200 mílur | Morgunblaðið | 14.5.2026 | 20:30 Gætum séð banni aflétt í framtíðinni Enn fékkst ágætur humarafli þegar þessi mynd var tekin um borð í Aroni ÞH. Veiðibanni var hins vegar komið á árið 2022 vegna lélegrar stöðu humarstofnsins. Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Humarveiðar Leggja til könnunarveiðar á humri Humarveiðarnar voru skemmtilegt tímabil Ráðleggja áframhaldandi humarveiðibann „Við höfum ekkert gaman af svartsýni“ Tilkynna vísbendingar um vaxandi stofn humars » Fleiri tengdar fréttir Jacob Kasper, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir ástæðu til bjartsýni eftir nýlegar könnunarveiðar sem framkvæmdar hafa verið á leturhumri. Jacob hefur með höndum umsjón með rannsóknum og leiðöngrum hjá stofnuninni og hann gefur jafnframt ráðleggingar um stjórnun humarveiða. Enn er eftir að fara yfir niðurstöður úr könnunarveiðunum en fyrstu niðurstöður eru jákvæðar og Jacob segir ekki útilokað að við gætum séð veiðibanni á humri aflétt í framtíðinni. „Það eru jákvæð teikn á lofti. Hér innanhúss hjá Hafró erum við að vinna meira að því að þróa viðmiðunarpunkta fyrir stofninn svo við getum notað þá við stjórnunina,“ segir Jacob. „Ef málin halda áfram að þróast eins og þau hafa gert myndi ég búast við að veiðar yrðu opnaðar í framtíðinni, já. Ég get ekki gefið neina tímalínu hvað það varðar en það sem við erum að sjá núna lítur mjög vel út.“ Frétt af mbl.is Humarinn mjög kresinn á búsvæði Jákvæðar vísbendingar skömmu eftir bann Leturhumar hefur verið veiddur við Ísland frá því um 1950. Á sjöunda og áttunda áratugnum tóku um 200 bátar þátt í veiðunum en þeim hefur fækkað jafnt og þétt og árin 2020 og 2021 voru aðeins sjö bátar gerðir út á humarveiðar. Árið 2022 var veiðibanni komið á vegna þess að staða humarstofnsins var orðin slæm. „Við fórum í leiðangur árið 2023 með neðansjávarmyndavél og það voru ákveðnar vísbendingar um að fjöldi humarholna væri að aukast aftur,“ segir Jacob. Árið eftir segir hann að stofnunin hafi einnig farið í togleiðangur með Skinney en að aflinn hafi reynst mjög slakur og ekki í samræmi við holutalningu. „Síðan fórum við annan leiðangur með neðansjávarmyndavél árið 2025 og þá voru enn frekari vísbendingar um að holufjöldinn væri að aukast,“ bætir hann við. Jacob Kasper Í síðustu viku hélt Hafrannsóknastofnun aftur á könnunarveiðar í samstarfi við Skinney-Þinganes og Vinnslustöðina og í þetta sinn var aflinn töluvert meiri en gefist hafði í fyrri leiðöngrum. „Það sem við sáum var mikið af humri sem var á bilinu 35-50 sentimetrar,“ útskýrir Jacob. „Það segir okkur að þessi humar var augljóslega lifandi í fyrra og árið þar áður, en hann var ekki veiðanlegur því hann var of lítill til að mikið af honum veiddist í netið. Núna er hann orðinn stærri sem leiddi til þess að aflinn varð meiri í ár. Þetta eru jákvæðar fréttir.“ Humarvarpa mildari en botnvarpa Þegar talið berst að humarveiðum verður mönnum tíðrætt um veiðarfærin, að hvaða leyti botntroll séu skaðleg búsvæðum humra og hvort leturhumar eigi alfarið að veiða með gildrum. Veiðar með botnvörpu eru raunar bannaðar á humarslóðum en þar er sérstök humarvarpa notuð. Jacob segir ekkert einfalt svar til. „Humarvarpa er frábrugðin trollum sem eru notuð fyrir botnfisk. Möskvastærðin er minni og hún er ekki með grjóthoppara en humarinn lifir á leirsvæðum svo þú þarft hann ekki,“ segir Jacob. „Það er ekkert einfalt í þessu og það verða alltaf einhver áhrif á botninn, trollhlerarnir geta til dæmis markað rákir í hann. Svo geta viðkvæmar lífverur eins og sæfjaðrir orðið fyrir áhrifum.“ Hann segir þó að áhrifin geti líka verið jákvæð eins og þegar botnset þyrlast upp sem gerir fæðu aðgengilegri fyrir humarinn. Takmarkaðar tilraunir hafi verið gerðar með gildrur en þær séu ekki notaðar til humarveiða eins og er. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Humarveiðar Leggja til könnunarveiðar á humri Humarveiðarnar voru skemmtilegt tímabil Ráðleggja áframhaldandi humarveiðibann „Við höfum ekkert gaman af svartsýni“ Tilkynna vísbendingar um vaxandi stofn humars » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Rysjótt veður en veiðist vel Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Von á sjöunda og áttunda skipinu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Von á sjöunda og áttunda skipinu Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Veiddu meiri humar en búist var við Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Von á sjöunda og áttunda skipinu Gullver verður gambísk Elisabeth Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Fleira áhugavert Brýnt að bregðast við bómullarvæðingu barna Hætta rekstri þotanna fyrr en áætlað var Brustu í söng á fjölmennum framboðsfundi Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.5.26 621,31 kr/kg Þorskur, slægður 13.5.26 655,24 kr/kg Ýsa, óslægð 13.5.26 393,35 kr/kg Ýsa, slægð 13.5.26 400,72 kr/kg Ufsi, óslægður 13.5.26 176,91 kr/kg Ufsi, slægður 13.5.26 370,24 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 13.5.26 328,38 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 10.5.26 9,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 14.5.26 Sæli ÍS 268 Lína Þorskur 4.179 kg Steinbítur 3.441 kg Skarkoli 88 kg Ýsa 58 kg Samtals 7.766 kg 14.5.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Þorskur 5.233 kg Ýsa 1.562 kg Steinbítur 621 kg Skarkoli 54 kg Keila 46 kg Hlýri 35 kg Karfi 22 kg Langa 17 kg Samtals 7.590 kg 14.5.26 Kristján HF 100 Lína Ýsa 979 kg Steinbítur 296 kg Þorskur 208 kg Keila 185 kg Karfi 43 kg Hlýri 25 kg Langa 3 kg Samtals 1.739 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Rysjótt veður en veiðist vel Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Von á sjöunda og áttunda skipinu Útkall vegna fiskiskips í vandræðum Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Lækka hrefnukvóta í 134 dýr vegna villu Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Veiddu meiri humar en búist var við Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Gullver verður gambísk Elisabeth Kaflaskipt vetrarvertíð á enda Von á sjöunda og áttunda skipinu Samningur Norðmanna vekur meiri ugg: „Viðkvæmt mál“ Útkall á hæsta forgangi vegna aflvana skips Hætta í fiskvinnslu eftir samtals 78 ár Tilkynnt um strok laxaseiða úr landeldisstöð Veiddu meiri humar en búist var við Fer um miðja nótt til að sjá fyrstu bátana Von á sjöunda og áttunda skipinu Gullver verður gambísk Elisabeth Sjávarútvegur saup seyðið af ESB-aðild Veiðigjaldið gæti endað fyrir dómstól ESB Fleira áhugavert „Auðvitað ákveðin vonbrigði“ Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu X26: Baráttusætin í Reykjavík Greiddi sama flugið tvisvar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 13.5.26 621,31 kr/kg Þorskur, slægður 13.5.26 655,24 kr/kg Ýsa, óslægð 13.5.26 393,35 kr/kg Ýsa, slægð 13.5.26 400,72 kr/kg Ufsi, óslægður 13.5.26 176,91 kr/kg Ufsi, slægður 13.5.26 370,24 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 13.5.26 328,38 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 10.5.26 9,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 14.5.26 Sæli ÍS 268 Lína Þorskur 4.179 kg Steinbítur 3.441 kg Skarkoli 88 kg Ýsa 58 kg Samtals 7.766 kg 14.5.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Þorskur 5.233 kg Ýsa 1.562 kg Steinbítur 621 kg Skarkoli 54 kg Keila 46 kg Hlýri 35 kg Karfi 22 kg Langa 17 kg Samtals 7.590 kg 14.5.26 Kristján HF 100 Lína Ýsa 979 kg Steinbítur 296 kg Þorskur 208 kg Keila 185 kg Karfi 43 kg Hlýri 25 kg Langa 3 kg Samtals 1.739 kg Skoða allar landanir »