Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórfelldir stríðsglæpir í El-Fasher

  • What: A UN report alleges war crimes were committed in El-Fasher, Sudan, by the RSF rebel army.
  • Impact: Over 6,000 people were reportedly killed in a three-day period, with evidence of massacres, executions, torture, kidnapping, and sexual violence against civilians.
Read Full Article →

Rúmlega 6.000 voru drepin í súdönsku borginni El-Fasher á aðeins þriggja daga tímabili á síðasta ári, samkvæmt nýrri skýrslu Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Þar er vitnað í sjónarvotta sem segja RSF-uppreisnarherinn hafa tekið fjölda fólks af lífi. Í skýrslunni segir að vísbendingar séu um fjöldamorð, aftökur, pyntingar, mannrán og kynferðisbrot gegn almennum borgurum. Þetta séu stríðsglæpir og mögulega glæpir gegn mannkyni. RSF hefur ekki brugðist við niðurstöðum skýrslunnar en hefur áður hafnað slíkum fullyrðingum. Skýrslan byggir á vitnisburði fórnarlamba og vitna og og talið er að tölur um mannfall séu mun hærri. Enn er þúsunda saknað eftir umsátur RSF- uppreisnarhersins í El-Fasher sem stóð yfir í eina viku. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, kallar eftir því að stríðsglæpirnir verði rannsakaðir og að herforingjar og aðrir yfirmenn RSF-uppreisnarhersins verði dregnir til ábyrgðar fyrir glæpi sína.

Share this article