börn væru í vistun á vegum þess. Magnús segir meirihluta velferðarráðs ætla að samþykkja að setja af stað sérstaka óháða úttekt á fyrirkomulagi eftirlits með fósturforeldrum sem starfa fyrir Barnavernd Reykjavíkur. Í bókun fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata og Sósíalistaflokksins er lögð rík áhersla á að eftirlit sé formlegt, virkt, reglubundið og gagnsætt. Mikilvægt sé að verklag og upplýsingaflæði um eftirlit sé skýrt gagnvart öllum sem eigi í hlut, þannig að hægt sé að meta hvort lagaákvæðum og gæðakröfum sé fylgt í framkvæmd. „Þegar börn eru vistuð utan heimilis eru þau í sérstakri viðkvæmri stöðu og því verður að tryggja að samskipti við börn séu raunveruleg, heimsóknir reglubundnar og viðbrögð skýr ef ábendingar eða frávik koma upp.“ Í kynningunni kom fram að Barnavernd Reykjavíkur sinni sjálf eftirliti með fósturforeldrum sem eru ráðnir til starfa og Magnús segir ótækt að þjónustuveitandi sinni sjálfur slíku eftirliti. Hann lýsir þungum áhyggjum af því hvort eftirlit sé í raun fullnægjandi og segir þörf vera á tafarlausum viðbrögðum. Brýnt sé að borgin ræði við löggjafann um lagabreytingar varðandi eftirlitið. Hið sama eigi við um miðlæga skráningu upplýsinga og hvernig þeim er miðlað milli sveitarfélaga og stofnana sem koma að barnaverndarmálum.