Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ódæði RSF-uppreisnarhersins benda til þjóðarmorðs

  • What: A UN investigation has concluded that atrocities committed in El Fasher, Sudan, by the RSF rebel army indicate genocide.
  • Impact: The Zaghawa and Fur tribes in El Fasher are at risk of being partially or completely destroyed.
Read Full Article →

Rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að ódæði sem framin voru í borginni El Fasher í Súdan bendi til þjóðarmorðs . Þetta er það næsta sem Sameinuðu þjóðirnar hafa komist að lýsa því yfir að RSF-uppreisnarherinn fremji þjóðarmorð í stríðinu sem á sér stað í landinu núna. RSF-uppreisnarherinn náði borginni El Fasher, sem staðsett er í vesturhluta Darfúr, á sitt vald í október, eftir átján mánaða umsátur. Þetta var einn grimmilegasti kafli í nærri þriggja ára stríði í landinu. Mona Rishmawi fór fyrir rannsóknarnefndinni. Hún segir sönnunargögn sem nefndin safnaði, meðal annars um langvarandi umsátur borgarinnar, hungur og synjun á mannúðaraðstoð, ásamt fjöldamorðum, nauðgunum, pyntingum og mannránum, aðeins skilja eftir eina rökrétta ályktun. „RSF aðhafðist með það í huga að eyða, að hluta eða öllu leyti, Zaghawa- og Fur-ættbálkunum í El Fasher. Þetta eru einkenni þjóðarmorðs.“ Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að þrír undirliggjandi þættir þjóðarmorðs hafi verið framdir. Dráp á meðlimum verndaðs þjóðernishóps, að valda fólki líkamlegu og andlegu tjóni og vísvitandi skapa lífsskilyrði sem miðuðu að því að valda eyðileggingu hópsins, að hluta eða öllu leyti. RSF hefur ekki tjáð sig um niðurstöðurnar en hefur áður neitað slíkum ásökunum. Í síðustu viku kom út skýrsla Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna þar sem kom fram að rúmlega sex þúsund hafi verið drepin í borginni á aðeins þriggja daga tímabili á síðasta ári. Skýrslan byggði á vitnisburði fórnarlamba og vitna. Talið er að enn fleiri hafi verið drepnir og þúsunda er enn saknað eftir umsátrið. Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, kallaði eftir því að stríðsglæpirnir verði rannsakaðir og að herforingjar og aðrir yfirmenn RSF-uppreisnarhersins verði dregnir til ábyrgðar fyrir glæpi sína.

Share this article